Nær þúsund ár eru liðin frá því myrkraöldin leið undir lok, þegar vitringarnir sjö komu saman og sigruðu skuggana. Hin myrka tíð hefur að mestu gleymst. En þó minni manna sé brigðult gleyma hin fornu öfl engu.
Innvígsluhátíðin nálgast, dagurinn þegar þulnameistarinn tilkynnir Ragnari, Breki, Sirju og jafnöldrum þeirra í þorpinu hvaða hlutverkum og skyldum þeim er ætlað að gegna. Krakkarnir ættu að njóta seinustu áhyggjulausu daganna í sumarsólinni en framtíðin ber annað í skauti sér. Án þess að friðsælir þorpsbúarnir viti af því hefur óstöðvandi atburðarás verið hrundið af stað. Hin fornu öfl sem eitt sinn steyptu heiminum í aldalanga nótt hafa vaknað og manngálkn þeirra eru aftur farin á stjá. Þau sækjast eftir einhverju í þorpinu, einhverju sem hefur verið falið í norðrinu frá ómunatíð. Fyrr en varir eru krakkarnir dregnir inn í atburði og ráðabrugg sem þeir hafa engan skilning á og komast að því að gjörðir þeirra skipta sköpum fyrir örlög þriggja heima.
Hrafnsauga er fyrsta bókin í Þriggja heima sögu, æsispennandi sagnaflokki þar sem blóðgaldrar, falin leyndarmál og gleymdar óvættir ógna heiminum öllum. Þetta er fyrsta skáldsaga Kjartans Yngva Björnssonar og Snæbjörns Brynjarssonar, og bar sigur úr býtum í samkeppninni um íslensku barnabókaverðlaunin 2012.
"Ég mæli því með bókinni en vona að höfundar fínpússi aðeins fyrir hvaða markhóp þeir eru að skrifa í næstu bókum. Eins og hún stendur er hún í hættu á að lenda í einhvers konar millibilsástandi, hún er til að mynda á heimasíðu Forlagsins flokkuð sem barnabók fyrir þrettán ára og eldri en ýmislegt í henni þykir mér henta betur fyrir yngri lesendur sem ég held að gætu samsamað sig mun betur með söguhetjunum en 13-18 ára myndu gera.
En að öllu þessu loknu get ég endað á því að segja að ég hlakka til að lesa næstu bók og sjá hvernig úr þessu verður unnið!"
Þessi bók er skrifuð sem barna- og unglingabók og því dæmi ég hana sem slíka.
Frumleg og spennandi fantasía og heillandi heimur. Spilar með algengar hugmyndir og söguminnstur úr fantasíu, en nær að gera það án þess að verða of fyrirsjáanleg. Heimurinn er líka heillandi og vel uppbyggður. Persónurnar eru líka skemmtilegar og trúverðugar.
Mæli hiklaust með þessari fyrir allt fólk 10 ára og eldri. Mjög góð frumraun hjá Snæbirni og Kjartani, greip mig nokkuð fast og kláraði hana á einum degi, þótt ég sé utan markflokks hennar í aldri. Hefði líka elskað hana á barns- og unglingsaldri.
Skáldsagan Hrafnsauga eftir þá félaga mína Kjartan Yngva Björnsson og Snæbjörn Brynjarsson kom út fyrir skemmstu. Fékk bókin Íslensku barnabókaverðlaunin og er ágætlega að þeim verðlaunum komin. Segir frá þeim Ragnari, Breka og Sirju, ungmennum sem eru á sextánda aldursári, þegar sagan hefst. Þau búa í litlu þorpi, Vébakka, og þurfa að takast á við ýmsa óvænta atburði. Í söguna fléttast síðan nokkrar aukapersónur, sem koma aðalpersónunum til hjálpar, t.d. Ukkó og Nanúk, og mismunandi staðir, sem gæða söguna lífi, hver með sínum hætti. Hér er um að ræða furðusögu þar sem heilmikið ferðalag spinnst saman við frásögnina, eins og títt er gert í fantasíum, og fá lesendur að kynnast fjölmörgum ólíkum stöðum á meðan lestrinum stendur. Sækir sagan þannig í brunn sagnabálka á borð við Wheel of Time eftir Robert Jordan, Narníu sögur C. S. Lewis að ógleymdri Hringadróttinssögu J. R. R. Tolkien.
