Jump to ratings and reviews

Öld ímyndunaraflsins

Hugmyndaferðalag um nútímann, nýliðna sögu og framtíðina. Gervigreind er mál málanna í dag – geysivíðtækt efni sem Bergur Ebbi skrifar um af smitandi eldmóði, skynsemi og þekkingu. Um leið og hann reifar djúptæk áhrif tæknibyltinga síðustu áratuga á samfélagið og deilir persónulegri reynslu leitast hann við að skýra hvers vegna gervigreind er annað og meira en tækninýjung. Öld ímyndunaraflsins er óður til skapandi hugsunar, töfra tungumálsins og alls þess sem gefur lífinu gildi.

Bergur Ebbi er verðlaunaður höfundur sem hefur með skrifum sínum, uppistandi og fyrirlestrum skipað sér í hóp fremstu samfélagsgreinenda okkar og ræðst hér til atlögu við heitasta málefni líðandi stundar. Áður hefur hann fengist við að kryfja samtímann í tveimur bókum, Stofuhita og Skjáskoti, sem báðar vöktu mikla athygli.

155 pages, Kindle Edition

First published January 1, 2026

Loading...
Loading...

About the author

Bergur Ebbi

5 books8 followers

Ratings & Reviews

What do you think?

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
19 (48%)
4 stars
14 (35%)
3 stars
6 (15%)
2 stars
0 (0%)
1 star
0 (0%)
Displaying 1 - 9 of 9 reviews
Profile Image for Villi Neto.
47 reviews86 followers
Read
September 10, 2026
Afar athyglisverð bók.
Langar ekki að gefa stjörnugjöf því ég litaðist svo mikið sjálfur af mínu áliti á umræðuefninu í bókinni, og því ekki marktækur í stjörnugjöf.
Bergur Ebbi stórskemmtilegur eins og alltaf, vinkona sagði hvað þetta yrði góð hljóðbók og ég er mjög sammála.
Profile Image for Einar Jóhann.
332 reviews13 followers
September 29, 2026
Ég tek undir með þeim sem segja þetta vera bestu bók Bergs Ebba og er sammála því að hráa einlægnin spila þar stóra rullu. Get ekki tekið undir með að þarna sé hann upp á sitt fyndasta, alls ekki, en ég meina það ekki illa. Hér er bara meira í húfi og minni galsi. Viku seinna er ég enn að hugsa um non'space'ið, bláa litinn hjá Hómer, búðarferð í Ástund, eðlu í búri og þá staðreynd að nú spyrjum við spurninganna.
Profile Image for Helga Olafsdottir.
11 reviews
October 8, 2026
Skemmtileg
Auðlesin
Á köflum líkari of löngu substacki en bók
En hún var étin hratt og örugglega og smakkaðist prýðilega
Profile Image for Oddur Ævar.
3 reviews
September 29, 2026
Stórkostleg. Bergur Ebbi blandar flóknum hugmyndum saman við minningar, fortíðina og persónulegar fjölskyldusögur í bók sem blæs manni baráttuanda í brjóst fyrir framtíð sem maður upplifir æ oftar að sé óútreiknanleg og jafnvel ógnvekjandi. Hugljúf og skemmtileg bók þar sem virðing er borin fyrir vitsmunum lesandans.
Profile Image for Daði Víðisson.
26 reviews
September 15, 2026
“Sköpun er ekki bara einhver leið út úr sorginni, sköpun er eina leiðin”.
Frábær bók, falleg og gæsahúðarlestur
Profile Image for MJ.
10 reviews1 follower
Read
September 17, 2026
Einlægur, ferskur og fyndinn Bergur Ebbi. Virkilega gott.
Displaying 1 - 9 of 9 reviews