Jump to ratings and reviews
Rate this book

Silfurberg

Rate this book
Þegar Berglind fer í útilegu með vinkonum sínum órar hana ekki fyrir því að duldir kraftar hennar muni vakna úr dvala og leiða hana inn í framandi veröld.

Í Hásteinum, höfuðborg Álfheima, búa ljósálfarnir sig undir stríð. Svartálfadrottningin hefur ráðist á hvert vígið af öðru og nú steðjar hættan einnig að Mannheimum. Völva álfanna leitar aðstoðar meðal mannfólks í fyrsta skipti í aldaraðir og Berglind finnur sig knúna til að svara kallinu. Ljósálfarnir bjóðast til þess að þjálfa þær manneskjur sem búa yfir yfirnáttúrulegum hæfileikum og Berglind kemst að því að sýnir hennar gætu bjargað þeim öllum.

Það eru þó ekki allir jafn hrifnir af samstarfi álfa og manna og Berglind þarf að átta sig á því hverjum er treystandi.

412 pages, Hardcover

Published October 22, 2025

Loading...
Loading...

About the author

Sesselía Ólafs

2 books8 followers
Sesselía Ólafs lauk námi í leiklist og leikstjórn í London árið 2012. Síðan þá hefur hún leikið hérlendis og erlendis, á sviði sem og í kvikmyndum.

Hún er einn stofnenda bæði gríndúettsins Vandræðaskálda og leikhópsins Umskiptinga, en undir þeirra formerkjum hefur hún verið höfundur og í höfundateymum fimm leikverka. Þá hefur hún samið og leikstýrt tveimur verðlaunastuttmyndum og var valin bæjarlistamaður Akureyrar árið 2023.

Sesselía hefur einnig lokið BA gráðu í enskum bókmenntum, gefið út pastelritið Leiðslu og árið 2025 gaf Bókabeitan út hennar fyrstu skáldsögu, Silfurberg.

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
22 (66%)
4 stars
8 (24%)
3 stars
3 (9%)
2 stars
0 (0%)
1 star
0 (0%)
Displaying 1 - 3 of 3 reviews
Profile Image for Ásta Ólafs.
349 reviews26 followers
May 5, 2026
Stutta útgáfan:
Yndisleg íslensk fantasía sem kemur skemmtilega á óvart og nær að halda manni allan tímann. Mæli klárlega með fyrir alla!

Aðeins lengri útgáfan:
Ég er svo óheyrilega stolt af höfundinum, elsku bestu systur minni, Sesselíu Ólafs. Að skrifa fantasíu, hvað þá byrjun af seríu, er ekkert smá verk. En að gera það svona vel og ná að halda athygli manns þrátt fyrir það að maður er ekki mikill fantasíu-fan, er alveg ótrúlegt. Vel gert!
Ég hlakka til að lesa næstu bók og sjá hvernig þetta ævintýri þróast!
Profile Image for Ester.
3 reviews2 followers
November 11, 2025
Silfurberg eftir Sesselíu Ólafs er bók sem grípur lesandann á fyrstu síðu og sleppir honum ekki fyrr en í lokin. Hér er á ferðinni vönduð fantasíu-frásögn um yfirnáttúrulega hæfileika, framandi veraldir, samvinnu og traust. Höfundi tekst vel til að skapa þétta og spennuþrungna frásögn fulla af skemmtilegum og oft óvæntum söguvendingum. Persónusköpun er skemmtileg, samtölin lifandi og umhverfið töfrandi. Lýsingarnar eru myndrænar og hvert smáatriði þjónar framvindu sögunnar. Silfurberg er bók sem sameinar ævintýri og sjálfsuppgötvun á vandaðan hátt.
Displaying 1 - 3 of 3 reviews