Sjúkur læknir í sjúku samfélagi. Er hann rétti maðurinn til að fást við hinn allra erfiðasta sjúkdóm? Hvað hefur hann að gefa sjúklingum sínum? Og hvað sér hann þegar horfir sjálfur í spegil? Hlynur Níels Grímsson ætlaði að verða rithöfundur þegar hann var ungur maður en ákvað svo að vera praktískur og fara í læknisfræði. Nú stenst hann ekki mátið lengur og sendir frá sér skáldsögu þar sem reynsla hans sem læknir er í forgrunni. Enginn mun líta heilbrigðiskerfið sama auga eftir að hafa lesið Krabbaveisluna. Langt er síðan nýr höfundur hefur kvatt sér hljóðs með jafn hárbeittri og nístandi rannsókn á samfélagi sínu og Hlynur Níels gerir í þessari bók. Um leið er Krabbaveislan hrífandi skáldverk þar sem húmor og jafnvel fegurð bregður einnig fyrir í smásjá höfundar.
Framúrskarandi ádeila á sjúkt heilbrigðiskerfi. Ætti í raun að vera skyldulesning fyrir alla sem starfa innan þess og einkum og sér í lagi stjórnendurna þar. Ljóðrænn, skemmtilegur frásagnarstíll. Á köflum minnir ádeilan á House of God eftir Samuel Shem og er alls ekki leiðum að líkjast. Hlakka mikið til að lesa meira eftir höfundinn!
Hlynur Níels Grímsson kemur hér fram með sína fyrstu bók. Hlynur skrifar af miklum þrótti og sýnir mikla ritsnilli, ekki síst í ljósi þess að hér er um fyrsta verk höfundar að ræða. Það er greinilegt að reynsla höfundar sem krabbameinslæknis leiðir mann inn í heim sem fáir þekkja, veröld læknisins í stórum og oft á tíðum ómanneskjulegum spítala. Inn í þetta fléttast sjúkt þjóðfélag fyrir kreppu, framagirni, svik og launráð, einelti og framhjáhald. Hlynur skrifar oft óræðan texta og mjög ljóðrænan á köflum. Hann er oft harðneskjulegur, dómur um læknastéttina í Þjóðarsjúkrahúsinu er harður og óvæginn. Söguhetjan fetar ekki þann veg sem ætlast er til af ungum og metnaðargjörnum lækni og endar því á skjön við læknasamfélagið þegar miðjum aldri hefur verið náð. Augljóslega er oft fært í stílinn í bókinni en Hlynur hefur kunnáttu til að ganga ekki of langt og heldur sig oftast innan markanna. Eina ástæðan fyrir fjórum stjörnum í stað fimm er einfaldlega fjöldi stafsetningavillna í bókinni, sem lýtir góða bók. Þetta verður að skrifast á forlagið, þar sem einfalt villuleitarforrit hefði náð flestum villunum.