Jump to ratings and reviews
Rate this book

Ég færi þér fjöll

Rate this book
Manuel er kominn til Íslands þar sem hann hefur leigt herbergi hjá eldri hjónum. Á sama tíma er Sigyn á leið til Spánar. Ferðalög þeirra virðast í fyrstu ótengd og tilviljunum orpin – eða hvað? Eftir því sem sögunni vindur fram kemur í ljós að ekkert er sem sýnist og fortíðin lifnar við. Ný saga frá höfundi Karítas án titils.

Ég færi þér fjöll er áleitin og sterk skáldsaga um mátt ástarinnar – og magnleysi, um tilviljanir og hvernig stundarákvarðanir draga dilk á eftir sér; og ekki síst að ekkert er jafnflókið og tilfinningalíf manneskjunnar.

Kristín Marja Baldursdóttir er einn vinsælasti rithöfundur landsins. Hún sló í gegn með fyrstu skáldsögu sinni Mávahlátur og með bókunum Karítas án titils og Óreiða á striga eignaðist hún stóran hóp lesenda og aðdáenda, enda eru þær í hópi dáðustu skáldsagna aldarinnar og löngu orðnar sígildar.

219 pages, Hardcover

First published January 1, 2024

Loading...
Loading...

About the author

Kristín Marja Baldursdóttir

25 books134 followers
Kristín Marja Baldursdóttir was born on January 21, 1949 in Hafnarfjörður. She graduated from Iceland's Teacher Training College in 1970 and received a B.A. degree in German and Icelandic from the University of Iceland in 1991. Kristín studied German at the Goethe Institut in Bremen in Germany from 1979 - 1980, took courses in education in Denmark 1985 - 1986 and a journalist course in Germany in 1992. She taught at the primary schools in Reykjavík from 1975 – 1988. In 1988 Kristín Marja switched jobs and started working as a journalist for the daily Morgunblaðið until 1995.

Kristín Marja's first novel, Mávahlátur (Seagull's Laughter) was published in 1995. The book was adapted for the stage and shown in the Reykjavík City Theatre in 1998. The novel was also filmed by Ágúst Guðmundsson in 2001 and received many awards at the Icelandic Edda-festival that year (The Icelandic film and television prize). Kristín Marja has since published other novels, a short story collection and written the biography of writer Vilborg Dagbjartsdóttir, Mynd af konu (Picture of a Woman), published in 2001.

Kristín Marja Baldursdóttir lives in Reykjavík. She is married with three grown daughters.

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
8 (5%)
4 stars
29 (19%)
3 stars
80 (54%)
2 stars
24 (16%)
1 star
5 (3%)
Displaying 1 - 21 of 21 reviews
Profile Image for Sara Hlín.
500 reviews
November 19, 2024
Tvær miðaldra manneskjur eru leiddar saman á snilldarlegan hátt í þessari fallegu sögu sem gerist annars vegar á Íslandi og hins vegar á Spáni. Misskilningur getur breytt lífinu þínu og hér sýnir Kristín okkur hvað það er hættulegt að vera sífellt að reyna að lesa í meiningu annars fólks.

Hver blaðsíða uppfull af fallegum setningum. Klàrlega ein af uppáhalds bókum ársins.
Profile Image for Védís Fonn.
6 reviews
December 30, 2024
Mér finnst Kristín Marja skrifa fallega og hef lesið flest eftir hana. Ég var þó ekki hrifin af þessari bók, þunnur söguþráður og frekar langdregin að mínu mati.
Profile Image for Vala Hunboga.
69 reviews2 followers
December 30, 2024
Kristín Marja er uppáhalds rithöfundurinn minn. Mögulega var ég því með of háar væntingar til bókarinnar. Sér í lagi vegna þess að bókin fjallar um ferðalag til Spánar og í fjalllendi Spánar sem er mitt helsta áhugasvið. Þegar ég las Karítas bækurnar fékk ég reglulega samviskubit yfir að vera að lesa bækur sem rithöfundur hafði þurft að leggja svona gríðarlega mikla vinnu í. Í Karítas bókunum lifna persónur og umhverfi við. Við lestur bókanna líður manni einsog maður sé staddur á sveitarbæ á Vestfjörðum, þröngum strætum 15 hverfis Parísar osfrv. Heimildarvinnan sem fór í þessar bækur var greinilega gríðarleg og Kristín greinilega kynnt sér svæðin sem hún skrifaði um í þaula.

Hér að neðan eru spoilers

Þessi bók var því miður með mjög þunna persónusköpun og söguþráð. Bókin fjallar um tvo fertuga einstaklinga en oft fannst mér ég vera að lesa um fólk yfir sjötugu. Þau nefna það hvað eftir annað hvað þau séu orðin gömul og miðaldra. Manuel er frá Spáni og hefur ekki talað við fjölskyldu sína í tuttugu ár. Ástæðan sem gefin er upp er mjög þunn og mjög ótrúverðugt að hann hafi virkilega hætt að tala við fjölskylduna sína. Það hefði eitt og sér átt að flagga rauðum flöggum í huga Sigyn sem er hin aðalpersónan. Þau voru saman í fjórar vikur þegar þau voru c.a. 19 eða 20 ára og hafa ekki hist síðan. Sem lesanda fannst mér heldur ótrúverðugt og í raun krípý að þau væru enn með hvort annað á heilanum. Það hefði kannski verið skiljanlegt ef þau hefðu verið saman í tvö ár eða ef þau væru yngri og styttri tími liðinn frá því að þau voru saman. Persónurnar segja frá mörgum atburðum sem þau hafa upplifað en lesandinn er ekki að upplifa marga atburði í bókinni. Ég var spennt fyrir lýsingum frá Valencia og fjöllunum í kring en höfundi tókst ekki jafnvel að lýsa því umhverfi og í öðrum bókum eftir hana.

