Hún Steinunn Sumarliðadóttir hefur boðið til veislu, enda á hún sjötugsafmæli og því ber að fagna. Á svona tímamótum er til siðs að líta yfir farinn veg en óvænt afmælisgjöf verður til þess að Steinunn kýs að rífa af sér alla fjötra síns fyrra lífs og fljúta á vit hins óvænta.
Í farteskinu eru minningarnar, allar sögupersónurnar sem hafa gert henni lífið bærilegra og svo auðvitað númerið á bankareikningnum.
Steinninn er ólík fyrri skáldsögum Ragnheiðar Gestsdóttur. Frmaan af var hún þekktust fyrir barna- og unglingabækur sínar en síðustu ár hefur hún vakið athygli sem farsæll glæpasagnahöfundur. Steinninn fjallar um Steinunni, um þorpið og heiminn, lífið og tilveruna, uppreisn, útþrá og sólskinsblettinn í fjallinu.
Mögnuð hugvekja. Sjötugri ekkju sem bjó lengst af við kúgun eiginmanns síns í sjávarþorpi mislíkar við börnin sín í sjötugsafmælinu og ákveður að hleypa heimdraganum. Gamaldags börnin verða alveg óð þegar hún stingur af. En hvert fer hún? Hvar ætlar hún að vera? Lætur hún sig hverfa? Er hún Steinunn Sumarliðadóttir eða Saphir Summer?
Ragnheiður Gestsdóttir hefur áður (ég man eftir Blindu) komið mér stórkostlega á óvart með söguþræðinum. Samt finnst mér þessi saga svolítið vera eins og tilraun - og ekkert að því - til að máta sjötuga konu við fjárglæframanninn í sér. Ég trúi alveg að sjötugar konur geti bjargað sér í hinum stóra heimi með nettengingu og órekjanlegt greiðslukort, en ég trúi eiginlega ekki að félagsvera, sem ég held að Steinunn hafi samt verið, plumi sig til lengdar ein í heitu löndunum.
En lesið og hrífist vegna þess að sagan er samt, eins og ég segi í upphafi, mögnuð hugvekja. Hvað er maður og hvað vill maður vera?
Þroskasaga konu, krimmi, glæpasaga, rauð ástarsaga? Það er erfitt að skilgreina þessa bók og hún endar eiginlega svolítið úti í móa. Alveg upp á þrjár og hálfa stjörnu, en ólíkindabragurinn í lokin fór með mig.
Þetta er hugljúf bók, áhugaverð, og söguþráðurinn sérstakur. Sögupersónan skemmtileg. Þarna er snert á ýmsum þáttum íslensks samfélags í litlu plássi úti á landi. Höfundi tekst að snerta á ótrúlega mörgum þáttum í ekki lengri bók. Mæli hiklaust með bókinni.
Frábær saga sem grípur mann fljótt. Skemmtilegt hvernig titill bókarinnar vísar í margt sem kemur fram í sögunni. Einstaklega vel lesin af Ragnheiði Steindórsdóttur.