Fyrrverandi fimleikastjarnan Jenna Hvítfeld hefur allt: útlitið, kynþokkann, greindina og framann. Í þessari fyrstu skáldsögu Kristínar Eiríksdóttur kemur í ljós að ekkert er eins og hún hélt, sjálf lygin kvíslast líkt og eitur.
KRISTIN EIRIKSDOTTIR (b.1981) made her mark on the literary scene in a big way with her collection of short stories, Doris Dies in 2010. Critics agreed that a new, fully-fledged author had arrived with one of the most significant works of fiction of the year. Her voice is strong and importunate – one of the most original of her generation.
ótrúlega skemmtileg en samt átakanleg bók. var alltaf að láta blekkjast og fannst það svo fyndið. Kristín fjallar ótrúlega vel um fjölskyldutráma, lyga og sannindi og heldur manni á tánum alla frásögnina. góð bók til að lesa á einum degi.
búinn a því eftir þessa bók. auðlesin en ónotaleg umfjöllunarefni ... erfið að leggja frá sér. geymi í mér mikla þörf að tala um þessa bók við annað fólk. ég kunni að meta endurtekningar og ólík sjónarhorn á sömu atburði og aðstæður. mér finnst ég hafa fullorðnast og þroskast við þennan lestur.
Ein flottasta og best skrifaða íslenska bók sem ég hef lesið. Hana þarf að lesa að minnsta kosti tvisvar til þess að skilja allar vísanir og átta sig heilarmyndinni. Þetta er ein af uppáhaldsbókunum mínum vegna fléttunnar og hvernig sagan fléttast saman, teygir úr sér og svo fer allt á hvolf...
Sterkur fjarki, nálægt 4,5. Bókin hefur að geyma andstyggilegar sögur - hún fær mín meðmæli. Þú veist að bókin er firnasterk þegar þér finnst eins og önnur hver persóna sé í uppáhaldi hjá þér. Manni líður ekkert sérstaklega vel við lesturinn, en hver þarfnsat þess svo sem. Eitt sem er kannski smá á grensunni... það er að flestir karlarnir í bókinni eru predatorar. Nema sjomlinn frá Houston.
Það hafa svo mörg sagt mér að lesa þessa bók og nú kom loksins að því - og ég var mjög hrifin. Ég las þessa bók í flugi, lest, rúmi og í Árósum og hún heillaði á öllum stöðunum. Hún var samt frekar óþægileg líka en það er bara hressandi inn á milli. Held ég hafi sagt oj upphátt svona þrisvar.
* Ekki lesa meira ef þú hefur ekki lesið bókina, soft spoiler.
Bókin náði mér alveg og mér fannst svo fyndið að þurfa að aðlaga mig að nýjum upplýsingum hverju sinni. Ég reiknaði greinilega ekki með svona ótraustum sögumanni og gekk ítrekað aftur í gildruna. Fokking tekin.
Já! Saga sem slær mann reglulega utanundir og hættir ekki að koma á óvart. Ég sem ætlaði aldrei að lesa hana þar sem mér þótti kápan svo hryllilega slæm! Eins gott að ég varð vegna náms. Mæli með þessari.
Sagan sjálf er snilldarlega sett fram, stíll Kristínar er með eindæmum góður og tekst henni að skapa svo sjarmerandi, heillandi og vel skrifaða persónu að ég gleymdi mér algjörlega við að heyra hana útskýra ævi sína.
Það hvernig sagan kemur heim og saman er annað atriði sem ég hef mjög gaman af. Sagan minnir einna helst á lauk nefnilega, lesandinn er í sífellu að fletta lögum af síversnandi lauknum. Tárin fara að streyma á einhverjum tímapunkti þar til maður sér að laukurinn er rotinn að innan og getur þá loks hent honum og tekið annan lauk upp og byrjað að fletta.
Að lokum vil ég nefna að sagan endar á hátt sem kætir mig ósegjanlega, það er ekki þar með sagt að neinn verði mér sammála enda er ég bölsýnn maður og kætist undarlega yfir misförum annarra.
Eins afbragðs rithöfundur og Kristín er sé ég munstur í skrifum hennar. Hef nú reyndar bara lesið Tól eftir hana áður en eins og ég hef rekið mig á hjá öðrum höfundum verður þema verka þeirra keimlíkt. Aðalpersónan og bakgrunnur hennar er svipaður og í öðrum verkum höfundar. Hér er dauði móður vendipunktur. Foreldrarnir eru veikir. Dóttirin, aðalpersónan, er haldin fíkn hvort sem það eru lygar eða fíkniefni eða bæði. Í báðum bókunum sem ég hef lesið eftir þennan annars nýja uppáhalds rithöfund nær aðalpersónan að aftengja líkama og sál á meðan hörmungarnar ganga yfir og gera kynlífið vélrænt. Eins og sálfræðingur Jennu segir í lok Hvítfelds þá skilar skömm foreldranna sér í frumunum til næstu kynslóða. Þemað er sem sagt fjölskylduharmleikur, hórdómur, fíkn og dauði. Allt spennandi umfjöllunarefni. Ætla mér að lesa allar hennar bækur. Takk aftur Kristín.
This entire review has been hidden because of spoilers.
Sterk frásögn. Margfaldar persónur, en svolítið margar sem maður kynnist mjög lítið (þó þær séu mjög djúpar og vel mótaðar þá koma þær fyrir í svo litlum skömmtum að maður er búinn að gleyma þeim næst þegar þær koma fyrir.)
fannst líka stundum pínu mikið af því að útleggja tilfinningar og persónusköpun frekar en að vinna með þær. varð svolítið þreytandi í miklu magni.
don't get me wrong - bókin er mjög góð, held ég hafi bara verið aðeins of spennt fyrir henni, ætla að lesa hana aftur bráðum.
Mér fannst þessi skemmtileg, sorgleg og átakanleg!!! Hlakka til að lesa meira eftir Kristinu✌️✌️✌️✌️ Ef ehv skildi hvað gerðist í endanum má sá hafa samband við mig⭐️🤙 Langar helst að fara í umræðu hring eftir að hafa lesið hana!! MÆLI MEÐ😁
Mjög góð bók. Vel skrifuð og vel haldið utan um allar sögurnar sem eru sagðar. Of mikið trauma fyrir minn smekk - hver einasta blaðsíða einhvern veginn hlaðin trauma. En það er bara ég!
Frábær bók en ansi erfið á köflum, ég varð að leggja hana frá mér á nokkrum stöðum því hún tók á. En svo spændi ég í gengum aðra kafla. Virkilega vel skrifuð.