What do you think?


Hilma #1
Hilma
Hefðbundin sjálfsvígsrannsókn tekur óvænta stefnu þegar lögreglukonan Hilma finnur tengsl við fleiri sjálfsvíg og slys. Þótt þessi mál eigi rætur í fortíðinni er Hilma skyndilega komin í æsilegt kapphlaup við tímann og harðsvíraður glæpamaður er á hælum hennar.
443 pages, Paperback
First published April 29, 2015
Ratings & Reviews
Friends & Following
Create a free account to discover what your friends think of this book!
Community Reviews
Displaying 1 - 24 of 24 reviews
April 17, 2024
Kuuntelin tämän äänikirjana ja täytyy sanoa, et olin ihan sekaisin nimistä kun ne oli niin erikoisen kuuloisia omaan korvaan. Olin osan ajasta ihan pihalla, mut ymmärsin kuitenkin loppuratkaisun tullen koko kuvion. Ei ollut mitenkään omaperäinen tarina sinänsä. Aika perus dekkari.
November 15, 2022
Sagan er góð en oft eins og sá sem las hana á storytel nenni því ekki.
January 2, 2018
Frábær frumraun höfundar. Virkilega spennandi og vel skrifuð. Textinn svo lifandi að mér fannst ég allt eins geta verið að horfa á bíómynd. Hilma er ótrúlega heillandi karakter; hörð en samt svo mannleg og, að mér finnst, jafnvel viðkvæm. Greinilegt að þessi bók á sér framhald og ég get varla beðið eftir henni. Mæli með þessari. Vissi ekkert á hverju ég átti von þegar ég tók hana á bókasafninu þar sem ég hafði ekkert heyrt um hana. En ég dróst að kápunni og varð ekki fyrir vonbrigðum.
December 5, 2018
Sagan var valin glæpasaga ársins 2015 sem verður að teljast ágætis afrek, ekki síst þar sem hún er frumraun Óskars. Kraftmikil glæpasaga og spennandi. Skemmti mér ágætlega við lesturinn og hlakka til að lesa sjálfstætt framhald hennar, Blóðengil. Nokkuð hrá og málfarsvillur þó nokkrar sem skrifast bæði á höfund og yfirlesara.
February 21, 2024
Helt klart spännande, men ändå lite irriterande att Hilma är så himla duktig, förstår alla samband som ingen annan lyckas klura ut, och samtidigt är hon en rebell som inte följer regelboken. Fast finns det någon boksnut som gör det?!
July 10, 2018
Mjög góð. Hélt mér alveg í spennu. Frábær frumraun hjá Óskari, hlakka til að lesa meira eftir hann.
January 7, 2019
Hefði fengið 3,5 ef það væri möguleiki. Er ekki búinn að lesa fyrri bókina sem hefði líklega verið skemmtilegra. Pínu óraunhæfur söguþráður en samt alveg fín bók.
May 28, 2019
Geggjað flottur krimmi - hlustaði á Storytel og virkilega vandaður lestur.
July 3, 2019
Þetta var ágætisskemmtun en pínu ruglingslegt í lokin. Mér fannst ekki heldur alveg allir hlutir útskýrðir. Þorsteinn Bachman fær hins vegar fimm stjörnur fyrir lesturinn.
July 10, 2019
Ágæt spennusaga sem tekst ætlunarverk sitt: að vera góð dægradvöl.
May 3, 2020
Spennandi og góð. Nokkuð löng, en mér leiddist aldrei.
November 5, 2020
Fínn krimmi.
June 17, 2021
Frábær krimmi! Sannfærandi persónur, hröð atburðarás og breitt sögusvið. Besta íslenska glæpasaga sem ég hef lesið og þá er mikið sagt -
January 29, 2022
Fín afþreying og áhugaverðar persónur. Fannst hún aðeins langdregin og hefði viljað aðeins meiri dýpt
March 17, 2022
Gef henni 5 stjörnur vegna þess að hún kom skemmtilega á óvart. Skemmtileg og minnir helst á hollywood mynd. Skemmtileg sem hljóðbók með lifandi lýsingum.
September 6, 2022
Geggjuð bók
August 1, 2023
Spännande inledning då handlingen växer fram. Sen en långtråkig mitt och så ett spännande bladvändarslut. Lite mörk som de flesta isländska deckare, vilket jag gillar.
February 20, 2024
Langdreginn en fín
March 31, 2024
Oikein kelpo dekkari, vaikka en juurikaan yleensä nauti järjestäytyneestä rikollisuudesta dekkareissa. Se oli tässäkin kompastuskivi, mutta mielenkiintoisen särmikäs päähenkilö kompensoi kivasti.
September 22, 2024
🎧 Spennandi glæpaflétta um lögreglukonuna Hilmu og vel lesin af Þorsteini Bachmann 👌 maður fær hroll þegar hann talar fyrir glæpamanninn Vladas 😳
January 21, 2025
4 1/2⭐️ Mjög góð bók. Mér fannst hún spennandi allan tímann. Ekki mikið um eitthvað auka á milli aðal sögunnar.
September 21, 2015
Allt í lagi krimmi. Fínn þegar maður er að drepast úr kvefi. En söguþráðurinn gekk samt ekki alveg upp, ekki hægt að skemma fyrir öðrum með því að segja hvað það var.
Síðan fóru málfarsvillur afskaplega í taugarnar á mér - til dæmis " það var og seint" í staðinn fyrir "það var of seint".
Síðan fóru málfarsvillur afskaplega í taugarnar á mér - til dæmis " það var og seint" í staðinn fyrir "það var of seint".
August 12, 2015
Fín fyrsta bók höfundar, spennandi og plottið heldur alveg vatni. Það voru samt töluverðir hnökrar á texta, bókin hefði svo sannarlega þolað góðan yfirlestur fyrir prentun.
September 10, 2015
Spennandi söguþráður en ógrynni af málfræði- og stafsetningvillum kemur í veg fyrir fjórðu stjörnuna.
Displaying 1 - 24 of 24 reviews





















