Jump to ratings and reviews
Rate this book

Geir. H. Haarde: ævisaga

Rate this book
Ævisaga Geirs H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra er stórmerkileg og sætir tíðindum. Geir var einn þekktasti stjórnmálamaður þjóðarinnar um áratuga skeið á tímum mikilla breytinga. Í opinskárri ævisögu sinni veitir hann einstaka innsýn í baksvið stjórnmálanna en skrifar jafnframt af einlægni um einkalíf sitt.

„Fáum dögum síðar skrifar Steindór afi minn mömmu í Noregi að amma mín hafi loks ákveðið að segja mér tíðindin og hann sé viss um að það hafi verið eins vel gert og hægt var miðað við aðstæður.“

Í opinskárri ævisögu sinni veitir Geir einstaka innsýn í baksvið stjórnmálanna, meðal annars mánuðina örlagaríku haustið 2008, og er óhætt að segja að þar komi ýmislegt á óvart. Hann fjallar einnig ítarlega og gagnrýnið um landsdómsmálið.

Geir skrifar af einlægni um einkalíf sitt, uppvöxt í Vesturbæ Reykjavíkur, MR og námsár í Bandaríkjunum en einnig dramatíska atburði úr æsku sem hann hefur aldrei rætt opinberlega áður, þar á meðal viðkvæm fjölskyldumál.

Geir styðst við margvísleg gögn úr sínu einkasafni – sendibréf, tölvupósta, símskeyti, smáskilaboð, minnisblöð og dagbækur en einnig myndir. Fæst af því hefur áður komið fyrir almenningssjónir.

Ævisaga Geirs H. Haarde er stórmerkileg og sætir tíðindum.

567 pages, Hardcover

Published October 26, 2024

8 people are currently reading
13 people want to read

About the author

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
10 (25%)
4 stars
22 (55%)
3 stars
8 (20%)
2 stars
0 (0%)
1 star
0 (0%)
Displaying 1 - 5 of 5 reviews
Profile Image for Benedikt Johannesson.
97 reviews5 followers
December 1, 2024
Stjórnmálaferill Geirs H. Haarde er einstakur fyrir stjórnmálamann hér á landi. Hann byrjaði með afar hefðbundnum hætti fyrir ungan, framagjarnan Sjálfstæðismann og allt var eftir bókinni þar til hann varð forsætisráðherra eins og að var stefnt. Svo tók ferillinn snögga 180° beygju, kannski brotlendingu. Endirinn varð svo aftur eins og ekkert hefði í skorist, rétt eins og mátti búast við í upphafi.

Geir segist hafa verið tregur til að skrifa ævisögu, það hefði ekki verið á dagskrá hjá sér. Svo höguðu örlögin því til að það varð næstum óumflýjanlegt. Því ber að fagna útgáfu bókarinnar, því sannarlega var þörf á því að birta hlið Geirs á þeirri orrahríð sem hófst árið 2008 og lauk ekki fyrr en mörgum árum síðar.

Flestir hafa eflaust mestan áhuga á því að lesa frásagnir hans af Hruninu og landsdómsmálinu, máli sem verður þeim sem að því stóðu til ævarandi skammar. Þess vegna kemur á óvart að frásagnir af persónulegum málum Geirs eru með því dramatískasta sem bókin fjallar um.

Frásögnin er lipur og einlæg. Hann hefði vel getað sagt meira um ýmsa sína samverkamenn án þess að tala illa um þá heldur aðeins með því að segja hlutina eins og þeir voru (og eru). Í bókinni kemur oft fram að vinátta er lítils virði í pólitíkinni, sem gildir jafnt um samherja og andstæðinga. Sumir þeir sem ákærðu Geir og vildu dæma hann til fangavistar töldu að þeir gætu áfram átt við hann vinsamleg samskipti eins og ekkert hefði í skorist. Ákafi margra við að koma höggi á Sjálfstæðisflokkinn varð til þess að þeir færðu pólitískan ágreining inn í réttarsal í fyrsta og vonandi eina sinn í Íslandssögunni.

Mikill fengur er að þessari Ævisögu Geirs. Hann lítur ekki á sig sem mannkynsfrelsara eða trúboða heldur segir einfaldlega söguna frá sínu sjónarhorni. Þó að ég sé löngu mettur af frásögnum um Hrunið þá finn ég vel að nauðsynlegt var að þessi frásögn kæmi fram.

