Uppi í háu tré prílar stóra skrímslið og segir frá ævintýralegri fjallgöngu á Skrímslatind. Litla skrímslið heldur sig við jörðina en frásögnin fer á flug:
– Ég þori að klífa Ófreskjufjall! segir litla skrímslið. – Ertu að fara þangað núna? spyr stóra skrímslið? – Ég kem með!
Skrímsli á toppnum er sjötta bókin um litla og stóra skrímslið. Bækurnar hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál og hlotið margs konar verðlaun og viðurkenningar. Höfundar þeirra eru Áslaug Jónsdóttir, Kalle Güettler og Rakel Helmsdal.
A nice twist--little monster is the trouble-maker here, fibbing about a gigantic Monster Mountain that he climbed, when really, he's afraid to climb even a tree. But it all works out in the end.