Vika 1 í nýja skólanum • Komast í slæman félagsskap. Smámál – allir eru hræddir við dópsala eins og mig. • Alls ekki fara í forprófið fyrir spurningakeppni grunnskólanna. • Skoða kennslumyndbönd í reykingum. • Alls, alls ekki láta undan tilraunum sætasta stráksins í skólanum til samskipta. Þótt hann sé með sítt hár. • Læra að nota fljótandi augnmálningu. Kaupa nóg af eyrnapinnum og hreinsivökva. • Gera þetta allt án þess að steypast í félagslega glötun, lækka í einkunnum eða lenda í vandræðum heima ... Játningar mjólkurfernuskálds er drepfyndin saga um fermingarstúlku á villigötum, bleikklæddar kennarasleikjur og svarthærða gothara, sæta spurningakeppnisnörda – og allar spurningarnar sem er svo erfitt að svara. Játningar mjólkurfernuskálds er fyrsta skáldsaga Arndísar Þórarinsdóttur.