What do you think?

Morð og messufall
Sif hefur einföld markmið í lífinu. Hún vill bara halda foreldrum sínum á – eða að minnsta kosti nálægt – mottunni og hreppa prestsembætti svo hún geti tryggt syni sínum örugga framtíð. Fyrsta atvinnuviðtalið eftir útskriftina úr guðfræðinni endar þó með ósköpum þegar þau séra Reynir ganga fram á lík í altariströppunum. Í óðagotinu sem fylgir er Sif ráðin í tímabundið starf kirkjuvarðar og einsetur sér að sanna sig svo hún hljóti prestsvígslu í kjölfarið. En organistinn er hættur, bókhaldið í óreiðu og í ofan á lag virðist piltur úr ungmennastarfinu vera horfinn sporlaust. Hvað í ósköpunum var hinn látni, Kormákur Austfjörð, sérlegur aðstoðarmaður Reynis, að bralla á elliheimili hverfisins? Og hversu mörg boðorð er eiginlega hægt að brjóta í einni og sömu kirkjunni?
Morð og messufall er sprenghlægileg glæpasaga, full af eftirminnilegum persónum og óviðjafnanlegum uppákomum. Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir hafa getið sér gott orð sem barnabókahöfundar og hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín innanlands og utan en þetta er fyrsta bók þeirra fyrir fullorðna.

292 pages, Kindle Edition
Published June 6, 2025
Ratings & Reviews
Friends & Following
Create a free account to discover what your friends think of this book!
Community Reviews
Displaying 1 - 13 of 13 reviews
May 26, 2025
Fullkominn kósíkrimmi! Þetta er einstaklega vel skrifuð og skemmtileg bók, full af mennsku og hlýju. Fyndin, snjöll og spennandi, en það sem stendur upp úr er karaktersköpunin. Söguhetjan Sif er ljóslifandi og vinnur okkur strax á sitt band, aukapersónurnar eru hver annarri kostulegri (og meira óþolandi!).
January 13, 2026
Fyndin og skemmtileg bók og frábærir karakterar
February 10, 2026
Stórskemmtilegur kósý krimmi sem kom skemmtilega á óvart.
September 19, 2025
Skemmtileg bók. Gerist að hluta til á Arnarnesi og Grafarholti. Hlakka til að lesa næstu
June 23, 2025
Prýðileg skemmtun, vonast eftir framhaldi.
June 29, 2025
Hressandi bók með litríkum karakterum. Plottið gengur nánast upp, smá ósannfærandi ringulreið í lokin, en þá er þetta kósý krimmi og allt endar á góðu nótunum. Fín sumarlesning.
July 24, 2025
Rann virkilega vel og ansi fyndin, m.a. vegna skemmtilega ýktra persóna. Ég hló nokkrum sinnum upphátt.
Plottið alveg ágætt en ekki sterkasta hlið bókarinnar.
Plottið alveg ágætt en ekki sterkasta hlið bókarinnar.
July 29, 2025
Hlýleg og fyndin bók. Skemmtilegir karakterar, hlakka til að lesa meira um Séra Sif og hennar óborganlegu fjölskyldu
September 9, 2025
Kósý og fyndin og skemmtileg!!
September 14, 2025
Skemmtilegur og fyndinn kósíkrimmi.
January 6, 2026
Stórskemmtileg bók!
EDIT: Ok ég vissi ekki að það væri heill bókmenntaundirflokkur af kósýkrimmum, sem ætti samt ekki að koma á óvart þar sem ég þekki kósý fantasíur. Þýðir það að maður er þar laus við þunglyndu fráskildu söguhetjuna með fíknivanda og vandræðaungling?! Til í meira af því!!

Did Not Finish
October 31, 2025Passlega áhugavert léttmeti sem ég nenni ekki að eyða tíma í að lesa.
July 14, 2025
Ágætis kósíkrimmi.
Séra Sif er fínasti karakter en á köflum fannst mér hliðarpersónurnar detta í að vera of farsakenndar - fóru alveg smá í taugarnar á mér.
Ég spændi samt í gegnum bókina og skemmti mér bara vel þó að hún skildi ekki mikið eftir. Spennandi söguþráður og alveg nokkuð óvæntur endir.