What do you think?

Bylur
Bergur er hamingjusamur fjölskyldufaðir í góðri vinnu. Lífið er fullkomið þar til að sonur hans deyr og heiftin gagntekur hann. Hann er staðráðinn í að leita hefnda og beinist reiði hans að Öldu og syni hennar Styrmi. Vel falinn bakgrunnur Bergs kemur upp á yfirborðið og Alda og Styrmir eru í bráðri hættu. Spennan magnast þegar sannleikurinn kemur smám saman í ljós. Hver á raunverulega sök á dauða Daníels?
Bylur er meistaralega fléttuð spennusaga úr smiðju Írisar Aspar Ingjaldsdóttur. Fyrri bók hennar, Röskun, hlaut afar góðar viðtökur og er á leiðinni á hvíta tjaldið.
Bylur er meistaralega fléttuð spennusaga úr smiðju Írisar Aspar Ingjaldsdóttur. Fyrri bók hennar, Röskun, hlaut afar góðar viðtökur og er á leiðinni á hvíta tjaldið.
227 pages, Paperback
Published January 1, 2025
Ratings & Reviews
Friends & Following
Create a free account to discover what your friends think of this book!
Community Reviews
Displaying 1 - 5 of 5 reviews
October 5, 2025
Gleypti þessa í mig. Vel skrifuð, trúverðugir karakterar og góður söguþráður. Fannst höfundur vel að sér í perónusköpuninni og samtölin eðlileg. Lufsan hann Gunni og unglingurinn hann Styrmir svo flottir.
January 16, 2026
Myndi gefa þessari 3 1/2 ef það væri hægt.
Alda fannst mér leiðinleg persóna og manneskja sem ég myndi ekki nenna að umgangast.
Styrmir og Ragna vel skapaðar. Umhverfi trúverðugt, söguþráður spennandi og vel uppbyggður. Mæli með lestri á þessari.

October 27, 2025
Sat límd yfir bókinni. Fyrri bók Írisar Aspar var góð en þessi var töluvert betri. Þétt uppbygging, góð persónusköpun og óvæntur endir. Gott stöff!
October 29, 2025
Sagan var alveg spennandi - en samt fannst mér ögn of mikið af óþarfa texta sem ég nennti eiginlega ekki að lesa. Karakterarnir kannski ekki nógu skemmtilegir?
February 19, 2026
☆☆☆1/2 . Alltaf gaman að lesa eftir nýja höfunda. þessi kom skemmtilega á óvart.
Displaying 1 - 5 of 5 reviews