Jump to ratings and reviews
Rate this book

Mennska

Rate this book
Bjarni Snæbjörnsson ólst upp á Vestfjörðum við algeran skort á hinsegin fyrirmyndum. Það eina sem hann heyrði um aðra homma var að þeir væru öfuguggar og kynvillingar. Til að lifa af spilaði hann eftir þeim reglum sem hann taldi gilda en í leiðinni afneitaði hann sjálfum sér með öllum tiltækum ráðum. Hér segir Bjarni, með aðstoð dagbóka sinna og bréfaskipta við fjölskyldu og vini, frá leiðinni út úr skápnum. Hann lýsir á hispurslausan hátt ævintýralegri för um heiminn, erfiðum tímum, ástum og kynlífi, litlum og stórum sigrum í lífi og leiklist – ásamt áralangri sjálfsvinnu til að ná sátt við sína margbrotnu og litríku mennsku.

Mennska er aðgengileg og hrífandi lesning sem á erindi við alla sem hafa glímt við skömm og reynt að skila henni, finnst erfitt að taka pláss í samfélaginu eða hafa fórnað hluta af sjálfum sér af ótta við viðbrögð annarr

242 pages, Kindle Edition

Published May 7, 2024

5 people are currently reading
51 people want to read

About the author

Bjarni Snæbjörnsson

1 book3 followers

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
44 (55%)
4 stars
33 (41%)
3 stars
2 (2%)
2 stars
1 (1%)
1 star
0 (0%)
Displaying 1 - 12 of 12 reviews
Profile Image for Guðrún Úlfarsdóttir.
170 reviews5 followers
Read
June 4, 2024
Ég fagna öllum hinsegin reynslusögum — sérstaklega íslenskum! Þetta er raunar alveg ótrúleg heimild, þekki engan sem hefur dokúmenterað líf sitt jafn vel. Einlægar endurminningar um hinsegin æsku, að koma út úr skápnum í 90’s, skömm og tilfinningaflækjur sem elta mann fram á fullorðinsár… og fleira. Uppáhalds parturinn minn var þegar hann reyndi að brydda upp á samræður við MR töffara með „má ég skoða veskið þitt?“ Hvað er það með okkur hinsegin manneskjur og að elska að skoða veski? Er það bara því við dýrkum trinkets!?
Profile Image for Aníta.
2 reviews
June 18, 2024
Með tárin í augunum, baráttuhnefinn á lofti, mikið er fjölbreytileikinn fallegur 🌈
Profile Image for Jóel Enok.
23 reviews25 followers
January 4, 2026
Með bókinni tekst Bjarna að summa upp vel sögu jaðarsetningar samkynhneigðra og hvernig hún endurtekur sig á ný. Hann deilir persónulegri reynslu sinni af einlægni og hugulsemi fyrir þeim sem tengja við sögu hans.

Lesturinn er vonandi heilandi fyrir þá sem tengja en hann er fullkomlega nauðsynlegur fyrir alla þá sem ekki geta tengt að neinu leyti. Skilningsleysi á ævi og erfiðleikum jaðarsettra hópa er siðferðislegur brestur sem taka þarf á af mun meiri festu en þegar hefur verið gert og bókin sýnir fyllilega fram á þau miklu neikvæðu áhrif sem kynjatvíhyggjan og feðraveldið hefur á jaðarsetta hópa; hvaða nafni sem það heitir að þá er jaðarsetning ofbeldi og ef þú móðgast, þér bregður eða fyllist efa við að lesa það þá mæli ég með að lesa bókina og telja þér svo trú um að þú sért í rétti við að upplifa þær tilfinningar/hugsanir.
6 reviews
August 2, 2025
Þessi bók opnaði augu mín fyrir hvað baráttan getur rist djúpt. Ég stóð einhvern veginn í þeirri barnalegu meiningu að samkynhneigð væri ekki svo mikið mál, fólk kæmi úr skápnum og það væri þá frá og allt í orden, öllum þokkalega sama síðan um aldamótin sirkabát. Það var mikill misskilningur. Að vera hinsegin í heterónormatífu samfélagi er miklu meira krefjandi en mig hafði órað fyrir. Einstök heimild og innsýn í hinsegin veruleika.
Profile Image for Védís Eva.
10 reviews
Read
June 9, 2025
Einlæg og falleg en hrikalega sár lesning. Gat ekki hætt þegar ég byrjaði. Takk Bjarni fyrir að opna þig og standa vörð um upplifun þess að vera jaðarsett manneskja að berjast fyrir tilvistarrétti sínum í einlita eða litblindu samfélagi. Liti fjölbreytileikinn 💫
Profile Image for Sara Rut.
12 reviews
June 21, 2024
Takk fyrir að leiða okkur svona fallega í gegn um ferðalagið þitt ❤️ þetta snerti svo djúpt
Profile Image for Siggeir.
77 reviews2 followers
July 23, 2024
Ég las þessa á tveimur kvöldum og átti mjög erfitt með að leggja hana frá mér og finn mig knúinn til að deila upplifun minni með heiminum.

