Jump to ratings and reviews
Rate this book

Ljósmóðirin

Rate this book
Þórdís Símonardóttir var ljósmóðir á Eyrarbakka á umbrotaárunum fyrir og eftir aldamótin 1900. Tvívegis fann hún ástina og tvívegis glataði hún henni. Hún barðist gegn yfirgangi og kúgun valdamanna sem beittu öllum ráðum til að beygja hana niður í duftið. Hún gafst aldrei upp, reis á fætur þegar hún var snúin niður og glataði aldrei trúnni á hugsjónir sínar. Eyrún Ingadóttir byggir þessa áhrifamiklu bók á heimildum af ýmsu tagi um ævi og störf Þórdísar. Með eftirminnilegum hætti dregur hún persónur og atburði fortíðarinnar út úr skjalasöfnum inn í heillandi heim skáldsögunnar.

302 pages, Hardcover

First published January 1, 2012

Loading...
Loading...

About the author

Eyrún Ingadóttir

7 books2 followers
Eyrún Ingadóttir er fædd á Hvammstanga 1967. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1987 og BA prófi í sagnfræði við HÍ 1993.
Eyrún ritaði sögu Húsmæðraskóla Reykjavíkur 1992, sem var jafnframt BA verkefni hennar, og sögu Húsmæðraskóla Suðurlands, “Að Laugarvatni í ljúfum draumi”, árið 1994. Hún ritaði ævisögu Eyjólfs R. Eyjólfssonar, “Gengið á Brattann”, árið 1998 og var einn af fjórum meðritstjórum bókarinnar “Konur með einn í útvíkkun fá enga samúð” árið 2002.

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
21 (27%)
4 stars
35 (46%)
3 stars
16 (21%)
2 stars
4 (5%)
1 star
0 (0%)
Displaying 1 - 10 of 10 reviews
Profile Image for Hrönn Hrafnsdóttir.
18 reviews
August 21, 2013
Fannst hún bara alveg frábær. Heimsótti reyndar Eyrarbakka þegar ég var í miðju kafi og sá sýninguna um ljósmóðurina og skoðaði helstu staði sem nefndir voru í bókinni, gaf henni ábyggilega ennþá meira líf fyrir vikið. Vel skrifuð saga um pólitík og plott í litlu samfélagi, ástir og sorgir og lýsir vel þau rýru kjör sem flest fólk mátti búa við á þessum tíma.
Profile Image for Jóna.
18 reviews1 follower
January 20, 2016
Á margan hátt skemmtileg bók en í seinni hlutanum á henni var ég orðin frekar þreytt á sífelldu tímaflakki og endurtekningum á sömu atburðunum.
Profile Image for Skuli Saeland.
905 reviews25 followers
June 19, 2013
Mér fannst margt skemmtilegt í þessari bók. Það var t.a.m. ánægjulegt að fylgjast með atburðum sem voru að gerast á Eyrarbakka þar sem ég þekki lítillega til. Sömuleiðis fannst mér heillandi að sjá hvernig Eyrún fléttaði saman sögulegar staðreyndir úr viðburðarríkri fortíð Þórdísar ljósmóður við skáldskap sinn og síðast en ekki síst fannst mér gaman að bera atburði sögunnar við greinina "Aðförin að Þórdísi Símonardóttur ljósmóður á Eyrarbakka" sem Eyrún birti í Árnesingi, söguriti Sögufélags Árnesinga árið 2006 þar sem hún fjallaði um málaferli Jóhanns V. Daníelssonar og Guðmundar Ísleifssonar gegn Þórdísi.
Hins vegar fannst mér bókin byrja hægt og Eyrún eiga erfitt með að slaka á sagnfræðingskröfunum og spinna skáldskapinn af heilum hug. Fyrir vikið var textinn stirður á köflum og ég átti erfitt með að samsama mig Þórdísi, sérstaklega í fyrri hluta bókarinnar.
Profile Image for Sigga Lára.
21 reviews
February 10, 2013
Mér fannst þetta virkilega fín bók, skemmtileg saga Þórdísar ljósmóður sem hefur verið ein af þessum íslensku kjarnakonum. Hún nær ekki alveg 4 hjá mér miðað við þær bækur sem ég hef gefið 4 stjörnur en hún er nær 3 og 1/2 þó :)
Profile Image for Sigfríður Guðjónsdóttir.
67 reviews1 follower
July 23, 2014

Söguleg skáldsaga um tímabilið fyrir og eftir aldamótin 1900 á Íslandi þegar konur voru eftirbátar karlana.
Þeir sem eru hrifnir af stórum kvenpersónum ættu ekki að láta þessa bók fram hjá sér fara :-)
Profile Image for Ásta Sóley.
10 reviews
April 19, 2015
Las allar 302 blaðsíðurnar í einum rykk - vel skrifuð söguleg skáldsaga um sterka konu í fátæku samfélagi og samskipti hennar við valdsmenn, viðskiptamenn, eiginmenn og annað samferðafólk. Vantar alveg hálfu stjörnurnar núna því að þessi bók á fyllilega 4 og hálfa stjörnu skilið!
Profile Image for Hrafnhildur Hreinsdóttir.
19 reviews2 followers
March 6, 2013
Las þessa bók og hafði ánægju af. Gaf manni innsýn í líf þessarar kjarnakonu og góða tilfinningu fyrir tíðarandanum. Get vel mælt með henni.
Profile Image for Thorunn.
462 reviews
May 5, 2015
Alveg fróðleg, en einum of langdregin og ýtarlegar lýsingar á smáatriðum sem voru ekkert sérlega áhugaverð. Kannski aðeins og mikil skáldsaga og of lítið söguleg.
Profile Image for Védís.
98 reviews3 followers
May 15, 2013
Æ hvað þetta var yndisleg bók, skrifa meira síðar.
Displaying 1 - 10 of 10 reviews