A thousand years ago, twenty-five ocean-going Viking ships under the leadership of that most outstanding man, Eirik the Red, set out on one of the greatest pioneering enterprises of all time....Only fourteen of the vessels would arrive at their goal - the remote, newly discovered island of Greenland. The two Greenland settlements were to flourish for five centuries. Their seamen, with Leif Eiriksson in the lead, sailed even further west and made the first exploration of the North American continent. But after the fifteenth century, the community disappeared from known history....Helge Ingstad, the widely acclaimed Norwegian explorer and man of letters, set out to rediscover additional traces of this Medieval Norse colony, to reconstruct its way of life and to penetrate some of its unsolved mysteries. In his book he presents the discoveries he has made from on-site investigations and from a rigorous study of archaeological and historical data....
A classic combination of travelogue and history. It got me interested in seeing Greenland, which turned out to be an expensive obsession but worth it. Also a gateway drug for Kirsten Seaver's "The Frozen Echo" and "Maps, Myths and Men."
A comprehensive coverage of the history of the Norse settlements in Greenland. Perhaps one of the best. I do not think any more modern work is as comprehensive or offers any more than this 50 year old book. Good reading and very informative for those interested in the topic.
When you read Landet under leidarstjernen - En ferd til Grønlands norrøne bygder, you realize Helge Ingstad is warning us about how easily passive observation turns into silent approval of structural injustice.
Straight up, Land Under the Pole Star has the best last chapter I've read all year. Helge Ingstad ties threads together so quietly I almost missed how good it was. The road there is bumpy, though, and a few middle chapters sag. Recommend for finishers, skip if you only skim.
Land Under the Pole Star hits a nerve because Helge Ingstad forces you to confront the uncomfortable ways we all end up validating systems we claim to dislike.
Norðmaðurinn Helge Ingstad var merkilegur karl. Hann átti langa og viðburðaríka ævi. Upphaflega menntaður sem lögmaður tók hann sig upp og gerðist pelsdýraveiðimaður í norðurhéruðum Kanada. Seinna varð hann svo sýslumaður Norðmanna á Austur-Grænlandi í áhugaverðum deilum um yfirráð þar, hann varð sýslumaður á Svalbarða og varð höfundur vinsælla bóka sem fjölluðu um ferðir hans, ævintýrin sem hann lenti í, lýsingar á framandi slóðum (einkum í norðrinu) og fólkinu sem þar bjó. Helge Ingstad var góður penni og hann kunni að segja frá.
Frægastur varð Helge Ingstad svo fyrir það hann fann ásamt konu sinni Anne Stine Ingstad fyrstu rústir eftir norræna menn í Vesturheimi, þar sem í dag heitir L´anse Aux Meadows á Norður-Nýfundnalandi. Þau gerðu þann fund í kjölfar þessarar bókar sem hér er til umræðu. Þar voru til aðstoðar við uppgröft nokkrar vikur sumarið 1962 ekki ómerkari menn en Kristján Eldjárn, Þórhallur Vilmundarson og Gísli Gestsson. Er sagt frá þeirra hlut og upplifan Kristjáns af því öllu saman í bókinni Vínlandsdagbók sem kom út 2012.
Þessi bók sem hér er til umræðu; "Landið undir leiðarstörnunni - Ferð til hinna norrænu byggða Grænlands" á hins vegar rætur að rekja til ferðar sem Helge fór ásamt konu sinni Anne Stine og Norðmanninum Harald Botten á litlum mótorbát 1953 til að kanna hinar fornu norrænu byggðir á Grænlandi. Upp úr þessu skrifar Ingstad bók sem hlýtur að teljast mjög gott rit um þessa búsetu sem síðar dó út. Bókin kom út 1959 og er mikill doðrantur sem segir ekki svo mjög frá þessari ferð þeirra en er heldur hafsjór heimilda um byggðir norrænna manna og það sem vitað var um þær þarna fyrir einum 60 árum, ásamt vangaveltum höfundar um líf þessa fólks og gátuna miklu sem er hvað varð um það?
Ég komst ekki hjá því að hugsa þegar ég las bókina, hvers vegna á fjáranum ekki væri fyrir löngu búið að þýða hana og gefa út á íslensku? Gæti það verið vegna gamaldags metings og þjóðrembu? Vegna þess að Íslendingar hafi verið móðgaðir yfir því að Norðmaður væri að garfa í sögu og arfleifð sem Íslendingar litu á sem sína? Kannski litu þeir líka niður á Helge Ingstad og þótti hann ekki vera nógu fínn fræðimaður, hann var jú bara lögfræðingur. En hann hefur skilið eftir sig bækur sem í dag eru klassískar, frægð hans varir og meira að segja heil freigáta norska sjóhersins siglir um í dag með nafni hans.
Hvað sem um það má segja að þessi bók skuli ekki hafa komið út hér á landi þá er það hreinlega til tjóns að svo skuli ekki hafa orðið raunin. Hún er afar skemmtileg og áhugaverð aflestrar, eiginlega nauðsyn í þessum fræðum öllum og kveikir heldur betur áhuga á að vita enn meira. Vissulega er hún úrelt í dag að því leyti að þegar bókin var skifuð þá var ekki enn búið að finna rústirnar í L´anse aux Meadows og sjálfsagt ýmislegt bæst við af vitneskju síðan bókin var skrifuð á sjötta tug síðustu aldar. Eitt um það, þá er þessi bók Helge Ingstads tvímælalaus klassíker í miðlun norræns miðaldafróðleiks til almennra lesenda og fræðimanna líka. Hún er einfaldlega svo vel skrifuð og upp sett.