Ég skrifaði ítarlega um bókina á https://bjz.is/2024/11/30/thegar-olan...
Profile Image for Ingibjorg Bjorgvinsdottir.
12 reviews
April 12, 2025
þetta var áhugaverð bók en það er ábyrgðarhluti að skrifa ævisögu um sjálfan sig og sína sér þá ósérhlífni sem það þarf að meta sín eigin verk með gagnrýni. Ég bjóst við að fjarlægðin árin hefði leyft Geir að fjarlægja sig aðeins atburðunum og skoða af hverju fók bregst við með þeim hætti sem það gerir í bókinni. Ábyrgð sem fylgir þvi að vera við stjórnvölinn, ábyrgð sem fylgir því að halda fóki fyrir utan ákvarðanatöku, klíkuskapur. Svo er ábyrgð sérfræðinga en Geir er með framhaldsnám í hagfræði og fólk því en fremur treyst honum til að bregðast við með ábyrgum yfirveguðum hætti. Einnig fannst mér smá kaldhæðni að Geri hafi á sínum tími komið að nýjum stjórnsýslulögum en eiga mjög erfitt með að fara eftir góðri stjórnsýslu. Ég sé mörg dæmi um að pólitíkin fremur en góð stjórnsýsla ráði verkum og ákvarðanatöku líkt og tíðkast því miður en Einnig er Geri svo sár út í marga en virðist vera alveg ótrúlega grænn og jafnvel hræddur við ofurvaldið þegar kemur á DO. Það er því miður þar sem þessi ævisaga verður ósannfærandi. Þetta er pínulítið eins og lesa morgunblaðið það er oft ekki hvað er verið að fjalla um heldur hvernig er fjallað um málefnin og skortur á sjónar h0rnum. Einnig er stórt spurningarmerki við hvað er einfaldlega sleppt að kryfja til hlítar,eitthvað af því sem var t.d tekið fyrir í ævisögu Björgvins G. Sigurðarsonar. Ég hefði viljað sjá ævisögu eins og Guðni Th skrifaði um Gunnar Thoroddsen sem var mun ósérhllífnari. Eitt stykki 500 bls rannsókna skýrsla var eitthvað sem átti að læra af og ég sé ekki að það hafi verið pólitískt plagg eða persónuleg árás á einstaka þáttakendur, þvert á móti var þetta faglega vel unnin skýrsla. Góður pólitíkus viðurkennir ekki mistök af strategískum ástæðum, en góður sjálfsævisögu höfundur verður að geta gert það. Það er þess vegna sem þessi bók getur bara fengið þrjár stjörnur. Geir á hrós skilið fyrir góðan texta og hefur haft góða yfir lesara.
288 reviews4 followers
November 10, 2024
Ég var mjög spenntur að lesa þessa bók. Enda búinn að vera náinn samstarfsmaður Geirs í mörg ár, bæði sem skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu og ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu. Fylgdi Geir í gegnum hremmingar bankahrunsins allt þar til Geir lét af embætti og ný ríkisstjórn tók við. Við tók síðan sá farsi sem Landsdómsmálið var frá upphafi til enda þar sem ég var fyrst einn af fjórum embættismönnum sem Rannsóknanefndin tilgreindi sem sökudólga í bankahruninu en féll síðan frá því hvað okkur varðar.

Eðlilega var því mestur áhugi minn á þessum hluta bókarinnar. Það er mikill fengur að þessari bók þar sem sjónarmið Geirs sem var sá eini sem dreginn var fyrir landsdóm eftir þá hneisu sem Alþingi stóð fyrir gagnvart honum.

Í bókinni fer hann rækilega í gegnum alla þá málsmeðferð bæði í þingsal og eftir að þingið hafði afgreitt málið. Það var algjör hneisa hvað það leið langur tími þar til málið komst á dagskrá Landsdóms. Eins er mikill fengur að hans frásögn af meðferðinni í Landsdómi þar sem saksóknari Alþingis og formaður dómsins voru ein og sama manneskjan.

Ég hvet alla sem hafa áhuga á að kynna sér alla málavöxtu í þessu máli til að lesa þessa bók. Einnig er fróðlegt að lesa þann hluta sem snýr að persónulegum högum Geirs, æsku hans og áföll þegar hann missti bæði föður og bróður um svipað leyti. Frásögn af hans ferli á unga aldri er líka áhugaverð en kannski full ítarleg fyrir minn smekk.
Profile Image for Snorri Stefánsson.
83 reviews1 follower
September 22, 2025
Fín yfirferð yfir pólitík síðustu ára og skemmtil umfjöllun um lífið í gamla Vesturbænum á uppvaxtarárum GHH.

Sagan af samstarfinu við samfylkinguna og hruninu er mjög áhugaverð. Óheilindi samfylkingarinnar verða svo skýr frá þessu sjónarhorni og voru auðvitað með miklum ólíkindum, sér í lagi í Landsdómsmálinu.
Profile Image for Lovísa Ólafsdóttir.
8 reviews
July 23, 2025
Datt aftur inní Storytel, hámhlustaði 18 klukkutíma. Alveg mögnuð frásögn og gaman að Geir sjálfur las bókina.
Displaying 1 - 5 of 5 reviews

Can't find what you're looking for?

Get help and learn more about the design.