Fyrirfram hafði ég smá "áhyggjur" af því að bókin væri bara leiksýningin "Góðan daginn, faggi" færð yfir á bók en hún er það alls ekki. Hún er einhvern veginn mjög náttúrulegt framhald af þeirri áhrifamiklu sýningu en bæði verk standa þó algjörlega sjálfstæð.

Þetta er einu orði sagt mögnuð bók, sem "lætur engan ósnortinn" svo maður grípi í bókmenntaklisjur. Bjarni er einn allra einlægasti maður sem ég hef kynnst og það kemst vel til skila í þessari bók. Hún er ofboðslega persónuleg og ég get ímyndað mér að það hafi ekki verið auðvelt að skrifa hana og senda hana svo út í heiminn.

En skilaboðin í henni eru svo mikilvæg og mér finnst að allir ættu að lesa hana. Hún ætti að snerta einhverja mannlega taug í hverjum einasta mannsbarni. Því eins og Bjarni segir sjálfur þá skiptir það máli að börn hafi fyrirmyndir í menningunni sem þau geta mátað sig við, og Bjarni er sannarlega frábær fyrirmynd, fyrir alla mennska aðila.

Til hamingju með þessa mögnuðu bók Bjarni, mér finnst ég eiginlega ekki eiga nógu sterk orð til að lýsa henni. Fólk verður eiginlega bara að næla sér í eintak og lesa sjálft.
Profile Image for Berglind.
290 reviews4 followers
June 29, 2025
Saga Bjarna er mikilvæg, því raddir úr hinsegin samfélaginu þurfa að heyrast. Það gaf mér mikið að sjá "Góðan daginn, faggi" þar sem sjarminn og dýptin getur ekki annað en hrifið áhorfandann. Svo mörg okkar fundu samhljóm; að vera öðruvísi, að finnast við vera lokuð inní sjálfum sér og þessa botnlausu skömm að vera eins að við erum.
Ég var að vonast eftir áframhaldandi sjarma og dýpt í bókinni. Dýptin var vissulega til staðar en sjarminn sem Bjarni hefur á sviði var ekki að skila sér. Í Mennsku byrjum við aftur uppá nýtt, á Litla Bjarna og því sem hann upplifir og gengur í gegnum. Mér fannst erfitt að komast inní bókina, trúlega vegna þess að Litli Bjarni fékk ekki að tala óáreittur, Stóri Bjarni var svo rosalega duglegur að mæta og útskýra og túlka. Mig langaði að fá að finna til með þessum litla strák óáreitt, sagan bar sig alveg sjálf og þurfti ekki svona mikla túlkum.
Seinni hluti bókarinnar er aðeins öðruvísi. Þá fylgjumst við Stóra Bjarna, fyrst "in the making" og svo manninum sem hann er líklega enn í dag. Og enginn grípur frammí. Þetta er hrátt og sársaukafullt ferðalag, en um fram allt svo hrikalega heiðarlegt. Þrátt fyrir að "ganga vel", utanfrá séð, með fullt að skemmtilegum verkefnum og ferðalögum, þá var undiraldan alltaf sterk og tilbúin að draga hann niður. Lífið er flókið og velgengni / vanlíðan útiloka ekki hvora aðra.
Takk fyrir afhjúpunina og heiðarleikann.
Displaying 1 - 12 of 12 reviews

Can't find what you're looking for?

Get help and learn more about the design.