What do you think?


Blái pardusinn
Dramatísk gamansaga um hlustun og athygli, sagnfræði og skáldskap. Streymisveita hefur gefið út hljóðbók sem er innblásin af ævintýrum íslenskrar konu í Evrópu í síðari heimsstyrjöld. Hér segir frá þremur hlustendum og baráttu þeirra við að halda þræði í frásögninni sem fer um víðan völl svo erfitt er að henda reiður á hvað er skáldað og hvað ekki.
96 pages, Hardcover
First published January 1, 2025
About the author
Sigrún Pálsdóttir
10 books28 followersSigrún Pálsdóttir is a writer and historian. Born in Reykjavík in 1967, she completed a PhD on the history of ideas at the University of Oxford in 2001, after which she was a research fellow and lecturer at the University of Iceland. She worked as the editor of Saga, the principal peer-reviewed journal for Icelandic history, from 2008 to 2016, and she has been a freelance writer since 2007. She first came to prominence as a writer of historical biographies. Her debut in 2010 was the acclaimed Þóra biskups (Thora: A Bishop’s Daughter), followed by Ferðasaga (Uncertain Seas) in 2010, the story of a young couple and their three children who were killed while sailing from New York to Iceland aboard a ship torpedoed by a German submarine in 1944. Her first novel, Kompa (That Little Dark Room), was released in 2016 and her second, Delluferðin, in late 2019. Pálsdóttir’s biographies have been nominated for the Icelandic Literary Prize, the Women’s Literature Prize and the DV Cultural Prize for Literature. Her book Ferðasaga was chosen as the best biography of 2013 by booksellers in Iceland. Kompa, her debut novel, was nominated for the Icelandic Women’s Literature Prize in 2016 and in 2019 was published in the US by Open Letter (University of Rochester’s literary translation press) under the title History. A Mess.
Ratings & Reviews
Friends & Following
Create a free account to discover what your friends think of this book!
Community Reviews
Displaying 1 - 27 of 27 reviews
December 1, 2025
fæ stjörnur í augun bara við að hugsa um þessa bók 🤩
Read
January 8, 2026Frumleg og sniðug hugmynd að sögu en ég einhvern veginn náði aldrei almennilega að detta inn í hana. Var alltaf að missa þráðinn sem var frekar fyndið svona miðað við efnistök. Naut mín betur í seinni hlutanum. Uppáhalds parturinn minn voru rök Elínar Helenu um hve skáldskapur sé mikilvægur til að þroska og þjálfa samkennd. Finnst sú umræða eiga svo vel við í dag — því það er eins og það sé fylgni milli minnkandi lesturs og samkenndar í heiminum 😐 spooky
March 6, 2026
Loksins! Blátt áfram, frumleg, vel fléttuð, fyndin og snörp. Konfekt. Las síðustu tvær síðurnar tvisvar. Þær voru geirnegling. Kann svo að meta stílinn. Langar flæðandi vel úthugsaðar setningar sem smeygja sér fimlega inn í vitund lesandans. Leið eins og ég væri í einhverskonar river rafting við þennan lestur. Takk.
Read
January 5, 2026góð nóvella sem ég vil að annar les svo ég get talað um hana og greint!! @followerz pls lesið
December 11, 2025
Ferlega fín! Skemmtilegur frásagnatmáti og óvæntur. Vel skrifuð, ekki klisjukennd og hreinlega hressandi nýbreytni. Kannski breyti ég yfir í 5* við nánari umhugsun því það er ekkert að annað en að mig hefði langað i aðeins meira. Samt gengur allt upp. Síðasta blaðsíðan er snilld!
Sé margt í mér í því sem sagt er um hlustendur hljóðbóka, eins og: "svo svæfa mætti miðaldra kerlingar, róa huga prjónandi kvenna, veita hraustu og kappsfullu fólki frið og tilgang þar sem það hleypur ... gengur ... eða flýgur milli landa" (bls.74)
Sé margt í mér í því sem sagt er um hlustendur hljóðbóka, eins og: "svo svæfa mætti miðaldra kerlingar, róa huga prjónandi kvenna, veita hraustu og kappsfullu fólki frið og tilgang þar sem það hleypur ... gengur ... eða flýgur milli landa" (bls.74)
February 21, 2026
*** 3.5? stjörnur? ***
mjög áhugaverð saga um hvernig fólk getur meðtekið sömu söguna á mismunandi veg eftir þeirra eigin lífsreynslu og persónuleika.
mjög áhugaverð saga um hvernig fólk getur meðtekið sömu söguna á mismunandi veg eftir þeirra eigin lífsreynslu og persónuleika.
