Jump to ratings and reviews
Rate this book

Feigð

Rate this book
Lögreglumaðurinn Hörður Grímsson situr í ómerktum bíl fyrir utan Litla-Hraun og bíður. Hann er heljarmenni að burðum, einrænn og skyggn, og feigðin kallar að honum úr öllum áttum – hann hefur komist af úr sjávarháska og hinu mannskæða snjóflóði á Súðavík og á hverjum degi berst hann við fortíðardrauga. En hann vill gera heiminn örlítið bærilegri, hvað sem það kostar. Rammgert fangelsishliðið opnast og út gengur óvinurinn, dópsalinn, steratröllið og undirheimahrottinn Símon Örn Rekoja. Það stefnir í æsispennandi uppgjör milli þeirra þar sem átökin berast milli Reykjavíkur og Vestfjarða.

520 pages, Hardcover

First published January 1, 2011

7 people are currently reading
37 people want to read

About the author

Stefán Máni

40 books108 followers
Stefán grew up in Ólafsvík and lived there until over the age of 20. After school he did general manual labour and service jobs. To name a few, he worked in the fishing industry, did building work, plumbing, gardening, was a security guard, a cleaner, worked with teenagers and cared for the mentally ill.
He has now written eight novels, the first coming out in 1996, Dyrnar á Svörtufjöllum (The Door in the Black Mountains).

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
31 (12%)
4 stars
78 (32%)
3 stars
95 (39%)
2 stars
29 (12%)
1 star
8 (3%)
Displaying 1 - 13 of 13 reviews
Profile Image for Emma Viktorsdóttir.
310 reviews
April 19, 2022
Alltof mikið um lýsingar á ómerkilegum hlutum. Í raun alltof langdregin. Datt út stundum en komst inn í söguna aftur þegar það var hætt þessum endalausu lýsingum. Bókin gæti verið 100bls styttri ef það væri minna um svona svakalegar lýsingar.
Profile Image for Eydis Huld.
19 reviews
April 15, 2024
“Hann drepur tittlinga” á sirka fjórðu hverri síðu 😅
Hefði verið mun meira spennandi ef hann hefði sleppt endalausum og óþarfa lýsingum á hlutum, fötum ofl. Það kemur framvindu sögunnar t.d. ekkert við hversu margir veislusalir er á Hótel Sögu.
Profile Image for Andrea Ásgeirsdóttir.
33 reviews1 follower
December 11, 2016
Hefði verið betra að hafa betri kaflaskipti fyrir lesbrettið mitt. Það var langt á milli kafla og erfitt að finna réttan stað þegar bókin var lesin.

Hins vegar var bókin alveg frábær. Hörður Grímsson þunglyndur og drungalegur sem endranær. Þarna kynntist maður æsku hans, uppvexti og svo fullorðinsárunum. Ég gat varla lagt bókina frá mér, svo mikill var hasarinn. Nóg að gerast í bókinni og manni varð eiginlega um og ó hvað gekk á.

Ég sé það að Stefán Máni er að verða einn af uppáhaldshöfundunum mínum.
Profile Image for Örvar Steingrímsson.
150 reviews
September 27, 2013
Smá vonbrigða bók, byrjar vel, skemmtilegar persónur en svo fjarar frekar mikið undan þessu. Meira en 50% bókarinnar lýsir einum bíltúr og vantar einhvernveginn aðeins meira uppá söguþráðinn. En verður gaman að lesa meira um Hörð og spurning hvort að þetta sé karakterinn sem Stefán Máni heldur eitthvað áfram með.
Profile Image for Berglind Ósk.
19 reviews
January 13, 2012
Very exciting from beginning to end though I liked the first half better than the second. It gets a little bit dramatic and hard to imagine this would really happen in Iceland but a surprising twist right in the end.
Profile Image for Gunnar.
8 reviews2 followers
January 19, 2012
Would have given it 2 1/2 but Stefán deserves to be rounded to 3 due to his previouse work. The book starts of very interesting but looses steam and gets a bit pointless and drawn. In Stefáns previouse books I have found his strong part to be the ending but this time it wasn't up to standard.
Profile Image for Eygló Möller.
21 reviews
July 3, 2018
Hvað hefur hann oft drepið titlinga?!?

Alveg ágætis saga, en langdregin á köflum.

Eins og með aðrar bækur eftir Stefán Mána sem ég hef lesið, þá eru lýsingar á stöðum og fólki ansi nákvæmar. Eða réttara sagt of nákvæmar.

Profile Image for Sigurður.
144 reviews7 followers
September 10, 2012
Slakt hjá Stefáni Mána. Sagan er góð en úrvinnslan ekki. Hefði mátt stytta verulega.
Profile Image for Kristín.
560 reviews13 followers
January 21, 2016
Ég var ekki eins hrifin af þessari bók eins og öðrum bókum um Hörð Grímsson. Kannski of 'macho' fyrir mig. Aðeins of mikið um bíla og eltingarleik.
Profile Image for Anna Hardardottir.
84 reviews
January 3, 2017
Svolítið miklar og nákvæmar lýsingar á öllu.... vélin malar í hægagangi.... drepur tittlinga.... mikið um endurtekningar í bókinni en heldur manni samt alveg og er spennandi
Displaying 1 - 13 of 13 reviews

Can't find what you're looking for?

Get help and learn more about the design.