Jump to ratings and reviews
Rate this book

Men

Rate this book
Ungur atvinnulaus flautuleikari hefur tekið að sér menningarritstjórn á rótgrónu dagblaði og unir hag sínum þar ágætlega, allt þar til hann fær í hendur einkennilegt afmælisviðtal við fyrrverandi utanríkisráðherra Íslands sem farið hefur huldu höfði frá því hann hrökklaðist úr embætti fyrir um tveimur áratugum. Ungi maðurinn heldur hugdjarfur á fund viðmælanda síns en verkefnið tekur nokkuð óvænta stefnu skömmu eftir að hann kemur á áfangastað. Þar mæta honum ýmsar hindranir sem hann þarf að yfirstíga áður en hann tekst á við pólitíska fortíð valdhafans í því kolsvarta myrkri sögunnar sem skollið er á í íburðarmiklum híbýlum ráðamannsins fyrrverandi.

117 pages, Kindle Edition

First published January 1, 2023

13 people want to read

About the author

Sigrún Pálsdóttir

10 books21 followers
Sigrún Pálsdóttir is a writer and historian. Born in Reykjavík in 1967, she completed a PhD on the history of ideas at the University of Oxford in 2001, after which she was a research fellow and lecturer at the University of Iceland. She worked as the editor of Saga, the principal peer-reviewed journal for Icelandic history, from 2008 to 2016, and she has been a freelance writer since 2007. She first came to prominence as a writer of historical biographies. Her debut in 2010 was the acclaimed Þóra biskups (Thora: A Bishop’s Daughter), followed by Ferðasaga (Uncertain Seas) in 2010, the story of a young couple and their three children who were killed while sailing from New York to Iceland aboard a ship torpedoed by a German submarine in 1944. Her first novel, Kompa (That Little Dark Room), was released in 2016 and her second, Delluferðin, in late 2019. Pálsdóttir’s biographies have been nominated for the Icelandic Literary Prize, the Women’s Literature Prize and the DV Cultural Prize for Literature. Her book Ferðasaga was chosen as the best biography of 2013 by booksellers in Iceland. Kompa, her debut novel, was nominated for the Icelandic Women’s Literature Prize in 2016 and in 2019 was published in the US by Open Letter (University of Rochester’s literary translation press) under the title History. A Mess.

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
4 (9%)
4 stars
8 (19%)
3 stars
17 (40%)
2 stars
11 (26%)
1 star
2 (4%)
Displaying 1 - 7 of 7 reviews
Profile Image for Hrafn Marinó.
31 reviews
April 13, 2024
Mjög óskiljanleg á pörtum (sérstaklega sem klassískur tónlistarmaður). Ekkert er útskýrt. Ég allavegana vonaði að það yrði tilgangur í einhverju sem hann gerði en endirinn gerði allt bara ennþá tilgangslausara. Mjög augljóst að hún ætlaði að láta bókina enda á einn máta en hætti við á síðustu stundu en svo er hún bara búin. Ekkert closure á neinu
288 reviews4 followers
December 21, 2023
Ég er engan veginn að tengja við þessa bók. Fannst hún þokkaleg framan af og beið alltaf eftir fléttunni. En í lokin var þetta orðin hálfgerð steypa.
Profile Image for Einar Jóhann.
316 reviews12 followers
January 15, 2024
Ég hugsa enn mjög reglulega um Delluferðina en það er frábær bók Sigrúnar sem fleiri mættu lesa. Út af Delluverðinni var ég staðráðinn í að lesa Men sem annars flaug ekki beint hátt þessi bókajólin, óverðskuldað. Men er þétt eins og Delluferðin en ekki jafnmikið út um hvippinn og hvappinn og hefur jafnara tempó. Það eitt og sér er ekki vont.
Vonandi tekur mig enginn af lífi fyrir þessa athugasemd en Men sver sig í ætt við sögur Braga Ólafssonar, sem er eiginmaður Sigrúnar. Fléttan með holuna í íbúðinni,.agressjónin í GMF, samtölin í barnaveislunni og barsenan eru allar mjög Bragalegar en það truflaði mig ekki vitund, enda snjall karl þar á ferð. Þá má ég til með að nefna að það er mjög lítið af Braga í Delluferðinni. Þar hafið þið það.
Ekki láta það rugla ykkur að gagnrýnendur Kiljunnar hafi varið sínum naumt skammtaða tíma í að flissa lengi yfir því að blaðið í bókinni sé augljóslega Morgunblaðið. Á komandi árum verður Sigrún Pálsdóttir stærri og fyrirferðameiri höfundur.
49 reviews
January 23, 2024
Hélt mér frá fyrsta staf að þeim síðasta. Kom skemmtilega á óvart og aldrei að vita hvað var handan við hornið. Skemmtilegt hvernig Sigrún færði sjónarhornið milli sögupersóna í miðri frásögn út frá ákveðnum atburðum.
Profile Image for Hólmfríður Þórisdóttir.
9 reviews
January 8, 2026
Hugmyndin er góð, ádeila á samtímann, stjórnmálin og auðvaldið en þyrfti betri úrvinnslu. Fannst of margir lausir endar í lokin.
Frábær hugmynd með leynistaðinn.
Displaying 1 - 7 of 7 reviews

Can't find what you're looking for?

Get help and learn more about the design.