Jump to ratings and reviews
Rate this book

Úlfshjarta

Rate this book
Það er haust í Reykjavík. Alexander er hættur í menntaskóla og vinnur á kókbílnum. Vinnan er ömurleg, bílstjórinn óþolandi og það eina sem gerir vinnudaginn bærilegan er tilhugsunin um stefnumótið við Védísi um kvöldið – bíóferð og kannski eitthvað meira … vonandi. En aldagömul öfl eru á sveimi, óvænt atburðarás fer í gang og fyrr en varir leynast hættur við hvert fótmál.

Stefán Máni hefur notið mikilla vinsælda hér heima og erlendis fyrir skáldsögur sínar. Í Úlfshjarta er hann á nýjum slóðum; spennan er í hámarki eins og aðdáendur hans þekkja en umfjöllunarefnið er nýstárlegt og ævintýralegt.

299 pages, Paperback

First published March 21, 2012

4 people are currently reading
51 people want to read

About the author

Stefán Máni

37 books104 followers
Stefán grew up in Ólafsvík and lived there until over the age of 20. After school he did general manual labour and service jobs. To name a few, he worked in the fishing industry, did building work, plumbing, gardening, was a security guard, a cleaner, worked with teenagers and cared for the mentally ill.
He has now written eight novels, the first coming out in 1996, Dyrnar á Svörtufjöllum (The Door in the Black Mountains).

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
2 (1%)
4 stars
28 (27%)
3 stars
37 (36%)
2 stars
24 (23%)
1 star
11 (10%)
Displaying 1 - 13 of 13 reviews
Profile Image for Skuli Saeland.
905 reviews24 followers
January 20, 2014
Þetta er saga fyrir unglinga jafnt sem fullorðna og segir frá ungum manni sem uppgvötar að hann er varúlfur. Skemmtilegt að lesa hvernig Stefán Máni heimfærir varúlfamýtuna yfir á íslenskar aðstæður og ég verð að viðurkenna að ég átti ekki von á að hann skrifaði unglingasögu eftir að hafa einbeitt sér að illskunni með jafn afdrifaríkum máta í síðustu sögum sínum.
Profile Image for Erla Björk.
2 reviews
March 21, 2013
Flott bók, skemmtileg tilbreyting í bókaflóruna fyrir ungt fólk. Myndi hiklaust mæla með henni.
Profile Image for Sif.
34 reviews1 follower
March 24, 2013
Algjör síðuflettir, virkilega spennandi og ætti að hitta í mark hjá lesendum Hungurleikjanna og Twilight.
Profile Image for Ingibjörg Emilsdóttir.
1 review
June 27, 2013
Mér fannst bókin alltof hæg af stað. Endirinn var aftur á móti frekar hraður miðað við byrjunina. Heillaði mig ekki.
Profile Image for Kristín.
557 reviews12 followers
November 9, 2018
Ég er hvorki unglingur né varúlfaaðdáandi svo ég er einfaldlega ekki í markhópnum en mér fannst þetta samt alveg þokkaleg afþreying og sérlega seinni parturinn. Skilur ekki mikið eftir og ég er hrifnari af bókunum sem eru skrifaðar fyrir eldra fólk en get ýmindað mér að einhverjir unglingar hefðu gaman af þessu.
Profile Image for Kristín Helgadóttir.
10 reviews1 follower
February 15, 2020
A good story for tweens. My 12 year old son - who doesn't really like to read - liked this one and found it exciting. I recommend it for 12-16 years old and even older.
Profile Image for Óskar Þráinsson.
20 reviews12 followers
August 24, 2016
Sagan er mjög áhugaverð og flott pæling að tengja saman vísindi og varúlfa til að skapa raunveruleika sem kemur varúlfum fyrir í nútíma og framtíð.
Að því sögðu þá fer mjög (of) stór hluti bókarinnar í langdregna sögulegar útskýringar og fræðilegar pælingar á því öllu. Manni líður stundum eins og á fræðslufyrirlestri. Inn á milli mikilvægra uppákoma koma samhengislaus atriði með óljósan tilgang. Söguþráðurinn sjálfur er fremur stuttur og þunnur þótt eiginlega plottið sé gott í lok bókar. Ég væri alveg til í að sjá fleiri bækur sem framhald af sögunni þar sem ekki þyrfti að eyða öllum þessum tíma í útskýringar og hægt væri að fara á bóla kaf í spennu og karaktersköpun í stað þess að byrja bókina fyrir alvöru í seinni helmingi hennar.
Niðurstaða: Mjög góð pæling, fín afþreying en grunnur söguþráður.
Profile Image for Kollster.
434 reviews17 followers
April 10, 2013
Flott saga með flottum aðdraganda en hefði viljað hafa hana lengri , fannst hún klárast alltof hratt og einhvernvegin ekki klárasta í samræmi við byrjunina á sögunni. Ætli þær verði fleiri ?
Profile Image for Elín.
2 reviews1 follower
February 23, 2014
Ekki góð bók, illa skrifuð og söguþráðurinn lélegur.
Profile Image for Unnur.
71 reviews
March 28, 2016
I liked this book.
I found it amusing while I was reading it but it doesn't leave much behind.
The characters were realistic enough and the book was well written so you were able to enjoy it.
Profile Image for Gudrun Frida.
21 reviews6 followers
November 6, 2014
Eeeeh alveg ömurleg bók, Stefán er greinilega að reyna að skrifa bók sem a að vera i líkum við The Hunger Games en þsð er bara alls ekki að ganga upp
Displaying 1 - 13 of 13 reviews

Can't find what you're looking for?

Get help and learn more about the design.