Gerður Kristný lýsir stormasömu sambýli fólks við sína nánustu, grátbroslegum samskiptum kynjanna, margræðu sambandi kvenna sem hafa bundist systraböndum saumaklúbbanna og hún fjallar á nærfærinn hátt um samskipti barna. Ísmeygilegur stíll sagnanna gerir þó að verkum að ekki er allt sem sýnist. Þótt ýmsum finnist þeir eins og heima hjá sér mitt í ærslunum þá er andrúmsloft sagnanna einatt næsta dularfullt, loft er lævi blandið og hætt við að brosið vilji stirðna á andliti lesenda.
Gerður Kristný graduated in French and comparative literature from the University of Iceland in 1992. Her B.A. dissertation was on Baudelaire's Les fleurs du mal. After a course in media studies at the University of Iceland from 1992-1993 she trained at Danish Radio TV. She was editor of the magazine Mannlíf from 1998 - 2004, but is now a full time writer.
Awards for her work include 1st prize in the National Broadcasting Service short story competition 1986, 1st prize in a TV culture programme poetry competition 1992, the Children's Choice Book Prize in 2003 for her book Marta Smarta, the Halldór Laxness Literary Award in 2004, for her novel Bátur með segli og allt (A Boat With a Sail and All) and the Icelandic Journalist's Award for Myndin af pabba - Saga Thelmu (A Picture of Dad - Thelma's Story) in 2005. Her poetry book, Höggstaður, was nominated for The Icelandic Literary Award in 2007. Her poetry and short stories have been included in school textbooks at the elementary- and secondary level, as well as in anthologies published in Iceland and overseas.
Gerður Kristný has published poetry books, short stories, novels and a book for children, as well as a book about the Westman Islands Festival in 2002.
Smásagnasafnið Eitruð epli er eitt af fyrstu verkum Gerðar Kristnýjar en það kom upprunalega út árið 1998. Sögurnar eru vel ritaðar og hárbeittar og verkið ber sannarlega nafn með rentu, því hver saga er eins og girnilegt rautt epli á að líta en þegar bitið hefur verið í það kemur eitrið í ljós. Eins og ég hef ritað áður hér þá er Gerður Kristný algjört uppáhald og í þessu smásagnasafni skín gálgahúmorinn sem er eitt af hennar helstu kennimerkjum í gegn; sögur eins og „Mengele var misskilinn húmoristi“ og „Saumasystur“ ber þar hæst, en sú síðarnefnda gæti allt eins átt heima í smásagnasafni eftir Stephen King:
„Yfirmaðurinn í innlendu bókadeildinni gaf Þyrí nýja saumavél um daginn og hún á örugglega eftir að koma sér vel fyrir okkur. Þetta er engin venjuleg saumavél. Hún saumar allt og þá meina ég ALLT. Nálin æðir eins og skriðdreki yfir þykkustu nautshúðir. Þyrí hefur þegar prófað vélina á einum krakkanna og hann hefur ekki getað mætt í skólann síðan. Það er svo gott að hafa eitthvað lítið stykki að æfa sig á þegar maður er að venjast nýrri vél. Krakkinn á eftir að skilja það þegar hann eldist.“ („Saumasystur“, bls. 58).
4/5 – ég hef ekki enn lesið verk eftir Gerði Kristný sem mig langar ekki að lesa strax aftur