Jens Ólafsson Olsen býr við hrakandi heilsu. Hann gerir sitt besta til þess að koma sér á réttan kjöl en þegar hann reynir óhefðbundnar lausnir hefur það óvæntar og óvelkomnar afleiðingar.
Núna er ég (vandræðalega) mikill aðdáandi Braga Páls og ég var með ákveðnar hugmyndir um hvernig þessi bók yrði áður en ég byrjaði að lesa. Bjóst við að það yrði slatti af líkamshryllingi og öðru sem væri til þess fallið að láta lesandann engjast um og gubba aðeins upp í sig og síðan einhver undirliggjandi boðskapur. Þessi bók var allt öðruvísi en ég bjóst við. Vissulega var einhver smá viðbjóður til að láta lesandanum líða illa en það var í lágmarki miðað við fyrri bækur. Persónusköpunin er verulega góð og sömuleiðis söguframvindan (sem tók 180 gráðu beygju um miðbik bókar). Ég hefði aldrei getað séð neitt af þessu fyrir (nema náttúrulega viðbjóðinn). Ég er búin að hugsa mikið um þessa bók síðan ég lauk við lesturinn og núna þarf ég örugglega að bíða ógeðslega lengi þangað til ég get aftur lesið nýja bók eftir Braga. En svei mér þá, ég held að þessi rithöfundur sé að vaxa og dafna. Frábær bók, 10/10, mæli með.
Skemmti mér konunglega við lesturinn. Mjög óþægilegar myndir dregnar upp af fólki. Aðeins óraunverulegt hvað allt fólkið er rosalega ömurlegt. En aðalpersónan er snilld. Hefði viljað sjá fleiri kraftaverk. Og meira um það hvernig siðblindur maður upplifir samkennd í fyrsta sinn. Það hefði mátt kafa dýpra í það áður en hann missir vitið.
This entire review has been hidden because of spoilers.
Bragi Páll!! Þessi bók er snilld. Ég hló mikið við lesturinn en á sama tíma hugsaði ég um tilvist mannsins og hversu mikilvægt það er að vera með góða meltingu. Tilvalin bók að lesa á páskunum líkt og ég gerði.
Bragi Páll hefur einstakt lag á að skrifa algjöran viðbjóð og finna nýjar leiðir til að gera það í hvert sinn. Það var á einum stað sem ég varð að leggja bókina frá mér í smástund, vegna þess að ég hló svo mikið en var innilega misboðið á sama tíma, sem er einstök blanda af tilfinningum þegar maður les bók.
Þessi bók er stutt og snörp, fyndin, ógeðsleg, frumleg, skrítin og áhugaverð, allt í senn. Mér fannst hún aaaaaðeins missa flugið um miðbikið þegar presturinn er kynntur til sögunnar en sú persóna og hennar ævintýri vinna hressilega á og endirinn er, já. Best að hafa sem fæst orð um hann til að skemma ekki fyrir neinum.
Er búinn að segja pabba að HÆTTA að gefa mér Braga Pál en hann segir að þetta sé næsti Laxnes þó hann viti alveg ég þoli ekki Laxnes. Bragi hatar Ísland og allt sem er gott hér (sést bæði á bókum og hegðun hans) og svo er hann líka bara búinn að grilla á sér hausinn á hassi það finnur maður í hverju orði í þessari bók. ljót mynd framaná líka!
Jeminn eini þetta var skrautleg bók. Ekki uppáhalds Braga Pál en samt svo skemmtileg. Maður vissi aldrei hvert sagan var að fara og hvern hann væri að fara að hitta. Mæli með henni fyrir yndislestur, en ekki lesa hans fyrir kvöldmat
Finnst alltaf gaman að Braga og held þetta hafi verið uppáhaldsbókin mín sem hann hefur skrifað til þessa! Gleypti hana alveg í mig. Persónurnar vel heppnaðar, hafði mjög gaman að Jens og Pálínu
Það verður ekki tekið af Braga Páli að hann nær alltaf að hreyfa við manni, að lesa þessa bók svipar til þess að horfa á Klovn, það er alltaf eitthvað.
This entire review has been hidden because of spoilers.
Íslensku kennarar eru svo mergjaðir hvað í hellanum láta þau man lesa? Algjörlega mesta þvæla sem ég hef lesið á þeim tíma sem ég hef verið á þessari jörð