Jump to ratings and reviews
Rate this book

Mamma og ég : myndir og minningar

Rate this book
Saga mæðginanna Kolbeins Þorsteinssonar og Ástu Sigurðardóttur rithöfundar. Ásta var þjóðþekkt sem rithöfundur og nánast goðsögn vegna skrifa sinna. Einkalíf hennar var þó enginn dans á rósum. Ásta glímdi við óreglu lengst af ævi sinni og barðist við þá djöfla sem fylgdu fíkninni. Börn hennar voru tekin af henni og send í fóstur

Kolbeinn segir söguna frá sjónarhóli barnsins og lýsir þeim mikla sársauka sem fylgir því að verða móðurlaus og sendur af hálfu barnaverndarnefndar til vandalausra og vita lítið um móður sína og ástand hennar. Hann lýsir einnig voninni sem hann ól með sér um endurfundi og sameiningu sem aldrei varð.

193 pages, Hardcover

Published October 1, 2025

2 people are currently reading
34 people want to read

About the author

Kolbeinn Þorsteinsson

2 books1 follower

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
5 (9%)
4 stars
28 (52%)
3 stars
18 (33%)
2 stars
1 (1%)
1 star
1 (1%)
Displaying 1 - 7 of 7 reviews
Profile Image for Harpa Hilmarsdóttir.
10 reviews32 followers
January 13, 2026
Þetta er mikilvæg bók sem á erindi við lesendur enda segir hún frá átakanlegum aðstæðum barna sem fá ekki að umgangast foreldra sína. Það gefur henni aukið gildi að foreldrarnir eru fólk sem Íslendingar þekkja og allavega þótti mér áhugavert að lesa þessa hlið eftir að ég las Minn hlátur er sorg eftir Friðriku Benónýsdóttur um Ástu Sigurðar.

Það hefði þó verið hægt að vinna betur úr sögunni með því að spekúlera aðeins meira, segja frá tilfinningum, hvaða áhrif þetta hefur haft á hinn fullorðna Kolbein og samskipti hans við systkinin fram á fullorðinsár. Kannski mátti hann ekki tala um það en þá hefði hann mátt nefna það það sé efni sem enn er of viðkvæmt að fara í. Þó að bókin segi mikla sögu þá skilur hún eftir of margar spurningar til að ég geti gefið henni fjórar stjörnur.

Profile Image for Unnur Lárusdóttir.
202 reviews7 followers
December 19, 2025
Áreiðanlega sorglegasta bók ársins. Barnið í leit að mömmu sinni sem aldrei kom. Hörð tilvera, en þau systkinin fengu þó að vera saman á Ökrum á Mýrum þar sem dýr og náttúra mynduðu þolanlegan ramma um oft erfitt líf. Ásmundur á Ökrum átti líka hlýjan faðm og gamla fólkið í Suðurbænum. Fallega upp sett bók og sterk saga um börnin hennar Ástu. Öl er böl.
Profile Image for Rebekka Jenný.
11 reviews
February 6, 2026
Mamma og ég. Myndir og minningar sem segja meira en mörg orð. 💔
falleg bók um minningar, móðurást og það sem lifir áfram í myndum!
Þung en falleg ❤️
Mæli eindregið með lestri þessara bókar, eins ævisögu Ástu Sigurðar
Displaying 1 - 7 of 7 reviews

Can't find what you're looking for?

Get help and learn more about the design.