March 2, 2026
Náði mér ekki, fannst sagan aldrei ná flugi, en innihélt skemmtilegar pælingar um skáldskap.
January 9, 2026
Mjög óvanaleg saga sem er skemmtileg pæling um hlutverk skáldskaparins og mörk hans. Ögraði og víkkaði amk mína hugsun - eins og góður skáldskapur gerir
October 6, 2026
sigrún er mikið klárari en ég, látum bara þar við sitja
December 18, 2025
Knöpp og kemur skemmtilega á óvart.
Litríkar sögupersónur og atburðir. Höfundur hefur gott vald á tungumálinu og fléttar ólíka þræði saman á listilegan hátt.
Litríkar sögupersónur og atburðir. Höfundur hefur gott vald á tungumálinu og fléttar ólíka þræði saman á listilegan hátt.
March 10, 2026
Bókin einstaklega falleg og góð í hendi. Síðurnar þykkar og nautn að fletta þeim. Sagan sjálf frumleg og öðruvísi. Við fylgjumst með þrem aðilum hlusta á sömu hljóðbókina á meðan þau sinna öðrum hlutum. Svona eins og maður gerir. Og sagan nær svo vel utanum það hvernig maður dettur inn og út, spólar til baka og þarf að rembast við að ná utanum söguþráðinn - eitthvað sem er margfalt auðveldara þegar þú lest bók. Hlustendur er misánægðir með bókina og taka ólíka hluti úr henni. Fara í að greina textann eins og mann langar svo oft að gera með öðrum en situr þess í stað oft einn eftir með sínar hugsanir.
Mér fannst smá opinberun að lesa þessar línur: "Skáldskapurinn hefur það fram yfir fræðilegan texta að gerta hitt lesandann í hjartastað, hreyft við houm og ýtt út á ystu nöf þar sem hann neyðist til að horfast í augu við sjálfan sig og sársaukafulla reynslu. Skáldskapurinn er líkn og eins konar leið til sjálfsþekkingar. Og að þessu leyti fellur hann aldrei úr gildi, kjarni hans stenst tímans tönn."
Mér fannst smá opinberun að lesa þessar línur: "Skáldskapurinn hefur það fram yfir fræðilegan texta að gerta hitt lesandann í hjartastað, hreyft við houm og ýtt út á ystu nöf þar sem hann neyðist til að horfast í augu við sjálfan sig og sársaukafulla reynslu. Skáldskapurinn er líkn og eins konar leið til sjálfsþekkingar. Og að þessu leyti fellur hann aldrei úr gildi, kjarni hans stenst tímans tönn."
December 3, 2025
Sigrún kemur með ferska sveiflu inn í flóðið í ár. Frumleg og sniðug bók sem heillaði mig. Höfundur rekur olnbogaskot í hljóðbókaneyslu og sjálfskapaða multitaskara. Bók Sigrúnar var ein sú sem ég hlakkaði hvað mest að lesa þessi jólin og ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Snöggt yfirlit yfir dómana hér bera með sér að lesendur sjá eitthvað að lengd bókarinnar. Ég sé það ekki sem galla því hér er mjög margt í gangi á fáum blaðsíðum, eins og oft áður í hennar bókum og Delluferðin er gott dæmi um slíkt verk. Karakterar ryðjast inn á sjónsarsviðið þar og heimta að taka pláss en er svo sturtað niður í klósettið nokkrum síðum seinna; geggjað stöff.
