Frábært og mikilvægt að lesa bók sem er sérstaklega skrifuð til feðra. Góðir kaflar t.d. um fæðinguna og eftir heimkomu. Hins vegar er bókin að mörgu leyti úrelt. Hún er skrifuð fyrir 18 árum en síðan þá hefur margt breyst varðandi lög, reglur og réttindi. Samfélagið er einnig breytt. Það væri flott að fá þessa bók útgefna í uppfærðri og endurskoðaðri útgáfu.