„Hún var hætt að berjast á móti. Óreglulegu kippirnir í líkamanum hættu snögglega, augun voru starandi og munnurinn skældur … Skaðinn var skeður og gjörðum hennar yrði ekki breytt. Ef hún hefði aðeins látið kyrrt liggja og hætt að grúska í fortíðinni.“
Ung kona finnst myrt á heimili sínu og rannsókn málsins miðar hægt. Hin látna virðist hafa verið dáð og elskuð af öllum sem hana þekktu og ástæður voðaverksins eru á huldu.
Hrefna hefur starfað á lögmannsstofunni Skildi frá útskrift en þar sinnir hún aðallega þinglýsingum, skilnaðarpappírum og annarri skriffinnsku. Þegar morðmál dettur óvænt inn á borð hennar teygja þræðir málsins sig í ófyrirséðar áttir og Hrefna þarf að leggja allt í sölurnar til að fóta sig í nýju hlutverki. Er Hrefna að kafa of djúpt og storka örlögunum?
Dauðaþögn er spennandi saga um ofbeldi, þöggun og blekkingar. Bókin er fyrsta skáldsaga Önnu Rúnar Frímannsdóttur.
Frábær bók! Einstaklega frábær af þvi að ég hélt að hún væri léleg (eða með lélegu plotti) allan tímann. Ég hélt svo oft í gegnum bókina að ég væri búin að fatta plottið og að það væri alltof mikið eftir til að lesa um fléttuna. Frábær endir, frábær skrif, frábær karaktersköpun (hlýtur að hafa verið erfitt, svoooo margir karakterar vá). Var á tímapunkti að íhuga að setja upp whiteboard með öllum nöfnunum og starfslýsingu. Dásamlegt. Var ég búin að segja frábær? 4.5/5 ⭐️
Þessi bók kom algjörlega á óvart. Frábær plott, engar óþarfa málalengingar, stuttir kaflar sem héldu spennunni gangandi allan tímann. Og lokakaflarnir toppuðu allt. Mæli hiklaust með bókinni. Gef henni toppeinkunn.
Ótrúlega vel skrifuð bók, spennandi og með flottri fléttu. Endirinn algjörlega óvæntur. Fær fimm stjörnur - bíð spennt eftir næstu bók frá þessum frábæra höfundi ⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️