Jump to ratings and reviews
Rate this book

Maðurinn sem hataði börn

Rate this book
Sylvek býr hjá ömmu sinni sem tuðar yfir því að ekkert gerist í Reykjavík – ekki miðað við iðandi mannlífið í Barselóna þar sem þau bjuggu áður. En svo fer allt af stað.
Einhver fer að myrða unga drengi í hverfinu. Um svipað leyti flytur dularfullur leigjandi með ófrýnilegan hund heim til Sylveks. Sá segist hata börn. Inn í söguna fléttast frægur rithöfundur, reffileg blaðakona, lögga sem er hrædd við blóð, hin ógurlegu steratröll og síðast en ekki síst Sjónvarp Stasímon þar sem stendur til að kortleggja lífið í Reykjavík fyrir raunveruleikasjónvarpsþátt sem á engan sinn líka.

250 pages, Paperback

First published January 1, 2014

1 person is currently reading
6 people want to read

About the author

Þórarinn Leifsson

16 books8 followers
aka Thorarinn Leifsson.

Thorarinn Leifsson graduated as a fine arts painter from the Icelandic Academy of Arts in 1989. In the same period he worked as a street painter in Western Europe. After graduation from art school he worked as an illustrator, billboard painter, and graphic designer for decades. Leifsson is known for his imaginative books which have been published in various languages. Some of Leifsson's recent work is influenced by his experience as a tour guide in recent years.

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
8 (25%)
4 stars
10 (31%)
3 stars
6 (18%)
2 stars
8 (25%)
1 star
0 (0%)
Displaying 1 - 6 of 6 reviews
Profile Image for Magnús Jochum Pálsson.
281 reviews11 followers
May 28, 2022
Fór vel af stað með litríkum persónum, spennandi plotti og hnyttnum gróteskum stíl og húmor.
Formið er eins konar ung-glæpasaga með morðum, lögreglu og dularfullum undirheimum. Markhópurinn gefur höfundinum leyfi til að bulla og láta hlutina meika lítinn sens.

Eftir því sem á leið fataðist flugið, fléttan hélt manni ekki eins vel og persónurnar urðu þreyttar (sérstaklega persónan sem bókin heitir eftir).

Þvældur söguþráður leiðir svo að endastöð þar sem glæpurinn er leystur (á heldur leiðinlegan máta). Margt gott við bókina en sömu aðalpersónur hefðu eflaust notið sín mun betur í öðru samhengi en glæpasögu.
Profile Image for Védís.
98 reviews3 followers
November 4, 2014
Ég myndi segja að hún fái í raun 2,5 stjörnur frá mér. Mér líkaði hún á köflum, hún var hnyttin og ég flissaði og hún var ágætlega spennandi. Ádeilan í henni var áberandi en ekki nógu djúp til að hún gripi mig nógu vel, nema á einum stað í bókinni. Ég geri ráð fyrir að sú ádeila fari reyndar ofan garðs og neðan hjá yngri lesendum.

En bókin leystist upp í leiðindi sem mér líkaði ekki, leiðindi sem ég get ekki sagt hver voru án þess að gera spilli svo ég sleppi því. Sá hluti söguloka eyðilagði fyrir mér lesturinn algjörlega og ég varð bara pínu pirruð út í höfundinn að leyfa sér slíkt.
1 review
November 22, 2014
Láng besta bók Þórarinns til þessa. Las hana í einum rikk og skemti mér konunglega. Bókinn er full af ádeilu og sótsvörtum húmor.
Hún gerir það sem ekki svo margar barnabækur (ef hægt er að flokka bækur Þórarins sem barnabækur) gera , hún fær mann til að hugsa um ástandið í Íslenskum samtíma.
61 reviews2 followers
Read
January 19, 2020
Kids' books are pretty wild in Iceland. This one, for the 10-13 year old crowd, involves a serial murderer in Reykjavik who kidnaps lonely boys, dismembers them, and leaves bloody bits of their bodies in grocery stores around town.
Profile Image for Brynhildur Stefánsdóttir.
110 reviews2 followers
September 8, 2015
Mér finnst alveg á textanum að maður sé að lesa barna/unglingabók, söguþráðurinn bara nokkuð skemmtilegur en plottið mjög óraunverlegt og loðið í meiningum. En góður endir, sátt og hamingja það gleður alltaf hjartað.
Displaying 1 - 6 of 6 reviews

Can't find what you're looking for?

Get help and learn more about the design.