What do you think?

Vertu úlfur
Þessi bók geymir magnaða frásögn af ferðalagi manns inn í heim stjórnleysis, heim sem sumir þekkja, margir óttast en allir ættu að leitast við að skilja betur. Saga Héðins Unnsteinssonar er öðrum þræði sigursaga en líka saga um baráttu við fordóma, kerfið og jafnvel tungumálið sjálft. Hvað er annars að vera heilbrigður? Hvernig losnar maður við „sjúk-dóm“? Vertu úlfur er einlæg, gagnrýnin og hispurslaus frásögn af falli og upprisu manns sem eitt sinn var greindur með geðhvörf.
Héðinn hefur starfað á sviði geðheilbrigðismála í tvo áratugi, sem sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu og hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, auk þess sem hann hefur kennt, haldið fyrirlestra og skrifað fjölda greina um þessi mál.
„Héðinn hefur ætíð veitt mér innblástur. Á ferðalagi sínu milli skynsviða, frá ljósi í dimmu og aftur til baka, hefur hann öðlast skýra sýn sem á erindi við alla.“
John Bowis, fyrrv. heilbrigðistráðherra Bretlands og talsmaður Evrópuþingsins á sviði heilbrigðismál
„Reynslusaga Héðins er miklu meira en persónuleg frásögn af ferðalagi einstaklings gegnum þjáningar, uppgötvun, skilning og bata. Bókin er einnig tilfinningaríkt og sannfærandi ákall um von, virðingu, frelsi og mannréttindi; einstaklingssaga sem heilbrigðiskerfið allt getur dregið lærdóm af.“
Benedetto Saraceno, prófessor í alþjóðaheilbrigðismálum við Nova univeristy í Lossabon og framkvæmdastjóri WHO í geðheilbrigðismálum

- GenresNonfictionAudiobook
192 pages, Paperback
First published January 1, 2015
Ratings & Reviews
Friends & Following
Create a free account to discover what your friends think of this book!
Community Reviews
Displaying 1 - 27 of 27 reviews
May 6, 2016
Vertu úlfur eftir Héðinn Unnsteinsson er algjörlega "must-reed" bók fyrir alla. Maður upplifir allan tilfinningaskalan við lesturinn, bæði hlátur, grátur, reiði og allt þar á milli. Sorglegt hvað þjóðfélagið er fullt af fordómum gagnvart geðsjúkum og hvað heilbrigðiskerfið er vanmáttugt gagnvart þessum einstaklingum. Ádeilan í bókinni er mjög mikil á einstaka heilbrigðisstofnanir og það er magnað hvað kerfið okkar getur mismunað sjúklingum.
November 16, 2022
Héðinn er frábær penni. Bókin er áhugaverð, sagan sönn og nayðsynleg lesning. Mér fannst bókin falleg að utan og innan.
May 7, 2025
Mjög upplýsandi.
April 10, 2021
Sérlega falleg bók með allan skalann af tilfinningum, sjálfrýni og auðmýkt.
January 14, 2017
ljómandi fínt hjá Héðni - áhugaverð bók og greining.
June 7, 2020
Þetta var ekki ánægjuleg lesning - til þess er sagan of erfið og of sorgleg. En þetta er bók sem allir ættu að lesa því ef við skildum öll aðeins betur hvernig geðraskanir geta farið með fólk gætum við örugglega veitt meiri stuðning. Þó ekki væri nema það að skilningur ætti að minnka fordóma. Þrátt fyrir stórkostlegar lýsingar á rússibanareiðinni mun ég aldrei geta skilið til fullnustu hvernig Héðni og öðrum í hans sporum hefur liðið en ég er þakklát fyrir að fá þetta tækifæri til þess alla vega að reyna að skilja.
November 7, 2021
Bókin geymir áhugaverða frásögn Héðins af andlegum veikindum og er lýsingin á maníu hans sérstaklega eftirminnileg. Hann dregur ekkert undan og lýsir vel hvernig líðan hans breyttist eftir því hvernig sjúkdómurinn herjaði á hann. Hann átti greinilega góða vini til að leita til, sem studdu hann í veikindunum, þótt hann hafi ekki alltaf verið auðveldur í sambúð. Mæli með þessari bók fyrir alla til að öðlast betri skilning á geðhvörfum.
Lífsorðin aftast eru líka góð áminning um hvað við getum gert til að bæta líðan okkar.
Lífsorðin aftast eru líka góð áminning um hvað við getum gert til að bæta líðan okkar.
June 4, 2020
Góð innsýn inn í líf manneskju með geðsjúkdóm.
March 11, 2021
Nauðsynleg bók fyrir alla að lesa.
March 21, 2021
Reglulega góð bók, hraðlesin og áhugaverð. Mæli með þessari ef fólk vill fá sjónarhorn af því hvernig er að lifa með geðsjúkdóma.
July 22, 2021
Mæli hiklaust með að lesa! Kom virkilega á óvart og mjög mikilvægur lærdómur.
August 3, 2021
Virkilega áhugaverð frásögn af andlegu ferðalagi, ef svo má að orði komast.
December 14, 2021
Virkilega flott og lærdómsrík frásög af maníu höfundar og hvernig hann tókst á við veikindi sín. Ádeila í íslenskt heilbrigðiskerfi og geðheilbrigðismál.
April 3, 2022
Góð bók. Mjög hrifin af ritstílnum og orðfærinu. Töluvert um endurtekningar en mjög fyrirgefanlegt.
July 12, 2022
Góð bók og mikill eye opener fyrir því hvernig ,,óvenjulegum” líður og við höfum öll okkar djöful að draga hvernig sem hann er. Elska lífsorðin 14!
June 15, 2023
Mjög góð og vel skrifuð
January 5, 2017
A wonderful book. Very insightful and full of wisdom.
February 27, 2021
Fallega skrifuð og af heiðarleika og virðingu fyrir öllum persónum sem birtast í sögunni.
Myndlíkingar sem auðvelt er að tengja við, lærði fullt um sjálfa mig við að hlusta á bókina. Lestur Sigurðar Skúlasonar er líka sérlega góður.
Myndlíkingar sem auðvelt er að tengja við, lærði fullt um sjálfa mig við að hlusta á bókina. Lestur Sigurðar Skúlasonar er líka sérlega góður.
May 31, 2015
Ansi mögnuð.
June 8, 2015
Hefur þú farið í svona ferðalag? hefur þú verið meðreiðarsveinn í svona ferðalagi? Þvílíkur rússibani og engu ofaukið.
Takk Héðinn.
Takk Héðinn.
Want to Read
January 5, 2017Frábær bókem á svo sannarlega erindi til allra
February 2, 2017
Powerful and personal story and well written.
January 4, 2019
Mögnuð saga. Gefur innsýn í líf þeirra sem eru að glíma við andlegar áskoranir.
Read
October 13, 2021Mjög góð
July 21, 2015
Mögnuð bók, skyldulesning
Displaying 1 - 27 of 27 reviews