Ómunatíð er saga Styrmis Gunnarssonar um sjúkdómsbaráttu eiginkonu hans og þau áhrif sem veikindin hafa haft á líf fjölskyldu þeirra í meira en fjóra áratugi. Í þeirri glímu hafa skipst á skin og skúrir, dimmir dagar og glaðar stundir en geðveikin hefur ævinlega verið nálæg. Styrmir fjallar einnig um ólíkar aðferðir í geðlækningum og afleiðingar veikindanna fyrir þá sem næst standa, ekki síst börn geðsjúks foreldris.
Fín bók um geðhvörf og geðraskanir. Mætti þó hafa verið aðeins tilfinningameiri, fannst á köflum eins og höfundur væri að skrifa sagnfræðiritgerð en ekki um nána aðstandendur. Einnig mikið um endurtekningar. Þó var margt gott og fræðandi.
Ágætis bók um lífið með geðröskun. Mér fannst heldur mikið um endurtekningar og allt of mörg orð notuð. En ágætis hugleiðingar um geðröskun og áhrifin á börn og maka.