Hrafnsauga gerist í heimi ekki svo ólíkum okkar, en á öðrum tíma. Þar hafa manneskjur gert sér bústaði, ásamt Köprum, sem eru að hálfu geitur, ef svo mætti að orði komast. Mannfólkið skiptist í nokkrar þjóðir eða flokka, og eru aðalpersónur sögunnar af ætt Jana. Í þessari fyrstu sögu, en reikna má með að þær verði mun fleiri, fá lesendur að kynnast sögu Jana sem og baksögu heimsins. Þannig er sögusviðið vel útfært og nokkur rækt hefur verið lögð við að skapa sem trúverðugasta heimsmynd. Tekst höfundum vel upp þar og fyrir vikið verður sagan öll trúverðugari.
Persónusköpun er einnig með ágætum. Aðalpersónurnar þrjár hafa hver sín sérkenni og auðvelt er að setja sig í spor þeirra. Ragnar er á sinn hátt burðarás sögunnar, atburðir hennar hverfast um hann og tilvist hans. Hann er munaðarlaus og þarf að takast á við þær tilfinningar sem áralöng höfnun samfélagsins á Vébakka hefur valdið honum. Breki og Sirja gegna einnig hvort sínu hlutverki en innri barátta þeirra er ekki jafn sýnileg og hjá Ragnari. Ferðalagið sem þau takast á hendur er í senn yfir ókunn lönd en um leið þroskaför. Þau gera mistök og þurfa að gjalda þeirra, læra af þeim og komast af. Á ferð sinni takast þau á við óvætti og forynjur sem sækja að þeim. Eru skýr mörk milli hetja og illmenna, en þó er auðvelt að sjá hvað rekur hverja persónu áfram og finna til með þeim, jafnvel þeim illu.
Eins og áður segir þá heimsmynd sögunnar skýr og lifandi. Hafa höfundar lagst í mikla vinnu við að finna heiti og orð yfir þær hugmyndir sem vilja koma áleiðis. Sú vinna hefur svo sannarlega skilað sér, því það veitir sögunni meiri trúverðugleika ásamt því að gera orðkynngi hennar fjölbreyttara og skemmtilegra. Helsti galli sögunnar er textavinnsla hennar. Mig grunar að ef höfundar hefðu haft eða gefið sér meiri tíma til þess að gera textann meitlaðri, þá hefði þessi frábæra saga orðið að mínu mati á pari við mörg helstu verk fantasíunnar. Hugsanlega má skrifa eitthvað af textavinnslunni á yfirlesara og ritstjóra.
Í heildina er Hrafnsauga virkilega skemmtileg saga og vel að verðlaununum komin. Hún er auðlesin og frásögnin heldur lesanda sínum við efnið allt frá upphafi til enda og maður vill meira. Að lokum ber að geta þess að hönnun og umbúnaður er almennt til fyrirmyndar.
Ég hafði gaman af þessari bók og frumlegum orðaforða hennar (þó svo textinn í heild sinni mætti stundum vera þjálli). Manngálkn og varmenni, hversu mikið meira er hægt að biðja um? Þrátt fyrir að framvinda sögunnar sé svolítið óvenjuleg og ef til vill vanti einhvern hápunkt í hana þá verður maður að taka inn í myndina að þetta er fyrsta bókin í bókaflokki og því eflaust eins konar inngangur. Það verður spennandi að lesa næstu bók, hvenær sem hún kemur út og sjá hvernig höfundarnir ná að vinna úr því sem þeir hafa hingað til byggt upp. Eins má nefna að þetta er einstaklega falleg bók og eiguleg (mér finnst það skipta máli) og ég vona að framhaldsbækurnar verði jafn flottar (og í stíl við þessa fyrstu).
Langt síðan ég hef skemmt mér jafn vel yfir íslenskri bók. Einföld en sannfærandi heimssköpun sem ég hef ekki séð áður, og það sprottið upp úr þeim frekar vel plægða akri sem fantasíubókum er sáð í á 21. öldinni. Skemmtileg íslensk orðanotkun á köflum. Hefði viljað láta koma mér meira á óvart, Monomyth-þræðinum fylgt heldur vel. Bíð spenntur eftir næstu.
Virkilega skemmtileg bók. Höfundarnir hafa skapað heim sem auðvelt er að hverfa inn í og trúverðugar persónur sem lesandinn fær strax áhuga á að fylgja eftir. Ég mæli sérstaklega með bókinni fyrir nemendur í efstu bekkjum grunnskóla (6.-10. bekk) og tel hana eina þeirra bóka sem krakkar gætu auðveldlega sokkið sér niður í. Hrafnsauga er inngangur að lengri sögu sem verður bara betri og betri.