Dauðadjúp sprunga er snjöll og grípandi spennusaga um ógn og ofbeldi, blekkingar og trúnað. Þær fyrri eru Helköld sól, Blóðrauður sjór, Náhvít jörð og Drepsvart hraun.Áróru líður betur eftir að lík systur hennar fannst í hraungjótu á Reykjanesi – hún getur loks hætt að leita. En málið er enn óleyst, því að kærastinn sem var talinn hafa drepið Ísafold fannst á sama stað, einnig myrtur. Og þegar Áróra fær vitneskju um óhugnanlegt atriði í tengslum við líkfundinn munar litlu að hún missi tökin á tilverunni. Til að dreifa huganum einbeitir hún sér að peningaþvættismáli sem Daníel vinur hennar er með til rannsóknar. Þar leynist þó fleira undir yfirborðinu og enn á ný liggja þræðirnir í Engihjallann, þar sem Ísafold lifði og dó …Lilja Sigurðardóttir er einn vinsælasti glæpasagnahöfundur landsins. Hún hefur verið tilnefnd til virtra glæpasagnaverðlauna, svo sem Gullrýtingsins og Petrona-verðlaunanna, og hlotið fjölda annarra viðurkenninga. Dauðadjúp sprunga er ellefta glæpasaga hennar.
Lilja´s newest book, Netið ((Tangle) was published by Forlagid publishing in October 2016 and is the second book in the Reykjavík Noir Trilogy. Lilja started her writing career in 2008 when she sent a manuscript of a novel to a competition run by the publishing house Bjartur whose aim was to find the Icelandic Dan Brown. Lilja got a publishing deal out of the competition and in 2009 her first book, the crime novel Spor (Steps), came out, which she wrote in her spare time. Her second book, Fyrirgefning (Foregiveness) was published a year later but after that Lilja wrote mostly for theatre for the coming years. She won the Icelandic Theatre Awards for Best Play of the Year in 2014 for her staged debut Stóru börnin (Big Babies). But in 2015 she started a new crime series with Icelands biggest publisher Forlagid. The series has been called The Reykjavík Noir Trilogy, and the first book in series, Gildran (Snare) became an instant success.
Hringnum lokað og við fáum að vita atburðarásina í kringum dauðafall Ísafoldar. Áróra rannsakar peningaþvott og Gúgúlú bregður fyrir í garðinum. Frábær endir á þessari seríu.
Ég var virkilega vonsvikin með endirinn á þessari bók. Hann elsku Daníel, sem er ein af mínum allra uppáhalds skáldsögu persónum, átti svo miklu betra skilið. Ef þetta er síðasta bókin um hann þykir mér þessi endir á annars frábærri bókaseríu svakalega underwhelming.