Fimm gamlir vinir ákveða að kúpla sig út úr amstri hversdagsins og bregða sér um helgi út í eyjuna Grið. Ferðin tekur hins vegar óvænta stefnu þegar fréttir um mikinn gagnaleka fara að berast í gegnum stopult netsamband. Hvöss en glettin saga úr samtímanum.
„Af og til síðustu daga hef ég lygnt aftur augunum og velt því fyrir mér hvort þessi ferð, þessi eyja og allt sem fylgdi, hefði ekki bara verið einn stór misskilningur …“
Fimm gamlir vinir ákveða að kúpla sig út úr amstri hversdagsins og bregða sér um helgi út í eyjuna Grið. Á þessari eyðieyju hefur auðmaður byggt upp íburðarmikla aðstöðu þar sem gestir geta slakað á og aftengst snjallsímum og samfélagsmiðlum enda nær ekkert netsamband á eyjunni.
Barnlaus helgi í bústað með besta fólkinu, eins og Facebook-grúppa helgarinnar heitir, tekur hins vegar óvænta stefnu þegar fréttir fara að berast í gegnum stopult netsambandið um víðtækan gagnaleka í þjóðfélaginu.
Skemmtilega öðruvísi bók og lætur mann klárlega hugsa út í tæknina og hvaða áhrif hún hefur á mann. Hins vegar fannst mér bókin hafa meiri “potential” - varð fyrir vonbrigðum með síðustu kaflana.
This entire review has been hidden because of spoilers.
Skemmtileg samtímasaga þar sem gaman er að spegla sig í aðstæðunum. Nær einhvern veginn að snúa hinu hversdagslega amstri upp í spennusögu, næstum trylling. Fléttan reyndist meiri en ég bjóst við og hélt mér forvitinni til enda. Manni fór líka að þykja ósköp vænt um sögumanninn, sem er svolítið ólukkulegur en sympatískur, og persónugalleríið er litríkt og fyndið.
Rígheldur lesandanum. Góður hraði og forvitnileg premísa um vald snjalltækja og samskipti á gervihnattaöld. Breyskleiki og mennska og mikið af relatable fraseringum sem minnti hálfpartinn á hismið.
Frábær samfélagsrýni og skemmtilegur þráður. Fer með lesandann í gegnum allan tilfinningaskalann og vekur mann virkilega til umhugsunar. Geng svo langt að segja skyldulesning!
Spennandi frásögn sem kom sífellt á óvart með auknum flækjum. Auðvelt að setja sig í spor aðalpersónu. Fær mann til að hugsa um samskipti, bæði á netinu og utan þess.
Fær 3,5⭐. Hún hélt mér allan tímann. Fær mann til að hugsa hvernig nútímasamskipti eru. Góð persónusköpun og ég sá umhverfið vel fyrir mér. Fylgist með honum sem höfundi.