Jump to ratings and reviews
Rate this book

Irpa

Rate this book
Eftir ítrekuð fósturlát þráir Edda tilbreytingu. Hún er orðin þreytt á vinnunni, íbúðinni, matarboðunum með vinkonunum og eilífum óléttutilkynningum þeirra … öllu. Þegar hún sér litla eyju á Austfjörðum auglýsta til sölu sannfærir hún Atla um að þar geti þau byrjað nýtt líf.
Á Varpey vex allt og dafnar, björgin eru full af fugli, brekkurnar þaktar berjalyngi og hafið í kring krökkt af fiski. Edda og Atli koma sér fyrir í litla íbúðarhúsinu og hefjast handa við að breyta hlöðunni í gistiheimili. Þegar Edda tekur að sjá hvítklæddri konu bregða fyrir telur hún fyrst að sér hljóti að hafa missýnst. Smám saman verður hún þó sannfærð um að þau séu ekki ein á eyjunni heldur deili henni með einhverjum sem vilji þeim illt, einhverjum sem hefur bæði líf og dauða í hendi sér.

Hildur Knútsdóttir er einn virtasti ungmennabókahöfundur landsins en hún hefur einnig slegið í gegn með nóvellum sínum fyrir fullorðna, ekki síst í hinum enskumælandi heimi. The New York Times útnefndi Myrkrið milli stjarnanna eina af tíu bestu hrollvekjum ársins 2024 og bókin hefur jafnframt verið tilnefnd til bæði Dublin-bókmenntaverðlaunanna og World Fantasy-verðlaunanna. Kvikmyndarétturinn að bæði þeirri bók og Irpu hefur auk þess verið seldur til erlendra framleiðslufyrirtækja

176 pages, Kindle Edition

First published January 1, 2026

Loading...
Loading...

About the author

Hildur Knútsdóttir

28 books358 followers
Hildur Knútsdóttir was born in Reykjavík, Iceland. She writes fiction for both adults and teenagers, as well as plays, screenplays and short fiction. Hildur is known for her evocative fantastical fiction and spine-chilling horror.

Her horror novella The Night Guest was chosen one of the best thrillers of 2024 by The New York Times. Her work has been nominated for The Locus Awards, World Fantasy Awards, The Dublin Literary Award and The Nordic Council Children and Young People’s Literature Prize, and has been awarded The Icelandic Women’s Literary Prize, The Icelandic Literature Prize, The Reykjavík Children’s Literature Prize for best original work and The Icelandic Bookseller’s Prize.

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
10 (23%)
4 stars
20 (46%)
3 stars
11 (25%)
2 stars
2 (4%)
1 star
0 (0%)
Displaying 1 - 7 of 7 reviews
Profile Image for Atlas.
209 reviews6 followers
April 22, 2026
Hildur klikkar ekki, hún hefur sérstakan hæfileika til að skapa spennuþrungið og óþægilegt andrúmsloft sem lætur mig alltaf fá gæsahúð. Ég virkilega sökk ofan í huga Eddu á meðan ég las, og það kom mér skemmtilega á óvart að Atli var bara frekar næs gaur, samband þeirra var svo sætt. Ég er sérstaklega hrifinn af því hvernig sagan fléttar saman þemu um frjósemi, mæður, líf, dauða og náttúruna með smá goðsagnakenndu kryddi. Ég er samt greinilega kominn með eitthvað ptsd þegar kemur að Hildi og gæludýrum, ég var að farast úr áhyggjum yfir Rebba alla bókina.
Profile Image for Viktor Logi.
160 reviews2 followers
April 6, 2026
Ágæt bók.

Hefði verið til í meiri hrollvekju eða bara öðruvísi hrollvekju atriði.
Það gerðist ósköp lítið meira en að kona í fjarska leit á hana.
Jafnvel Edda var orðin þreytt á konunni nær endanum og hunsaði hana bara.

Ég get sagt það að ég gæti án efa búið á Varpey án vandræða. Ég hefði bara hunsað þennan draug frá byrjun og ég væri ekki nógu forvitinn til að læra um fortíð draugsins, þetta yrði easy peasy!

Allt í allt, fín bók, auðveldur lestur, fýlaði karakter dýnamíkina milli Atla og Eddu ágætlega.

3☆
Profile Image for Þorbjörg.
42 reviews5 followers
March 11, 2026
Tilvalin bók fyrir þá sem fíla smá hrylling. Mjög vel skrifuð og fallega sagt frá!
Profile Image for Jakob Hannesson.
22 reviews1 follower
March 22, 2026
Allt of hæg atburðarrás og löngum tíma varið í að kynna lesendum barneignarvanda sögupersónanna. Heldur manni alls ekki við efnið fyrr en í allra síðustu köflunum.
Profile Image for Unnursvana.
419 reviews28 followers
April 28, 2026
Sagan byrjaði vel, persónunnar áhugaverðar og samband aðalparsins skemmtilega hversdagsleg, en uns við komumst lengra inn í sögunni hægist heldur of mikið á aðburðarásinni og spennan fjarar eiginlega bara út. Það gerist aldrei neitt meira en bara smá draugagangur. Í raun fannst vanta meira upp á hrollveku og drunga í söguna og meiri uppbyggingu að einhverju meiru. Mér leið alltaf eins og sagan væri í lausu lofti þó að hún var vissulega auðlesin og með skemmtilegum augnablikum eins og allar bækur Hildar.
Displaying 1 - 7 of 7 reviews