Brotabrot úr afrekasögu frjálshyggjunnar. Þegar litið er til atburða síðustu ára og aðdraganda hrunsins er eins og aðalatriðið gleymist-að grafast fyrir um rætur þessa alls, frjálshyggjuna og kennisetningar hennar. Þess vegna er orðið brýnt að víkka sjónarhornið og takast á við kennisetningarnar sjálfar. Til þess verður að fara aftur í tímann og athuga hvernig þær urðu til og hvernig þær bárust áfram. Í þessari bók kafar Einar Már Jónsson sagnfræðingur í París og höfundur"Bréfs til Maríu" ofan í þessa sögu á nýstárlegan hátt og skoðar hvað leynist að baki vígorðunum.
Meistaralega skrifuð bók sem gerir harða atlögu að kenningum frjálshyggjunnar. Vönduð, fjörug, fyndin, áhugaverð og stútfull af áhugaverðum fróðleik og skemmtilegum pælingum.