Jump to ratings and reviews
Rate this book

Miðillinn

Rate this book
Á köldum vetrarmorgni er rannsóknarlögreglan kölluð út að Hólavallagarði. Innan um þá sem þar hafa verið lagðir til hinstu hvílu finnst lík eldri konu og fljótt er ljóst að dauðdaga hennar hefur borið að með saknæmum hætti. Hver getur hafa átt eitthvað sökótt við þessa eldri konu sem virðist hafa verið hlédræg, vanaföst og einförul?


Þegar rannsókninni miðar áfram er greinilegt að ekki var allt sem sýndist í lífi konunnar og Guðgeir Fransson og teymi hans eiga fullt í fangi með að leysa þetta dularfulla mál sem meðal annars leiðir þau á miðilsfundi og djúpt í þyrnum stráða fortíð fórnarlambsins.

Miðillinn er æsispennandi saga úr smiðju Sólveigar Pálsdóttur sem hlaut Blóðdropann, verðlaun fyrir bestu íslensku glæpasöguna, fyrir bók sína Fjötra.

288 pages, Hardcover

Published January 1, 2023

2 people are currently reading
25 people want to read

About the author

Sólveig Pálsdóttir

11 books65 followers

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
13 (12%)
4 stars
49 (46%)
3 stars
43 (40%)
2 stars
1 (<1%)
1 star
0 (0%)
Displaying 1 - 6 of 6 reviews
Profile Image for Hjördís Albertsdóttir.
19 reviews1 follower
January 14, 2024
Ég óskaði mér þessarar bókar í jólagjöf, nafnsins vegna, þar sem ég heillast að öllu yfirnáttúrulegu. Það er fátt yfirnáttúrulegt við þessa bók en hún er vel skrifuð, skemmtileg og á köflum drungaleg. Ég lifi mig inn í bækur og hef ekki lesið margar glæpasögur síðustu árin (að 2023 undanskildu) vegna viðkvæmni hjartans og tengingu hjarta og hugar. Þessi bók er hvorki gróf né með ógeðfelldar lýsingar en stórgóð glæpasaga engu að síður sem hélt mér við lesturinn.
Profile Image for FriðrikaOdduMattaskó.
132 reviews1 follower
November 28, 2023
Mjög fín og heildstæð bók, góð persónusköpun.
Ég hefði kannski viljað fá kafla inn á milli sem gerðust í fortíðinni og fá að vita smá meira um angakarlinn frá Þýskalandi.
Displaying 1 - 6 of 6 reviews