Jump to ratings and reviews
Rate this book

Sporðdrekar

Rate this book
Meistaralega fléttuð skáldsaga um leyndarmál og svik, ástir og vináttu. Föstudagsmorgunninn 28. október: Fyrir utan bárujárnshús í Hafnarfirði bíður maður í felum. Hann er nýkominn til landsins, skelfur af kulda og er að hefja eftirförina. Þetta er afmælisdagurinn hennar Stellu og hún hefur slæma tilfinningu fyrir kvöldinu. Svo byrjar að snjóa.

Eldsnemma föstudagsmorguninn 28. október: Fyrir utan rautt bárujárnshús í Hafnarfirði bíður maður í felum. Hann er nýkominn til landsins, hann skelfur af kulda, hann er um það bil að hefja eftirförina. Þetta er afmælisdagurinn hennar Stellu og hún hefur slæma tilfinningu fyrir kvöldinu. Svo byrjar að snjóa.

Sporðdrekar er meistaralega fléttuð skáldsaga um leyndarmál og svik, ástir og vináttu.

Þetta er tíunda bók Dags Hjartarsonar en fyrir þá síðustu hlaut hann tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

308 pages, Hardcover

Published January 1, 2024

13 people are currently reading
127 people want to read

About the author

Dagur Hjartarson

16 books41 followers

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
34 (20%)
4 stars
88 (54%)
3 stars
33 (20%)
2 stars
6 (3%)
1 star
1 (<1%)
Displaying 1 - 23 of 23 reviews
Profile Image for Villi Neto.
41 reviews77 followers
November 20, 2024
Var yfir mig hrifinn af þessari bók.
Ég á til að nota lýsingarorðið „skemmtilegt“ við eitthvað sem ég naut mín að lesa, held það sé kannski ekki rétta orðið í þessu tilfelli, en það var „stórskemmtilegt“ að lesa hana.
Þótt ég tengdi við suma karaktera og suma ekki, þá hélt ég með þeim jafnóðum.
Ég sé allt svo skýrt fyrir mér sem Dagur skrifar, það gerði það að verkum að ég settist svo mikið í aðstæðurnar.
Ég er ekkert mjög góður penni þegar það kemur að gagnrýni, en já, algjörlega 5 stjörnur.
Profile Image for Fríða Þorkelsdóttir.
108 reviews11 followers
November 14, 2024
Ég fíla hvað textinn er ljóðrænn, Dagur er alltaf með svo flottar líkingar. Var mun hrifnari af Ljósagangi sem var svona á mörkum ljóðlistar og skáldsagnagerðar og er eiginlega hrifnust af ljóðabókunum hans.
Persónurnar í Sporðdrekum eru einhvern veginn of venjulegt fólk. Þau lifnuðu ekki við í mínum huga en komu sér nú alveg í aðstæður sem voru áhugaverðar og spennandi.
Profile Image for Tinna Kjartansdóttir.
35 reviews
December 30, 2024
Ótrúlega góð bók! Hélt hún yrði fimm stjörnur alla leið en fannst henni svo ljúka í miðju kafi, einmitt þegar lokahnúturinn var við það að bindast og rauði þráðurinn að taka á sig endanlega mynd. Hefði þurft amk einn kafla í viðbót, fletti blaðsíðunni og bjóst við þeim næsta.
Profile Image for Vildís Harpa.
21 reviews
January 5, 2025
Ef það væri hægt að gefa 4,5 þá myndi ég gera það.
Bókin er spennandi og erfitt er að leggja hana frá sér. Endirinn veitti mér örlitlum vonbrigðum, núna sit ég uppi með ótal spurninga en engin svör.
Fannst einnig leiðilegt að Sporðdrekar er ekki eins ljóðræn og fyrri bækur Dags.
Þrátt fyrir það er þessi bók hreint meistaraverk sem ég veit að ég mun lesa aftur og aftur að leitast við svörum af spurningum mínum!
1 review
December 30, 2024
Bókin greip mig, las hana alla í einu. Mér fannst sagan í raun fjalla um allt það ósagða í samskiptum karakteranna.
Hefði viljað smá meiri enda, aðallega því ég var orðin invested í þeim öllum en passar vel í þemað að skilja endalok þeirra eftir ósögð
Profile Image for Arndís María.
41 reviews2 followers
January 10, 2025
æ þessi endir er eiginlega óþolandi, er það trademark höfundar eftir við erum ekki morðingjar? finnst það svo leiðinlegt vegna þess að hann skrifar svo vel og bækurnar hans eru svo skemmtilegar að lesa en verð einhvernveginn alltaf fyrir vonbrigðum þegar þeim lýkur, kannski er þetta glatað take, þetta var frábær bók en endaði á pirrandi hátt
Profile Image for Eva Engilráð.
67 reviews
January 19, 2025
