Í svartasta skammdeginu undirbúa Vaka, Kókos og pabbi sig fyrir sólarlandaferð. Þau ætla að heimsækja vatnsrennibrautagarð og belgja sig út af ís. En þegar þau koma auga á rammvillta leðurblöku grípur um sig skelfing og áform þeirra fljúga út í veður og vind. Óhrædd við myrkrið tekur Vaka afdrifaríka ákvörðun sem snýr veröldinni á hvolf.
HUNDRAÐ STJÖRNUR! Hahahah, svo fyndin og frumleg. Óvænt söguframvinda! Og skuggaleg (hrollur og smá ógleði en aðallega gleði). Ég tengi svo mikið við Vöku blöku. Rán Flygenring er snillingur með góðan smekk!
Í svartasta skammdeginu undirbúa Vaka, Kókos og pabbi sig fyrir sólarlandaferð því pabbi er að fara í hárígræðslu. Ekkert verður að ferðinni því það kemur rammvillt leðurblaka til Íslands og allt fer í háaloft.
Sannarlega allt öðruvísi barnabók, eða er þetta kannski bara bók fyrir fullorðin börn? Hárígræðsla, krufningar, vampírur og dökkar teikningar. Á einn fjögurra ára sem hreifst af, en var jafnframt svolítið hugsi yfir efninu. Hugmyndaflug dauðans.