Regína og Litlavin eru eins ólíkar og hægt er. Auk þess ólst Regína upp hjá hertoganum í Normandí en Litlavin á Íslandi, hjá fátækum vinnuhjúum sem sögðu henni aldrei sannleikann um uppruna hennar.
Á fjórtán ára afmælisdegi þeirra birtist dularfullt fólk hjá þeim báðum. Fólk sem er með drekapeð í fórum sínum og ætlar að – haltu þér fast – veiða þær. En af hverju? Hverjar eru þessar stelpur? Talandi hani, brjálaður búálfur og sætur hvolpur gera allt til að halda þeim á lífi en dugar það til? Og … hver í veröldinni er þessi Sturla? Verðlaunahöfundurinn Gunnar Helgason skapar ævintýralega spennu með leiftrandi frásagnargleði og heillandi söguheimur hans sprettur fram í fjölmörgum mögnuðum myndum Sigmundar Breiðfjörð. Þetta er bók sem þú VERÐUR að lesa.
GUNNAR HELGASON (b.1965) is a popular actor and well known for all kinds of entertaining material for children which has enjoyed great popularity for some years. Amongst other things he has directed a popular children’s program on Icelandic State TV. He received the IBBY Spring Winds award 2013 for his contribution to children’s culture in Iceland. All the books in Great Football Adventure series are written with advice from Reykjavik Child Services as well as the Icelandic Football Association. Stories about the footballer Jon Jonsson have been mainstays on Icelandic bestseller lists for the past years.