Hundadagar er leiftrandi skemmtileg saga um stórhug, vandræði, bresti og breyskleika; um menn sem sigla með himinskautum og jafnvel í kringum hnöttinn; um ástina og ástríðurnar; um allt sem er hverfult og kvikt – um þræðina sem tengja saman tímana. Frásögnin leiðir okkur á vit Jörundar hundadagakonungs, Jóns Steingrímssonar eldklerks og fleira fólks fyrri alda sem lesa má um í heimildum en varð líka efni í þjóðsögur sem lifa enn. Og sagan er ævintýraleg – og ævintýrin söguleg: eldgos á Íslandi kveikti byltingarbál í Frakklandi sem hafði svo aftur víðtæk áhrif annars staðar ... Kannski á fortíðin brýnna erindi við samtíðina en okkur grunar?
Einar Már Guðmundsson received a B.A. in Comparative Literature and History from the University of Iceland in 1979, after which he moved to Copenhagen to do graduate work in Comparative Literature at the University of Copenhagen.
Einar's first book, the collection of poetry Er nokkur í kórónafötum hér inni? (Is Anyone Here Wearing the Korona Line?), appeared in 1980. In 1985 he received first prize in a literary competition held by Almenna Bókafélagið, Book Publishers and Book Club, for the novel Riddarar Hringstigans (The Knights of the Spiral Staircase). His books have been translated into several languages and the widely acclaimed novel Englar alheimsins (Angels of the Universe) received the Nordic Council's Literary Award in 1995. Friðrik Þór Friðriksson's movie which is based on the book premiered in Reykjavík on New Year's day in the year 2000. Einar is currently living in Reykjavík. He is married and has five children.
Úff hef sjaldan verið jafn glöð með að klára bók…þurfti virkilega að pína mig í gegnum þessa…mjög boring😕 Gef samt 2 stjörnur því að Einar Már er góður sögumaður og ég fíla ritstílinn hans
Skellti mér í að lesa Hundadaga meðan hundadagarnir stóðu yfir í sumar.
Var ekki nógu hrifin. Skil ekki alveg tenginguna milli Jóns Eldklerks og Jörundar hundadagakonungs, fannst hún ekki nógu vel unnin. Og mér fannst þetta bara aðeins of langt, ég var orðin leið á stílnum áður en bókin var búin.
Þetta er ein af betri bókum Einars, en ekki sú besta. Hann hefur greinilega sökkt sér niður í söguna að baki og stundum er mér ekki alveg ljóst hvert hann er að fara. Bókin er byggð upp af mörgum stuttum köflum og sumir þeirra eru hreint frábærir - og á heildina litið er ég afar ánægður.
This book is kind of a biography, kind of a fictional novel in the way it presents itself. And to me, that was confusing. It jumped around in the timeline so much, it was hard to keep track of, and half the stories told didn't seem relevant to the rest of the book. The writing style, when taken sentence by sentence and not as a complete picture, was decent.
Mjög ahuvaverð en fróðleg. Serstaklega fyrir folk eins og eg sem viddi ekki mikið um hundadagskonungum áður en ég las þessa bók. Ég er ekki viss hvort hún er líka eins áhugaverð ef lesendinn þekkir söguna mjög vel en mér fannst hún skemmtileg að lesa!
Þessi bók vann mjög á við lesturinn, mjög fróðleg og virkilega áhugavert að "kynnast" Jörundi betur, já og líka þeim Jóni Steingrímssyni (sem hefði mátt gera betri skil) og Finni Magnússyni (sem kom frekar óvænt inn sem ein af aðalpersónum seint í bókinni, reyndar án þess að það væri augljóst af hverju). Ég hefði gjarnan viljað fá nánari upplýsingar í lok bókarinnar um ævilok aðalpersónanna. Mæli hiklaust með þessari bók fyrir áhugafólk um sögulegan fróðleik.
Meget humoristisk bog med meget lidt fordybelse. Den reelt gode del varer kun hundrede sider og resten kunne jeg godt undvære mindst 50 siders ligegyldig information. Det er ikke en rigtig biografi og heller ikke en historisk roman. Hvis den rigtig gik i kødet på de interessante dele af hans liv i stedet for alle de anekdoter, ville den være meget mere spiselig.
Phew ... That was.... Interesting! Honestly the story of the first and only king if Iceland was an intriguing and exciting one - but I so very much disliked the way it was told. A whole book back and forth, connecting people and places to his story, saying stuff like "but we won't talk about this now, this will come later", a ton if repetitions... No! Not a good book at all and I gladly "forgot" it in our vacation apartment.
En forrygende fortæller! Stoffet er Jørgen Jürgensen, som havde et mildest talt farve- og begivenhedsrigt liv, og i hænderne på denne forfatter bliver det til den skønneste skipperskrøne
Vel rannsökuð og útpæld frásögn af Jörundi Hundadagakonungi. Líkt og titillinn bendir til er umfjöllunarefnið þó tímabilið sem markast af lokum 18. aldir til upphafs þeirrar 19 hérlendis og þar sem Jörundur steig niður fæti. Til þess notar Einar Már aðallega sjálfsævisögur og ævisögur Jóns Steingrímssonar Eldklerks, Jörundar kóngs og Hannesar Finnssonar. Segir frá persónum sem tengdust ævum þeirra, atburðum og heildarsögu þjóðar. Finnst sagan vera ein af betri bókum Einars en ritstíll hans heillar mig þó ekki og fannst saga hans dálítið slitrótt.
Historien virker bare lidt for fantastisk - og det var ret sent at jeg via internettet opdagede, at personerne i bogen var virkelige personer. for mig virker handlingen lidt rodet - nærmes som studienoter lavet under research til bogen og mangler en bedre formidling af noterne i et mere flydende sammenhæng.
Selv Berlingskes anmelder af bogen nævner det sjove i at Google de personer, som optræder i bogen for at lære om deres finurlige personligheder.
Lífleg og skemmtileg skálduð frásögn af sönnum brotum úr lífi tveggja áhugaverðra persóna, Jörundar Jörundarsonar Hundadagakonungs og Jóns Steingrímsssonar Eldklerks. Bókin er lipurlega rituð og sagan líður áfram eins og straumur góðra vísna. Eini ágalli bókarinnar í mínum augum eru sífelldar endurtekningar og upprifjanir. Bókin er undantekningin sem sannar reglunna um að góð vísa er sjaldan of oft kveðin.
Mjög fín bók og skemmtileg. Batnaði við að lesa hana í annað sinn en ég hafði áður lesið hana þegar hún kom út. Reyndar hlustaði ég í þetta sinn á hljóðbókina í lestri höfundar og það spillti ekki fyrir. Þessi bók er frásögn sögumanns og þannig nýtur hún sín eiginlega best í upplestri þess sem ritaði hana.
Í heildina bráðskemmtileg og fyndin bók. Ég náði þó aldrei tengingunni á milli sögunnar um ævintýri Jörgens annars vegar og sögunnar um Jón Steingrímsson eldklerk hins vegar. Báðar sögurnar eru þræl fínar engu að síður. Sagan heldur ekki fluginu allan tíman, en í heildina fín.