Jump to ratings and reviews
Rate this book

Dagbók miðaldra unglings

Rate this book
Hvað gerist þegar nýskilin miðaldra kona með stórt skap arkar ákveðin út á stefnumótamarkað 21. aldarinnar?

Urður er nýskilin. Hún er komin yfir fertugt. Hún hefur sagt upp starfi sínu sem ósýnileg eiginkona og buguð móðir. Nú þarf hún að svipta rykinu af samskiptahæfileikum og öllum þeim sjarma sem legið hefur í dvala árum saman og taka stóra dýfu út í þann agnarlitla og grugguga poll sem íslenskur stefnumótamarkaður er. Þar svamlar hún án kúta en þó vopnuð óbilandi trú á sjálfri sér.

Dagbók miðaldra unglings er gamansöm skáldsaga af bláköldum veruleika konu sem þarf að finna sig á nýjan leik og hugsanlega eitthvað meira. Þetta er saga af samskiptum kynjanna á stafrænni öld, óþægilegum skilaboðum, vandræðalegum uppákomum, dauðum samtölum og brostnum vonum. Sigrún Elíasdóttir hefur áður skrifað ljúflestrarbækurnar um Eyrarvík sem slegið hafa í gegn hjá lesendum. Einnig hefur hún um árabil stýrt hlaðvarpinu Myrka Ísland, sem varpar ljósi á hörmungar og hamfarir í sögu Íslands. Dagbók miðaldra unglings er hárbeitt, glettin og stórskemmtileg saga þar sem segja má að rómantík og gaman mæti hversdagslegum hörmungum og hamförum miðlífskrísu og neðanbeltismynda.

Audiobook

Published July 21, 2025

Loading...
Loading...

About the author

Sigrún Elíasdóttir

7 books3 followers

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
7 (10%)
4 stars
13 (18%)
3 stars
36 (52%)
2 stars
10 (14%)
1 star
3 (4%)
Displaying 1 - 9 of 9 reviews
51 reviews
September 28, 2025
Skondin bók, frekar hrá. Mér fannst hún nú mesti gaurinn sjálf aðal söguhetjan ef hetju skyldi kalla.Hún aftengdi sig fyrirfram því sem hún leitaði að. Enda kom lítið út úr þessu hjá henni og ekki náði ég að tengjast henni mikið enda er èg meira en miðaldra sjálf og gat illa samsamað mig umfjöllunarefninu
46 reviews
August 19, 2025
Bráðskemmtileg bók sem lét mig virkilega kunna að meta manninn minn 😂
3.5 stjörnur en hækkað upp í fjórar hér
Profile Image for Aðalbjörg Bragadóttir.
64 reviews
February 20, 2026
Rant fertugrar konu sem fer aftur á stefnumótamarkaðinn. Fullt af hnyttnum vangaveltum en líka slatti af uppfyllingarefni. Þunnur söguþráður en ég hafði samt gaman af Urði og uppáferðum hennar.
Profile Image for Rosa Gudny.
695 reviews8 followers
April 5, 2026
Þrælgóð og heldur femínísk um deitmenningu og að þekkja sjálfa sig sem kona. Ég tengdi vel við svo margt sem Urður lendir í.
22 reviews1 follower
Read
May 21, 2026
Stórskemmtileg.
Truflar mig samt mikið þessi auka hljóð sem er verið að troða inn í lesturinn.
Profile Image for Ásdís Ósk Valsdóttir.
72 reviews2 followers
January 25, 2026
Mér fannst þessi frábær og spot on. Tengdi gífurlega vel við hana. Mæli með að karlmenn lesi hana og fái betri innsýn í hugarheim kvenna
Displaying 1 - 9 of 9 reviews