Síðara gelgjuskeið Urðar stendur sem hæst. Þessum tíma þarf hún þó að deila með heimilislífi og heilsukvillum miðaldra konu. Skeiðvöllurinn hefur verið opnaður og hver gæðingurinn á fætur öðrum vill spreyta sig, með afar misjöfnum árangri.
Nú kynnist Urður hrokafullum ungfolum, minnislausum snillingum, suður-amerískum glæsimennum og öðrum lukkuriddurum, en fæstir hafa langan endingartíma. Það er helst að Hermaðurinn nái að brjótast inn fyrir hjarnið sem umlykur hjarta Urðar og takist að sýna henni hverju hægt sé að vonast eftir. Og koma henni þannig í sögulegt Ástand.
Ástand miðaldra unglings er önnur bókin í seríunni Dagbók miðaldra unglings, þar sem leyndarlíf miðaldra, fráskilinna kvenna er afhjúpað á berorðan og kómískan hátt. Hér heldur Sigrún Elíasdóttir áfram með sögu Urðar á sinn einstaklega gamansama en á sama tíma raunsæja hátt.