Hvalbak er önnur ljóðabók Maó Alheimsdóttur. Skáldsaga hennar, Veðurfregnir og jarðarfarir, vakti mikla athygli þegar hún kom út árið 2024 en hún er fyrsta frumsamda sagan sem kemur út á íslensku eftir höfund sem lærði málið á fullorðinsaldri. Einstök ljóðabók þar sem greina má nýtt og ferskt sjónarhorn á íslenska náttúru og tungu.
Þetta er önnur bókin eftir Maó Alheimsdóttur sem ég les, hin var Veðurfregnir og jarðarfarir, og ég er virkilega hrifinn af þeim báðum. Þrátt fyrir að þetta sé ljóðabók en sú fyrri skáldsaga þá er viss þráður á milli þeirra. Báðar fjalla af nokkru leyti um hamfarahlýnun og samband okkar við náttúruna. Það er þó enn ítarlegra í Hvalbak finnst mér. Myndirnar sem hún málar eru mjög sterkar, en það er líka mikill leikur með tungumálið sem gerir bókina jafn góða og mér finnst hún vera. Verulega flott bók.