Mannabein finnast á sveitabæ í Hvalfirði þar sem ekki hefur verið búið í hálfa öld. Hver kom þeim þar fyrir, hvers vegna - og hvenær? Ung einstæð móðir flytur á Akranes með ungan son sinn og fær leigða kjallaraíbúð hjá eldri manni sem virðist ekki allur þar sem hann er séður.
Lögreglukonan Elma, sem aðdáendur Evu Bjargar þekkja úr fyrri bókum hennar, fæst hér við flókið sakamál - um leið og hún grunar Sævar, sambýlismann sinn, um að leyna sig einhverju.
Eva Björg was born and raised in Akranes, the small town featured in her books. The Creak on the Stairs was her debut novel. The book went on to win the Blackbird Award and became an Icelandic bestseller. In 2021 The Creak on the Stairs won the British Crime Writers Association (CWA) New Blood Dagger.
Ein af betri bókum Evu, gat ekki lagt hana frá mér fyrren ég var búin að lesa hana upp til agna. Skemmtilega unnið aðalplott sem þvældi mér hring eftir hring í getgátum og kom á óvart, eitthvað sem er alltaf skemmtilegt. Mæli með.
4,5 Þessi var alveg hreint rosaleg og hélt mér föstu taki alveg frá fyrstu blaðsíðu. Sakamálið var mjög spennandi þó svo að beinin sem fundust hafi verið gömul, og mér fannst spennan krauma undir yfirborði sögunnar allan tíman. Ég elska hvernig Eva Björg nær að flétta inn hálf grískar tragedíur í sögurnar sínar, sérstaklega þegar kemur að fjölskyldu drama. Hinsvegar er mér ennþá nokkuð sama um Elmu. Ég vonaðist til þess að endir síðustu bókar (Strákar sem meiða) myndi færa meiri spennu í raunverulegt líf hennar, en svo var ekki sem olli mér smá vonbrigðum. Ég bíð samt spenntur eftir næstu bók!
This entire review has been hidden because of spoilers.
Vá þessi greip mig alveg - enda andaði ég henni að mér á no time! Hugsaði þegar ég kláraði bókina að Eva er ekki mikið fyrir að skilja eftir eitt loka plot twist heldur nokkur, og á það við með þessa. Mér fannst þessi plot twist samt meika meira sens en í síðustu bók sem hún gaf út og að mínu mati hefði þurft eitt í viðbót til að klára einn spottann betur í sögunni 😅 En þetta var mjög spennandi söguþráður og hélt mér við allan tímann! Verð greinilega hooked á svona “back in time” sögufléttu - eins og þessi bók kemur inn á. Allskyns fortíðardraugar og ósagðar sögur sem koma ekki fram fyrr en reynir á. Eitt sem situr líka eftir er persóna Baldvins sem minnir mig smá á Hodor úr GOT. Án þess að segja of mikið þá held ég að hann hafi verið uppáhalds persónan mín í þessari bók 😌 Þangað til næst!
Alltaf tilhlökkun að lesa bækurnar hennar Evu Bjargar. Þessi stóðst væntingar. Þræðirnir fléttast vel saman og allir eru grunsamlegir. Elma lögreglukona er trúverðugur karakter
Þrjár og hálf stjarna. Sagan var alltaf mjög spennandi og hélt manni alveg límdum við bókina. Ég var samt alltaf að vonast til að hún myndi enda með meira plotti en hún gerði. Maður var alltaf nokkrum blaðsíðum á undan að fatta hvað væri að fara að gerast. Fannst líka smá holur í plottinu en Baldvin var málaður upp sem eitthvað skrímsli en svo í endan voru allt það afsannað og hann átti bara að hafa slegið son sinn einu sinni en hann hótaði samt mömmu Kristófers að hann myndi drepa hann? Finnst það ekki meika sens miðað við að hann átti að hafa verið vondi karlinn sem var síðan bara verið að ljúga upp á. Annars las ég þessa bók á einum degi og fannst hún mjög spennandi eins og allar bækurnar hennar Evu og ég mun klárlega lesa næstu jólabók líka.
This entire review has been hidden because of spoilers.
📚 Eva Björg er klárlega einn af mínum uppáhalds höfundum!! Hún skrifar sögur svo meistaralega vel, stuttir kaflar út frá mörgum sjónarhornum og maður getur ekki lagt bækurnar frá sér! Virkilega gott glæpaplott en dýpt persónanna og flóknar fjölskyldutragedíur og flækjur gera það að verkum að maður sogast inn, án þess að þetta verði ruglingslegt og það sé erfitt að fylgjast með! Bíð spennt eftir næstu bók! 👏
Geggjuð! Mjög grípandi, hámlesin á innan við sólarhring og ég þurfti alveg að neyða mig til að hætta að lesa í gær og fara út að hitta fólk. Með betri íslenskum glæpasögum sem ég hef lesið. 4 stjörnu því hún var þrátt fyrir þetta ekki það góð að ég muni einhvern tímann lesa hana aftur, sem er viðmiðið mitt fyrir 5 stjörnur.
Ein af betri bókum Evu. Frábært plott, smá hrollvekja og góður og trúverðugur vinkill inn í persónulega líf Emblu og Sævars. Áhugaverðar aukapersónur og sem allar eru grunsamlegar að einhverju leiti þó að mér finnist lesendur aðeins vera blekktir að ákveðnu leiti. Upplifði smá svik varðandi það í lok bókar. Fannst þetta annars trúverðug bók og spennandi fram á síðustu blaðsíðu.
Besta íslenska glæpasaga sem ég hef lesið til þessa. Fléttan góð og alls ekki fyrirsjáanleg, hélt mér fram á síðustu síðu. Ekki bara glæpasaga heldur örlagasaga.
Fór alveg með mann nokkra hringi í ásökununum og eftir að aðal plottið komst upp voru ennþá 90 bls eftir, þar sem 3 önnur sub-plot voru afgreidd. Rosalegt.
Eva Björg klikkar ekki! Gaman að fá Elmu löggu og Sævar aftur og fléttan er prýðileg. Ég las þessa á þremur kvöldum - gat ekki hætt í endann. Mæli með!