Hjalti veit ekki sitt rjúkandi ráð. Kærastan er farin frá honum, hann á bágt með svefn og í ofanálag sér hann ímyndaðar veggjalýs alls staðar. Það er því þreyttur og tættur maður sem ber að dyrum hjá nágrönnunum til að kvarta yfir hávaða – en þar er honum óvænt tekið opnum örmum og áður en hann veit af er hann kominn á bólakaf í hugleiðslu og kakódrykkju. En ekki er allt sem sýnist í sjálfshjálparhópnum Kakófylkingunni.
Óbragð er grátbrosleg ástar- og ferðasaga, full af skrautlegum persónum og skemmtilegum vendingum.
Vá!!! Pottþétt með topp bókunum sem ég hef lesið í ár þannig að geggjað að enda síðasta daginn svona vel. Ég tengdi óþægilega mikið við Hjalta og mér finnst eins og hans þróun í gegnum bókina hefur hjálpað mér líka 🫶🫶
9. júlí 2025 Hlustaði á Arnmund lesa hana fyrir mig meðan ég rölti um Skaftafell í sumarsólinni yfir tvo daga. Ég elska mjög mikið við þessa bók, innri mónólogur Hjalta finnst mér alltaf skemmtilegur og persónurnar og aðstæðurnar eru skrautlegar. Framvindan er líka mjög skemmtileg og vinnur mikið með stanslaust flúx milli kyrrðar og ókyrrðar. Alltaf æsandi. — Mér finnst að ég gæti gert góða kvikmynd úr þessari bók. Kannski.
Eldra review: 10. júlí 2023 Spennandi og ljúf bók sem var einstaklega skemmtileg lesturs og létt. Ég dýrkaði persónurnar og húmorinn og staðarlýsingarnar. Mér fannst ég einnig getað tengt við hugarfarið örlítið og komið mér þannig meir inn í hugan hans Hjalta. Þessi bók fannst mér ná góðum tökum á covid hugarfarinu á Íslandi og kvíðahugarfarinu.
Lesin í svarta stólnum frammi í stofu, í rúminu á stúdentagörðunum, á veröndinni í bókabúðinni við austurstræti, í herbergi nr. 1 út í Grímsey, í gestaherberginu heima hjá ömmu á Akureyri og í rúminu mínu heima. Tekin að láni frá Bókasafni Hafnarfjarðar<3
"Spiritual healing, beautiful nature and magical hot chocolate. What's not to like?
Oh yeah... maybe the part where you join a cult run by a manipulative leader."
I loved this book: the humour, the satire, the self-insight. This book brings up many topics from today's world and makes you question how and why we take everything so seriously. It puts the youth under a loop and focuses on all the bugs and problems they struggle with but lightly and humorously.
It acknowledges the pain we all struggle with, but simultaneously, it provokes you to realize that they aren't always that serious and that the answers aren't out there. They're in you. Only you know what is right for you. Don't follow the world and its trends blindly, ask questions and do what feels right for you. (exactly the opposite of what our dear mc Hjalti is doing.) Sometimes you need to forget about saving the world, let go, and be a bit selfish to enjoy the world.
And of course, enjoy a big cup of hot chocolate. It always helps.
I love reading funny weird books. I loved the humour and the descriptions are very well-written, and I enjoyed the style of writing, thought it would get confusing at times, but nothing that bothered me a lot. It made me question 'how' and 'why' with many things, but I don't think it's a book that'll stick with me.
Spiritual healing, beautiful nature, and magic hot chocolate. Sounds like the dream adventure, right? I really liked how the author managed to tell the story in a adventurous, fun, light-hearted way, while still touching important topics.
Overall I would say, this book was okay. It wasn't good, but it most definitely wasn't bad either. It was an enjoyable easy read, but it didn't get my emotions going that much. Which is the reason for three stars, even though I loved many parts of it.
Það er svo gaman að lesa skemmtilegar bækur! Óbragð er sprenghlægileg en líka alvarleg og næm, með ævintrýalegu umhverfi og tíðaranda sem allar lifandi verur kannast við. Gott að fá að detta inn í obsessive hugsanir Hjalta (sérstaklega ef maður er smá obsessive sjálfur) og fá smá alvöru kultvibes á Íslandi. Mæli svo mikið með !
Mjög skemmtileg lesning um Hjalta, ungan mann, sem er að reyna að finna sig. Kakófylkingin sem hann kynnist samanstendur af ólíkum karakterum sem manni finnst maður hafa hitt fyrir áður. Kvíðin sem Hjalti kljáist við er örugglega ekki ólíkur því sem margir eru að kljást við. Sérstaklega ungt fólk. Guðrúnu tekst svo að segja alla söguna á nokkuð kómískan hátt. Mæli með bókinni.
Sérkennileg saga um kvíðasjúklinginn Hjalta sem sogast inn í kakóhreyfinguna. Áhugaverð þemu eins og sértrúarsöfnuðir og sýkla hræðsla. Ég náði samt ekki sambandi við aumingja Hjalta sem fór í taugarnar á mér. 2 og hálf stjarna.
Hlustaði á bókina í lestri Arnmundar Ernst. Tók langan tíma í ljósi þess hve gaman ég hafði af sögunni. Góðir sprettir. Spennandi að fylgjast með höfundinum.