Ungur maður fær óvænt upp í hendurnar 30 milljónir króna. Miðaldra hjón verða fyrir því að húsið þeirra er málað appelsínugult í skjóli nætur. Þessir óvæntu atburðir koma miklu róti á líf persónanna, ekki síst aðalpersónunnar þar sem allt fer á hvolf.
Hendingskast er fyrsta skáldsaga Sigurjóns Bergþórs Daðasonar. Undir lygnu yfirborði kraumar ólga og togstreita - og ísmeygileg kímni.
skemmtilegur lestur, nær fullkomlega tilfinningunni í millilífsástandi, þegar maður finnst maður ekki vera kominn á þann stað sem maður ætti að vera kominn á, hvort sem það er námslega eða atvinnulega
Þetta er fínasta saga. Ekki besta bók sem ég hef lesið en mér finnst rithöfunduruinn lofa mjög góðu og hlakka til að lesa meira eftir hann. Ætla að fylgjast með honum í framtíðinni. Ég tók viðtal við höfundinn og fjallaði um bókina á Menningarvitanum haustið 2015: http://menningarvitinn.is/grein/sigur...
Fínasta lesning. Fyrsta bók höfundar og hann nær í raun alveg að halda manni nokkuð vel við efnið. Get ekki sagt að þessi saga eigi eftir að sitja lengi í hausnum á mér en hún var nú samt fínasta dægrastytting.