„Hringið í 112 eða … eða lögguna … pabba … eða bara einhvern … HJÁLP,“ öskraði Matthildur óðamála og átti í mestu vandræðum með að koma orðum að því sem þaut á ógnarhraða í gegnum hugann. Hún greip í Neptúnus en hann sýndi engin viðbrögð. Kesang sat sem fastast með krosslagða handleggi og ógnvekjandi augnaráð en bæði Olga og Smári seildust eftir símunum sínum. Móey Rögn hafði losað öryggisbeltið og lagst á gólfið, skjálfandi. Fimm unglingar aka inn í myrkrið með gps-hnit og óljósa leiðarlýsingu sem á að vísa þeim á heita laug úti í óbyggðum. Tunglið breiðir drungalega birtu yfir landslagið og engu þeirra er alveg rótt þegar þau stíga út úr bílnum. Þó hafa þau ekki hugmynd um hvaða ógnir bíða þeirra.
Þorgrímur Þráinsson er fæddur í Reykjavík 8. janúar 1959. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1980 og stundaði nám í frönsku við Sorbonne háskóla í París 1983-1984. Hann var blaðamaður hjá Fróða frá 1985 og ritstjóri Íþróttablaðsins og ritstjórnarfulltrúi barnablaðsins ABC frá 1989. Í lok árs 1996 var hann ráðinn framkvæmdastjóri Tóbaksvarnanefndar. Þorgrímur lék með meistaraflokki Vals í knattspyrnu frá 1979 til 1990 og gegndi fyrirliðastöðunni síðustu fimm tímabilin. Áður lék hann með Víkingi frá Ólafsvík. Hann varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari á knattspyrnuferlinum með Val og tvisvar sinnum bikarmeistari. Þorgrímur lék alls um 180 leiki í efstu deild og 17 landsleiki fyrir Íslands hönd. Þá varð hann bikarmeistari í frjálsíþróttum með FH árið 1988 en hann keppti í spjótkasti.
Þorgrímur hefur skrifað fjölda bóka fyrir börn og unglinga og var fyrsta bók hans, Með fiðring í tánum (1989), metsölubók á sínum tíma. Hann hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 1997 fyrir bókina Margt býr í myrkrinu og aftur árið 2010 fyrir bókina Ertu Guð, afi?. Fyrsta skáldsaga hans fyrir fullorðna, Allt hold er hey, kom út 2004.