Jump to ratings and reviews
Rate this book

Gennemtræk

Rate this book
Askur er på vej til lufthavnen for at hente sin mor, som han ikke har set i årevis. Men som grebet af en pludselig frygt vender han bilen og ræser den anden vej – og ender i grøften. Flugten væk fra lufthavnen bliver en tur igennem Islands landskaber, men også tilbage i tiden, til Askurs barndom, en ubearbejdet skilsmisse mellem forældrene og et grimt brud med hans store ungdomskærlighed, Gyda.

Gennemtræk er en humoristisk og ærlig roman om skam og forsoning. Det er en roman om at vakle i overgangen fra dreng til mand, om at mangle forbilleder som ung og ikke mindst om at lære at stå fast i et stormombrust liv.

301 pages, Paperback

Published May 19, 2026

Loading...
Loading...

About the author

Einar Lövdahl

8 books5 followers

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
42 (26%)
4 stars
80 (51%)
3 stars
26 (16%)
2 stars
7 (4%)
1 star
1 (<1%)
Displaying 1 - 18 of 18 reviews
Profile Image for Villi Neto.
48 reviews86 followers
January 20, 2025
Mér finnst mest særandi hvað ég var illa fyrir kallaður þegar ég byrjaði að lesa þessa bók.
Einar er einstaklega hæfur og næmur penni, og ólgandi innra líf Asks dregur mann inn með hverjum kafla. Sagan er góð. Ég segi að ég var illa fyrir kallaður vegna þess ég áttaði mig á að ég var ekki beint tilbúinn í "svona bók" en ég þrjóskaðist áfram. Ég er mjög líklegur til þess að lesa hana aftur, enda er stíll Einars það gefandi.
Profile Image for Kristín Hulda.
271 reviews11 followers
August 7, 2024
Mjöööög góð!!! Fallega skrifuð og höfundur greinilega með gott vald á íslenskunni, ánægjuleg lesning. Kveikti á alls kyns hugvekjum um mistök, samkennd, ástina, sambönd og það mannlega. Auðvelt að tengja við og finna til með aðalpersónunni og öllum karakterunum reyndar, fangaði vel sammannlega reynslu.
Profile Image for Vala Run.
81 reviews5 followers
May 5, 2024
4,5
vá!!! svo hrá og einlæg, raunveruleg og vekur fram allskonar tilfinningar! týmdi ekki að klára hana, hefði mátt vera lengri! sturlað vel skrifuð og uppbyggð; timalínan vel sett upp án þess að vera of bókstafleg.
mæli með!
Profile Image for Þorvaldur Sigurbjörn Helgason.
Author 9 books66 followers
Read
May 2, 2024
Falleg og harmræn samtímasaga beint upp úr Íslandi dagsins í dag. Það hræddi mig smá hvað ég tengdi mikið við Ask.
Profile Image for Védís Guðmundsdóttir.
12 reviews1 follower
June 3, 2024
Gegnumtrekkur er átakanlega vel skrifuð saga um hversu djúpt rætur vanrækslu og skeytingarleysis geta skotið sér, á sama tíma og hún er hnyttin, írónísk og falleg.

Rithöfundurinn lýsir senum, persónum og umhverfinu á ljóslifandi hátt. Mér fannst seinni hluti sögunnar sérstaklega góður og ná dálítið góðum hraða og stíganda í sögunni sem fyrri hlutann skorti mögulega ögn, þótt sagan hafi gripið mann frá fyrsta kafla.

60 reviews
December 23, 2024
Frásagnarhæfileiki Einars fer með mig út á land til ömmu minnar heitinnar þar sem ég sé brosið hennar og rifja upp ís með ískexi og ávöxtum úr dós. Mannlegur texti sem auðvelt er að tengja við.

Þegar foreldri/foreldrar bregðast trausti barns, hvernig viðvera og skortur á viðveru foreldra hefur áhrif á barn. Það er einhvers konar saga í hverri fjölskyldu sem hefur mótandi áhrif á börnin í þeirri fjölskyldu. ,,...í brjósti hverrar manneskju leynist sofandi skepna. Spurningin er bara hvort einhver poti nógu fast í hana." Glerbrot koma víða við, skömm - hver er ég hvernig á ég að vera. Glerbrotin eru í blóðinu. Heldur skömmin/kvíðinn í okkur eða við í hana/hann?
Profile Image for Einar Jóhann.
334 reviews13 followers
April 22, 2024
Fantafín og grípandi nútímasaga. Bókin er þannig uppbyggð að lesandinn kemst að meiru og meiru um hvar aðalpersóna sögunnar fór út af sporinu - sem eykur spennuna og keyrir söguna áfram - á sama tíma og höfundurinn skemmtir lesandanum með raunsærri frásögn af ungum manni í klípu. Sumt af því er hversdagslegt og sammannlegt á meðan aðrar reynslur eru sárari og perónulegri.
Einar hefur gott vald á íslenskunni; stíllinn fínn og samtölin eru eðlileg. Hlakka til að lesa næstu bók!
Profile Image for Alexander Jean Le Sage de Fontenay.
3 reviews2 followers
May 1, 2025
Einlæg og tragísk - á tímum tragíkómísk – samtímasaga úr íslenskum raunveruleika. Lifði mig mjög inn í hana á vissum tímapunktum og finnst kaflaskiptingin / framvinda sögunnar áhugaverð og skemmtileg. Falleg kápa hönnuð af Þorleifi Gunnari Gíslasyni sem var tilnefnd til FÍT verðlaunanna 2025.
Profile Image for Linda Ramdani.
2 reviews3 followers
June 8, 2024
Stórkostleg lesning, samræðurnar og persónurnar svo einlægar og maður tengdi við þær á ótrúlegustu stöðum. Virkilega fallega skrifaður texti.
Displaying 1 - 18 of 18 reviews