Það voru margar klisjulegar setningar í bókinni. Til dæmis: Ástin er einsog Völundarhús og ég villtist á leið minni út. Annars er þetta léttlesin bók sem er þægilegt að renna í gegnum.
Profile Image for Ásta Melitta.
370 reviews2 followers
December 16, 2024
Aðalpersónurnar í þessari sögu eru Sigyn og Manuel, en þau áttu í ástarsambandi á Spáni þegar þau voru rúmlega tvítug. Dálítið kom upp á og leiðir þeirra skildu. Tveimur áratugum seinna geta þau endurnýjað kynnin. Þá er spurningin hvort ástin getur vaknað aftur eftir svona langan tíma eða dó hún kannski aldrei?
Mér fannst hugmyndin að þessari bók góð en ekki nógu vel unnið úr henni. Ég var pirruð á persónunum sem ekki virtust hafa haft dug í sér til leita uppi ástina miklu á þessum tveimur áratugum sem höfðu liðið frá því að þau hittust síðast. Ég var hins vegar ánægð með endinn og bókin er fallega skrifuð.
Profile Image for Jóna.
53 reviews
November 11, 2024
Snilld.
Snertir enn dýpra en Karitas án titils sem hefur verið mín uppáhalds síðan hún kom út árið 2005. Gæti fært rök fyrir máli mínu en held að best fari á því að skora á öll sem líkaði við Karitas að biðja um þessa í jólagjöf og taka sér tíma til að lesa og njóta. Eitt dæmi sem á sér tengingu á víð og dreif um söguna: "... setja öll mál í eina garnaflækju, byrja svo að vinda rólega upp á hnykil og þykjast ekkert muna hvað þær sögðu eða gerðu." (bls. 134)
Mínar dýpstu þakkir til Kristínar Mörju Baldursdóttur.
Profile Image for Thorunn.
479 reviews
January 14, 2026
Nokkuð skemmtileg saga, þó margt sé ótrúverðugt við persónurnar.

Það er flott hvernig Kristín spilar með andstæðurnar á milli Íslands og Spánar - kalt á daginn hér og kalt á nóttunni á Spáni og fleira. Og margar mjög fallegar setningar á víð og dreif.

En þau voru bæði frekar pirrandi persónur, Sigyn og Manuel. Eins og að þurfa að útkljá hver á að sjá um uppþvottinn á öðru stefnumóti eða svo.

Mér fannst hins vegar endirinn vera flottur - þetta gat ekki orðið að einhverju rósrauðu skýi sem þau svifu á.
60 reviews
November 27, 2024
Tvær hliðstæðar sögur sem fléttast saman. Fjöllin geta sameinað og sundrað. Hversu lengi gefst tími til að laga fortíðina? Þarf að laga hana? Kristín Marja gefur ekkert upp fyrr en í lokin en er þó enn von? Og hvort tengist vonin sameiningu eða sundrun? Eða bara sátt við eigin tilveru?
This entire review has been hidden because of spoilers.
Profile Image for Brynhildur Þórarinsdóttir.
28 reviews
January 18, 2025
Yndislegt að lesa hana Kristínu Marju eins og alltaf. Tek með mér setninguna “Þau voru engin ástfangin ungmenni lengur, þau voru miðaldra fólk með lífsreynslu sem gerði þau sérvitur, jafnvel stygg, ef ekki bara geðill”. Enginn nær að lýsa fólki eins og hún.
318 reviews4 followers
January 5, 2025
Mér fannst þetta mjög hugljúf lesning. Vel skrifuð eins og við er að búast af höfundi. Maður var stundum alveg að missa sig yfir viðbrögðum aðal sögupersóna. Og hugsaði þá, er ekki í lagi með þig!!

Mæli alveg með,þessari bók.
Profile Image for Viktoria Omarsdottir.
8 reviews1 follower
January 14, 2025
Skemmtilega skrifuð bók en þó örlítið langdregin á köflum. Var alltaf pirruð út í báðar aðalpersónurnar sem voru í því að misskilja og leggja meiningu í orð annarra.
Profile Image for Kitta Pálsdóttir.
260 reviews4 followers
February 15, 2025
Ekki ein af þeim bestu frá höfundi en bara fínasta saga 😃👍
This entire review has been hidden because of spoilers.
Profile Image for Anna Hardardottir.
84 reviews
April 27, 2025
Falleg bók, byrjar frekar hægt og týndi smá þræðinum en svo fór þetta allt að smella saman.
Profile Image for Svava Ólafsdóttir.
92 reviews2 followers
January 22, 2026
Fyrir lesanda sem er í fýlu út í ástina var ekkert sérstaklega gaman að lesa þessa bók. Sem betur fer eru sögupersónurnar líka í fýlu út í ástina svo það var plástur á sárið. Annars var bókin fín
This entire review has been hidden because of spoilers.
89 reviews
January 18, 2025
Sagan um Sigyn og Manuel byrjar vel, fær síðan á sig farsakenndan blæ og þynnist út í lokin. Átti von á þéttari sögu frá þessum góða höfundi.
Displaying 1 - 21 of 21 reviews