Mögnuð fyrsta bók höfundar og ég átti svo sannarlega ekki von á að falla svona fyrir henni. Rauði þráðurinn eru vangaveltur um hvað sé í raun sannleikur og hvað ekki. Sannleikur eins getur verið lygi fyrir öðrum. Fannst Sif ná rosalega vel utanum dulinn harm systkinanna Hildar og Jóhannesar sem alast upp í rótleysi þar sem eina öryggið sem þau hafa er hvort annað. Flækjast á milli heimila þar sem fullur magi, hrein rúmföt og nesti í skólann er lúxsus. Æskan hefur afdrifarík áhrif á þau bæði, Hildur virðist forhert skrukka sem lokar á allar nánar tengingar á meðan Jóhannes, hávaxinn endurskoðandi í valdsmannslegum jakkafötum, lætur konu sína tala fyrir sína hönd, ber bætifláka fyrir gallaða móður og föður og virðist almennt vilja þóknast sem flestum.
Uppspretta sögurnnar, Dagbók Anniear Leifs, er flottur undirtónn og gaman hvernig Sif tengir líf Anniear við líf Hildar og lætur Hildi spinna í kringum þessa persónu sem alla tíð stóð í skugganum.
Svo má ekki gleyma húmornum sem er klárlega styrkleiki Sifjar nú sem endranær. Mér fannst alveg æðislegt að komast að því hvernig Sigríður Ugla hafi farið með fé sitt án þess að gefa meira upp um það. Hildur spyr sig: Hvort var Sigríður Ugla fórnarlamb eða móðir sem vanrækti börnin sín. Brautriðjandi eða ófreskja? Kannski í senn hvort tveggja og hvorugt. Skil Hildi vel að vilja ekki fyrirgefa.