Bók sem ég vildi helst lesa í einum rykk. Sparaði hana þar til ég gæti það og sé ekki eftir því. Góð bók sem hélt manni allan tímann. Skemmtilegt hvernig hann óf saman sögum og persónum. Svo er alltaf gaman að lesa bækur í umhverfi sem maður þekkir vel og veit nákvæmlega hvar sögupersónan er stödd. Hlakka til næstu bókar.
249 reviews2 followers
January 26, 2025
Ekki besta bók þessa frábæra höfundar, náði ekki jafn miklum tökum á mér og Ljósagangur.
Profile Image for Áróra Gunnarsdóttir.
12 reviews
January 30, 2025
mér fannst hún sjúklega góð, flaug í gegnum hana, elska svona fléttur og fannst gott að lesa bók sem gerist í vestubænum mínum núna þegar ég sakna hans. Bókin skildi mig samt eftir með allskonar spurningar svo myndi elska bókaklúbbsspjall um það hvað gerist næst.
Profile Image for Einar Jóhann.
317 reviews12 followers
November 7, 2024
Nýjasta bók Dags Hjartarsonar býr yfir miklum sprengikrafti. Sagan er keyrð áfram á gríðarlegri flettiorku enda stækkar söguvefurinn sífellt og verður flóknari. Þrátt fyrir hraða framvindu á lesandinn ekki erfitt með að fylgja þræðinum eftir, því sagan gerist að mestu leyti á yfirborðinu og þannig gjörólík síðustu bók Dags.
Paradýnamíkinni er vel lýst (t.a.m. í litlum árekstrum á interraili) og saga tveggja bræðra sem eiga ekkert bakland er sömuleiðis góð. Degi tekst líka vel til við að láta mjög frábrugðið atmó fylgja ólíkum sögumannsröddum.
Bók sem vel gæti slegið í gegn!
1 review1 follower
March 4, 2025
Bókin mjög vel skrifuð og nær að koma hversdagslegum pælingum mjög fallega í orð. Hins vegar fór mér fljótlega að leiðast. Mér fannst skrítið að leggja svona mikla áherslu á hvað hver og ein persóna tengdist en láta þau aldrei fatta það né leysa úr sínum málum. Það endaði með því að mér fannst bókin frekar ómerkileg og innihaldslaus.
49 reviews
June 25, 2025
Lengsta skáldsaga Dags til þessa. Hann skrifar góðan, skýran texta og leikur sér með tungumálið.
Aðalpersónur skiptast á að vera sögumenn og fylla þannig upp í hugsanir annarra og mynda góða heild. Lesandi heldur með hverri aðalpersónu þegar hún er sögumaðurinn en getur litið allt öðruvísi á sömu persónu í kafla annarrar aðalpersónu.
Profile Image for katrín lea.
66 reviews
March 3, 2025
sko. ég fílaði þessa bók mjög mikið, las hana hratt og lifði mig mikið inn í hana. flottar persónur, sporðdrekar, tengingar, vinátta og dauði, en hún endar of skyndilega að mínu mati. það var eflaust viljandi, en ég hefði viljað eitthvað resolution, sérstaklega því sagan var orðin svo góð.
Profile Image for Brúsi Ólason.
9 reviews
December 28, 2024
Mjög spennandi og skemmtileg og skilur mann eftir með nokkrar spurningar á góðan hátt. Hefði kannski viljað aðeins meiri slaufu á endan miðað við alla þræðina.
Profile Image for Assa Borg Snævarr Þórðardóttir.
89 reviews7 followers
January 4, 2025
Að mörgu leyti stórfín bók, fallega skrifuð og fléttan ágætlega ofin en ég er orðin svolítið þreytt á að lesa um djammið í Reykjavík, sem er kannski bara ég at the ripe age of 29.
Profile Image for Hrafnhildur.
23 reviews
April 24, 2025
Rosalega góð persónusköpun, var spennt að heyra meira um allar persónurnar. Mjög næs hvernig allt fléttast saman en hefði verið til í svona 5 kafla í viðbót, endaði svolítið bara á: og hvað svo????
Profile Image for Unnur Lárusdóttir.
202 reviews8 followers
December 23, 2024
Áhugaverð persónusköpun, góðar lýsingar á djammi og daglegu streði ungs fólks í samtímanum. Dálítið óreiðukennd.
Profile Image for Jakob Hannesson.
10 reviews1 follower
February 16, 2026
Virkilega vel skrifuð nútímasaga sem er bæði trúverðug og spennandi. Sannkölluð ,,flettisaga" eins og ég held að höfundur sjálfur hafi orðað réttilega.
4 reviews
February 3, 2025
Hún var mjög spennandi og oft erfitt að leggja hana frá sér. Hún var samt smá stund að grípa mig og ég náði ekki mjög djúpri tengingu við margar af sögupersónunum. Þrátt fyrir það mjög vönduð og drífandi saga sem enginn verður svikinn af.
Profile Image for helga.
21 reviews
February 28, 2026
las þessa fyrir bókaklubb sem á enn eftir að hittast hehe, mjög ljóðræn og falleg
Displaying 1 - 23 of 23 reviews

Can't find what you're looking for?

Get help and learn more about the design.