What do you think?


Stúlka með höfuð
Hann kenndi mér að halda mig á mottunni um leið og hann gerði mig reiða svo mig langaði að slíta af mér hlekki. Þar er spennan. Það sem gerir lífið spennandi. Að syndga og slíta af sér hlekki og taka út refsinguna. Þessi línudans á línunni voðalegu, að vilja vera á mörkunum og teygja þau út svo heimurinn skáni. Að bögglast við að vera hamingjusamur í heimi þar sem næstum ekkert má. Hér segir Þórunn frá uppvexti sínum í Reykjavík rokksins og hippaáranna, þar sem erfiður skilnaður foreldranna varpaði skugga á gleðina, frjálsu stúdentalífi í Lundi og Mexíkó, kommúnum, ástmönnum og litríkum samferðamönnum. Opinská frásögnin er ofin trega og hamingju, léttleika og djúpum söknuði. Stúlka með höfuð er sjálfstætt framhald af Stúlku með fingur og Stúlku með maga, þar sem Þórunn notaði heimildir og skáldlega túlkun til að segja sögu móður sinnar og formæðra. Báðar bækurnar hlutu mikið lof gagnrýnenda og Stúlka með maga fékk Fjöruverðlaunin 2014.
321 pages, Hardcover
Published January 1, 2015
Ratings & Reviews
Friends & Following
Create a free account to discover what your friends think of this book!
Community Reviews
Displaying 1 - 3 of 3 reviews
January 30, 2024
Þessi höfðar engan veginn til mín.
January 30, 2016
Mjög áhugaverð sjálfsævisaga. Opinská og einhvern veginn ... ófyrirleitin? Ég veit ekki alveg hvaða orði ég er að leita að. Þórunn hefur skemmtilega sýn á lífið og tilveruna. Ég hlakkaði alltaf til að halda áfram og ætlaði varla að tíma að lesa síðasta kaflann.
January 29, 2016
Góð á köflum en einnig of mikil upptalning og nafnakall inn á milli. Hef verið að vonast eftir annarri sem gefur það sama og Stúlka með fingur án árangurs. Hefði gefið þessari 3.5 ef í boði.
Displaying 1 - 3 of 3 reviews


