Jump to ratings and reviews
Rate this book

Eilífðarvetur

Rate this book
Siðmenningin leið undir lok. Aldir hafa liðið. Á einangraðri eyju sem eitt sinn hét Ísland ríkir varanlegur vetur, mannskæðir frostbyljir bresta daglega á og enginn kemst burt. Fortíðin hefur fallið í gleymsku og frumstæð ættbálkasamfélög draga fram lífið við nær ómögulegar aðstæður.

Sagnaþulirnir Tara og Breki sjá vonarglætu þegar þau hitta fyrir Maríu, fullstarfandi vélkonu sem grafist hafði undir rústum í fyrndinni en er nú fangi þeirra sem fundu hana. Botnlaus þekking hennar gæti komið lífsbaráttu fólks á réttan kjöl og jafnvel leitt til þess að leið fyndist yfir hafísinn. Í skjóli nætur bjarga sagnaþulirnir vélkonunni en í kjölfarið hefst flótti yfir vetrarríki þar sem aðeins eitt lögmál virðist gilda; að komast af, sama hvað það kostar.

152 pages, Hardcover

Published January 1, 2025

4 people are currently reading
17 people want to read

About the author

Emil Hjörvar Petersen

20 books27 followers
Emil Hjörvar Petersen is an Icelandic author of speculative fiction. After publishing two poetry collections, his praised post-apocalyptic fantasy trilogy about the Norse gods who survived Ragnarök, Saga eftirlifenda (Survivors of Ragnarök), made him known as a pioneer in the SF&F genres in Iceland. The trilogy was published in 2010-2014. Afterwards, Petersen turned to writing a crime-fantasy series, a combination of Nordic Noir, urban fantasy and Icelandic folklore. The story follows a broke and divorced medium and her psychic teenage daughter getting caught up in crime investigations connected to supernatural beings. The first book, Víghólar (Crimson Hills), was published in 2016 and turned out to be a hit, it was awarded and optioned for a TV-show by leading Icelandic producer Sagafilm. Two more novels have been published in the series along with short stories. In 2021, the major audiobook streaming service Storytel published a folk horror story by Petersen, Ó, Karítas, as a Storytel Original.

Being one of the founders of IceCon, the Icelandic fantasy, science fiction and horror convention, Petersen has worked with Reykjavik UNESCO City of Literature and has written educational material for schools focused on speculative fiction. Petersen lives in Kópavogur, Iceland, where he works on his upcoming novels.

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
3 (13%)
4 stars
13 (56%)
3 stars
4 (17%)
2 stars
2 (8%)
1 star
1 (4%)
Displaying 1 - 4 of 4 reviews
Profile Image for Hákon Gunnarsson.
Author 29 books162 followers
January 1, 2026
Nokkuð spennandi og kraftmikið eftir-heimsenda nóvella. Finnst hún kannski ekki ná Eftirlifenda þríleiknum en það er varla hægt að bera saman 150 blaðsíðna sögu við 1300+ blaðsíðna epík. Helsti gallinn er samt að finna í stuttu forminu. Hlutir gerast hratt og ört. Ég held að þessi saga hefði vel getað verið 300-400 blaðsíður og ég held að hún hefði verið betri fyrir vikið, en hún virkar alveg í þessu formi.
Profile Image for Tjalli Óðins.
62 reviews13 followers
December 29, 2025
Áhugaverð og auðlesin skáldsaga um Breka og Töru, þar sem þau þurfa að slæðast í gegnum frosið land, mikla hríðarbyli til að halda uppi sögum samlanda sinna.

Sagan sjálf ef full af hættum, sorg og kulda. Spennunni er haldið upp með nokkrum snúningum, áhugaverðu fólki, og ótrauður vilji fólks til að komast af.

Það yrði gaman að fá fleiri sögur í þessum heimi þar sem margar spurningar vakna við lesturinn.

Eini gallinn við þessa skáldsögu er að hún hefði geta verið betur ritstýrð. Það eru nokkrar málfarsvillur sem skyggja á annars flottan og góðan orðaforða höfundar.
Profile Image for Unnursvana.
404 reviews28 followers
December 31, 2025
Flott sögusvið, snyrtileg uppsett heimsuppbygging og átakleg atburðarás sem er verulega spennandi og sagan er mjög auðlesin. Það tekst vel að koma persónunum og grimmd heimsins til skila þó svo að sagan sé heldur of stutt. Ég hefði viljað stoppa stundum til að leyfa sögunni að anda. Atburðirnir gerast hver á fætur öðrum og persónurnar fljóta svolítið bara með svo að stundum nær maður varla að átta sig á því hvað er að gerast. Það passar þó við andrúmsloft sögunnar, en ef hún hefði verið um 100 blaðsíður lengri hefði hún getað verið aðeins dýpri.
61 reviews
December 26, 2025
Sagan er mjög athyglisverð og höfundur er greinilega hugmyndaríkur og hefur víðtæka þekkingu. En það skemmir fyrir hvað ritstíll og uppbygging setninga er um margt ábótavant. Ritstjórnar er þörf.
Displaying 1 - 4 of 4 reviews

Can't find what you're looking for?

Get help and learn more about the design.