Jump to ratings and reviews

Harðindi

Steinn leggur ríðandi af stað úr bænum og ætlar aldrei að snúa aftur. Hann hefur misst trúna á framtíðina eftir að lífið í landinu fór snarversnandi á aðeins örfáum árum. Hrakinn og særður er hann á mörkum þess að gefast upp þegar loks sjást blikur á lofti.

Harðindi er spennandi og áleitin frásögn af ferðalagi manns og merar á nöturlegum tímum.

Vilhjálmur Pétursson hefur starfað við þýðingar síðan hann útskrifaðist úr ritlist við Háskóla Íslands. Harðindi er fyrsta bók hans en sagan bar sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjum röddum, árið 2026.

90 pages, Kindle Edition

First published January 1, 2026

Loading...
Loading...

About the author

Ratings & Reviews

What do you think?

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
4 (20%)
4 stars
10 (50%)
3 stars
6 (30%)
2 stars
0 (0%)
1 star
0 (0%)
Displaying 1 - 9 of 9 reviews
Profile Image for Villi Neto.
47 reviews85 followers
June 22, 2026
Skemmtileg bók! Mikið komið inn í “litla” sögu.
Profile Image for Guðrún Gunnarsdóttir.
224 reviews7 followers
July 8, 2026
Mjög skemmtileg lesning og mikilvæg viðbót inn í íslensku bokmenntasenuna! Mjög gaman að sjá dystópíu í íslenskum heimi.

Höfundur snerti einnig á mörgum mikilvægum samfélagsmálum sem mér þótti gaman þó stundum var umræðan pínu “on the nose”. Held að bókin hefði grætt mikið á því að vera jafnvel alveg tvöfalt lengri… stundum gerðist allt svolítið hratt og hefði viljað jafnvel meiri dýpt, þó það sé ekki nauðsynlegt.

En mjög skemmtileg lesning sem ég mæli endregið með! Mjög vel skrifaður og “skemmtilegur” likamshryllingur líka sem ég kann alltaf að meta🤝
63 reviews
July 11, 2026
Þessi nóvella fær auka hálfa ⭐ stutt og snörp þar sem allskonar uppákomur eiga sér stað í frekar ömurlegu umhverfi eftirheimsenda veruleika
Profile Image for Einar Nielsen.
Author 16 books23 followers
June 7, 2026
Ég hafði gaman af því bókinni Harðindi. Hún setur upp einstakt andrúmsloft sem teymir lesandann í gegnum söguna. Hún er ekki löng og maður nær að renna í gegnum hana alla á einum eftirmiðdegi. Ég var svo heppinn að hafa hana með mér í flugvél og kláraði hana alla í einum rikk. Vilhjálmur stimplar sig hér inn í íslenskar bókmenntir og ég hlakka til að lesa það sem hann skrifar næst.
2 reviews1 follower
August 2, 2026
Sæmileg, en var ekkert ofsalega hrifin. Fannst ekki beinlínis vera söguþráður í henni, en samt athyglisverðar (og skuggalegar) lýsingar á umhverfi og andrúmslofti framtíðarinnar. Minnti um margt á Sólgos Arndísar Þórarinsdóttur, sem mér þótti hins vegar talsvert mikið betri en Harðindi.
Profile Image for MJ.
10 reviews1 follower
Read
June 7, 2026
Mjög spennandi og skemmtileg frumraun!
60 reviews
June 9, 2026
Ágæt og stutt afþreying. Stiklar á stóru, ekki mikil persónubygging.
Profile Image for Unnursvana.
436 reviews28 followers
July 4, 2026
Þar sem sagan er stutt og aðburðarásin er frekar snögg á sagan það til skrapa bara yfirborðið á mörgu sem það er að reyna að koma á framfæri og bíður ekki upp á sérstaklega mikla persónusköpun. Sagan skarar fyrst og fremst fram úr hvað varðar andrúmsloft og umhverfið sem hún nær að skapa en mér fannst lúmsk hryllings og dystópíska stemningin þarna skemmtileg og sagan er vissulega grípandi og auðlesin.
Displaying 1 - 9 of 9 reviews