January 16, 2026
Ég er eiginlega mjög impóneruð af þessari bók og með lestri hennar skil ég vinsældir höfundar. Hún hefur laufleikandi tök á skáldskapnum, bókin rennur svo fljótt að ég las hana í einum grænum. Reyndar er hún svo fljótlesin að mér fannst ég oft missa þráðinn en mögulega er kona oft frek á skilninginn. Hins vegar langar mig gjarnan til að lesa þessa bók aftur og já barasta eiga hana til að geta skoðað hana betur (ekki margar jólabækur fá að komast upp í hillu). Bókin fjallar um skáldskapinn og er á köflum mjög meta en líka um lestur, sögur, ævi, sagnfræði og konur… eftir því sem ég náði í fyrsta lestri 🤓
March 21, 2026
Frábær saga, mjög skemmtilega pælingar um hvernig það er að hlusta á hljóðbækur þar sem maður dettur alltaf út öðru hvoru.
Er í raun fjórar örsögur – sagan í hljóðbókinni og sögur þeirra þriggja sem eru að hlusta á hana, saga bókmenntaprófessorsins Unnar, uppgjafa sagnfræðinemans Bjarna og tilvonandi kvikmyndagerðamannsins Elínu Helenu. Og allar sögurnar renna saman í lokakaflanum.
Líka fínar pælingar um muninn á skáldsögum og sagnfræðiritum og kröfurnar sem gerðar eru til þeirra og höfunda þeirra.
Er í raun fjórar örsögur – sagan í hljóðbókinni og sögur þeirra þriggja sem eru að hlusta á hana, saga bókmenntaprófessorsins Unnar, uppgjafa sagnfræðinemans Bjarna og tilvonandi kvikmyndagerðamannsins Elínu Helenu. Og allar sögurnar renna saman í lokakaflanum.
Líka fínar pælingar um muninn á skáldsögum og sagnfræðiritum og kröfurnar sem gerðar eru til þeirra og höfunda þeirra.
March 23, 2026
Virkilega vel fléttuð skáldsaga sem hverfist um hljóðbókina ,,Bláa Pardusinn" sem þrír lesendur lesa og daglegt líf þeirra fléttast saman við atburðarrás hljóðbókarinnar. Lesendurnir velta fyrir sér hver höfundur ,,Bláa Pardusins, Guðrún Jónsdóttir sé? Hver Lana Marteinsdóttir sé og hvort hún hefði verið til eða sé alfarið hugarsmíð höfundar? Lesendurnir þrír eru ,,bókmenntafræðingur", ,,sagnfræðingur" og ,,flugfreyja" í listnámi. Bókin verkar misjafnlega á þessar þrjár persónur. Ég las þessa bók tvisvar því þó hún sé stutt krefst hún fullrar athygli manns.
January 19, 2026
Frábær stíll, ég hafði svo mikið gagn og gaman að þessari bók að ég ætla að lesa hana fljótt aftur, vildi að ég væri í bókaklúbbi það væri svo gaman að ræða svona góðan prósa, léttan en svo alvöru eitthvað.
November 29, 2025
Ferlega óspennandi og snauð saga, hefði líklega ekki klárað hana nema fyrir það hvað hún er stutt.
January 2, 2026
Mjög skemmtileg framvinda og bókmenntafræðilegar pælingar.
January 12, 2026
Mm
Ekki fyrir mig
Mjög vel skrifuð þó
Ekki fyrir mig
Mjög vel skrifuð þó
January 15, 2026
Áhugaverð bók. Skemmtilega uppsett og vel skrifuð. Hún náði mér ekki alveg strax en seinni hlutinn er betri.
February 2, 2026
Mjög skemmtileg framan af, en finnst endinn smá tilgerðarlegur
February 22, 2026
Skemmtilega fléttuð nóvella!
April 19, 2026
3,5 fljótlesin og skemmtileg
May 9, 2026
Ágætis pælingar í lokin, en frekar sundurlaus og náði mér ekki.
June 20, 2026
Bráðskemmtileg og aðeins dýpri hugsun í henni en gengur og gerist.
Las hana í einum rykk, því er bæði stutt og hefur góðan hrynjanda.
Las hana í einum rykk, því er bæði stutt og hefur góðan hrynjanda.
July 14, 2026
Var í smá tíma að komast inní hana, fannt hún svo fléttast fallega og var mjög djúp þarna í lokin.
September 30, 2026
Blái pardusinn the hljóðbók the movie.
Displaying 1 - 27 of 27 reviews
























