Jump to ratings and reviews
Rate this book

Vegur allrar veraldar: skálkasaga

Rate this book
Haustið 1479 kemur kona norður yfir Kjöl og teymir hest undir gömlum manni. Skáldið Sveinn döggskór Þórðarson er kominn í Reynistaðarklaustur til að deyja. Þó ekki fyrr en hann hefur skrásett sannleikann um atburðina í Rifi, þegar Englendingar drápu Björn Þorleifsson, hirðstjóra konungs á Íslandi. Vígið kveikti ófriðarbál innanlands og utan, og kona Björns, Ólöf ríka Loftsdóttir, hefndi bónda síns svo grimmilega að sögur hafa gengið um það allar götur síðan.

En hvað af því er satt og hvað er logið, og hverjum leyfist að segja söguna?

Löngu síðar, á tímum samfélagsmiðla og örbylgjupizza, reynir sagnfræðingurinn Eyjólfur Úlfsson að endurheimta akademískan orðstír sinn eftir að hafa óvart eyðilagt ómetanlegt fornrit. Þær hrakfarir leiða hann til Kaupmannahafnar, þar sem hann rekur sig eftir ólíkindalegri slóð handrita og miðaldaklæða í átt að sannleikanum um atburðina í Rifi.

Fimmtánda öldin er öldin sem týndist í Íslandssögunni, þegar þjóðin lenti skyndilega í hringiðu evrópskra stjórnmála og viðskiptahagsmuna. Hér stíga helstu persónur hennar ljóslifandi fram: riddarar og sjóræningjar, konungar, hirðstjórar og höfðingjar, en líka fólkið sem þjónaði þeim og reyndi að ávinna sér frelsi og frið á vægðarlausum upplausnartímum.


Vegur allrar veraldar – skálkasaga – er sjálfstætt framhald Hamingju þessa heims – riddarasögu, sem kom út 2022 og hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

472 pages, Hardcover

First published January 1, 2025

20 people are currently reading
78 people want to read

About the author

Icelandic author Sigríður Hagalín Björnsdóttir (1974) studied history in Reykjavík and Salamanca and journalism at Columbia University in New York and previously worked in Copenhagen before moving back to Reykjavík, where she lives with her husband, children, and stepchildren. Her bestselling debut, Island (2016), was nominated for the Icelandic Women’s Literature Prize in 2017. When she isn’t writing, Sigríður works as a journalist and television news anchor at the Icelandic National Broadcasting Service. Her highly anticipated third novel, The Fires, is a bestseller and viral hit in Iceland.

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
20 (35%)
4 stars
34 (60%)
3 stars
2 (3%)
2 stars
0 (0%)
1 star
0 (0%)
Displaying 1 - 7 of 7 reviews
Profile Image for Garðar Sigurðarson.
1 review
January 3, 2026
Sigríði tekst listilega að flétta saman frásagnir af hinum vonlausa sagnfræðingi Eyjólfi og ‘söguhetjunum’ Sveini döggskó og Sunnevu.

Stórskemmtileg lesning líkt og fyrri bókin.
297 reviews4 followers
January 9, 2026
Mjög áhugavert framhald af fyrri bók höfundar um valdabaráttu á Íslandi á 15. öldinni. Byggð upp sem skáldsaga á grundvelli handrita sem ekki hafi verið áður þekkt. Mjög læsileg og greinilega mikil heimildavinna að baki, ekki þó úr fyrrnefndum handritum!
41 reviews
January 1, 2026
Elsku kallinn hinn vonlausi Eyjólfur, sjálfmiðaður og rammalaus en líklega ágætis sagnfræðingur. Ég sveiflaðist á milli að þola hann ekki, vorkenna honum, skilja hann, eða taka hann naumlega í sátt. Það var ánægjulegt að vera samferða kvenmönnum sögunnar þó mér þætti frami Sunnevu full ævintýrakenndur, alls staðar fékk hún aðgang að ráðendum hvers vinnustaðar, en ég keypti það með jafnréttisgleraugunum, líkt og þeir sem á söguöld gátu kveðið sig til æðstu ráðamanna þá gat hún það með handíð og ráðdeild
Profile Image for Thorunn.
455 reviews
February 7, 2026
Framhald sögunnar um Ólöfu ríku á 15. öld, með svipuðu sniði og fyrri bók. Sögumaðurinn núna er saumakonan Sunneva sem er að skrá samskipti sín og skáldsins Sveins við Ólöfu og það sem á daga þeirrar allra drífur – á Íslandi og í Skotlandi, Englandi og Danmörku. Svolítið ótrúverðugt hvað Sunneva nær langt, en það skiptir svo sem ekki máli í heildarsamhenginu.

Mér fannst sagan ögn ruglingsleg, ég náði ekki alttaf að muna hvað hafði gerst síðsat í hverjum legg, þetta eru í raun 3 sögur. Og Eyjólfur sagnfræðingur er alveg jafn pirrandi og áður.

En ég er mjög hrifin af sögum frá þessu tímabili, svo ég er mjög sátt.
54 reviews
December 30, 2025
Vegur allrar veraldar - skálkasaga segir ótrúlega sögu um atburði 15. aldar á Íslandi sem lítið er vitað um. Frásögnin er litrík, marglaga og trúverðug. Fær lesandann til að hugsa um að einmitt svona einhvern veginn gæti þetta allt saman hafa verið. Sveinn Döggskór skrásetur atburði fyrir Ólöfu ríku Loftsdóttur og Sunneva Sigrúnardóttir segir sína útgáfu af sögunni með aðstoð nunnunnar Steinvarar í Reynistaðaklaustri.
Þessi bók er framhald af Hamingja þessa heims - riddarasaga, sem kom út fyrir þrem árum. Það hlýtur að teljast þrekvirki að skrifa þessar tvær bækur, samanlagt um 930 síður, og halda utan um svona stórt verk.
Ég hlakka til að sjá hvað höfundurinn skrifar næst!
Displaying 1 - 7 of 7 reviews

Can't find what you're looking for?

Get help and learn more about the design.